Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Side 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Side 27
Sjómannablaðið Víkingur – 27 – 36 – Þrítugasti- og sjötti togarinn í eigu Ís- lendinga, Ari RE-147, skráður hér á landi 30. september 1920, smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi árið 1920 fyrir Fiskveiðahlutafélagið Ara fróða í Reykjavík. Lengd 41,45 m., breidd 7,10 m., dýpt 3,26 m., brl. 321,07. Knúinn 600 hö. gufuvél. Skip- stjóri, Jón Jóhannsson. Kárafélagið í Viðey keypti skipið 14. janúar 1928, sem hét áfram sama nafni en fékk skráningarstafina GK-238. Skráður eigandi 9. janúar 1932 var Út- vegsbanki Íslands skipið bar þá uppruna- lega nafnið, Ari RE-147. Selt 3. septem- ber 1932, Ólafi Jóhannessyni & Co h/f á Patreksfirði, og nefnt Leiknir BA-167. Sökk á Halamiðum 2. október 1936. Áhöfnin, 15 menn, bjargaðist um borð í togarann Gylfa BA 77 frá Patreksfirði. – 37 – Þrítugasti og sjöundi togarinn í eigu Ís- lendinga, Apríl RE-151, skráður hér á landi 20. nóvember 1920, smíðaður hjá Cook Welton & Gemmell Ltd í Beverley á Englandi árið 1920. Lengd 41,45 m., breidd 7,77 m., dýpt 3,20 m., brl. Vörpuhleri orsakar skipstapa. Togarinn „Leiknir“ sökk á Halamiðum Skipverjar yfirgáfu skipið í flýti Togarinn „Leiknir“ frá Patreksfirði sökk í fyrrinótt á Halamiðum. Skipverjar allir björguðust í bátana og síðan um borð í togarann „Gylfa“, sem fór með skipshöfnina til Patreksfjarðar, eftir að Leiknir var sokkinn. Leiknir var að karfaveiðum á Halamiðum og í fyrrakvöld kom allt í einu óstöðvandi leki að skipinu, dælurnar höfðu ekki við, og er svo mikill sjór var kominn í skipið, að hætta gat verið á ketilsprengingu, neyddust skipverj- ar til að yfirgefa skipið. Misstu þeir allt sitt dót, nema það, sem þeir stóðu í. Dagbók 1. vjelstjóra, sem var á verði í vjelarúmi, gefur einna gleggsta hugmynd um, með hverjum hætti slysið vildi til. Þar segir svo: „Klukkan 6,10 e. h. kom jeg á vakt og var þá allt í venjulegum gangi. Klukkan 10 er híft upp á hálfri ferð og stoppi. Kl. 10,15 er vjelin stöðvuð og skellur þá afturhlerinn stjórn- borðsmegin með óvenju miklu höggi, svo að öryggi fjell úr rafmagnsborðinu, sem var á þilinu, og ljet jeg það í aftur. Kl. 10,25 tek jeg eftir því, að óvenju mikill sjór er í vjelrúmsbotninum. Þar eð hann var tómur þegar verið var að hífa, setti jeg því lensidælurnar í gang og tilkynti lekann.“ Því næst lýsir vélstjórinn í dagbókinni ýmsum varúðarráðstöfunum, sem hann gerði, en alt kom fyrir ekki, sjór- inn jókst jafnt og þjett. Kl. 10,45 kom skipstjóri niður í vjelarrúm og tilkynti vjelstjórinn honum þá, að hann hefði ekki við að dæla. Var sjórinn þá kominn upp í sveifar og flaut yfir ketilrúmsgólfið. Klukkan 11 var sjór farinn að renna inn í mið- eldhólfið og þá gaf skipstjórinn skipun um að yfirgefa skipið. Skömmu síðar komu togararnir Gylfi og Egill Skallagrímsson á vettvang og fóru skipverjar um borð í Gylfa. Var síðan komið vírum frá Gylfa um borð í Leikni og hjelt Gylfi af stað með hann í eftirdragi áleiðis til lands. Leiknir fyltist æ meir af sjó og rúmlega 3 klukkutímum eftir að Gylfi hafði tekið hann í eftirdrag, sökk skipið, og var þá höggvið á vírana milli skipanna. Skipið sökk austanvert við Nesdýpi á 56 faðma dýpi, um 25 mílur NV af Sauðanesi. Gylfi kom til Patreksfjarðar kl. 10 í gærmorgun með skipshöfnina, og leið öllum vel. Sjópróf byrjuðu kl. 4 í gær. „Leiknir“ var 321 smálest brúttó að stærð. Bygður í Selby á Englandi árið 1920, og þá keyptur hingað til lands af hlutafjelaginu „Ari fróði“. Þá hjet skipið „Ari“. 1928 keypti Kárafjelagið í Viðey „Ara“ og árið 1932 núverandi eigendur þess, Ó. Jóhannesson á Patreksfirði, sem þá breyttu um nafn á skipinu og nefndu það „Leikni“. Morgunblaðið 3. október 1936. Ari GK-238, áður Ari RE, á veiðum á sömu miðum og gömlu þilskipin. Ari RE-147.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.