Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Page 29
Sjómannablaðið Víkingur – 29
13. júlí 1901 á Bug í Fróðárhreppi. Hann var ókvæntur,
en trúlofaður Siglin Grímsdóttur, Sigurðssonar frá Nik-
hól í Mýrdal. Hann tók við skipstjórn „Apríls“ í ágúst-
mánuði síðastliðnum.
Jörgen Pjetur Hafstein. Fæddur 15. nóvember 1905,
að Óspakseyri. Foreldrar Marino sýslumaður Hafstein
og Þórunn Eyjólfsdóttir; bæði á lífi. 5 systur og 2 bræð-
ur.
Tók stúdentspróf vorið 1925 og embættispróf í lögum
vorið 1929, með 1. einkunn. Fékk utanfararstyrk úr
Sáttmálasjóði til framhaldsnáms vorið 1930. Fór utan í
maí s.l. og hafði lokið námi í Lundúnum.
Kosinn í bæjarstjórn Reykjavíkur í janúar 1930.
Hann var farþegi með skipinu.
Ólafur Helgi Guðmundsson, 1. stýrimaður. Hann var
sonur Guðmundar Guðnasonar skipstjóra, Bergstaða-
stræti 26 og konu hans Mattínu Helgadóttur. Hann var
fæddur 3. ágúst 1903, ókvæntur og átti heima hjá for-
eldrum sínum.
Magnús Brynjólfsson, 2. stýrimaður, átti heima á
Óðinsgötu 6. Hann var elsti maður á skipinu, 55 ára að
aldri, sonur Brynjólfs Bjarnasonar í Engey. – Magnús
lætur eftir sig konu, Helgu Stefánsdóttur og tvö börn.
Einar Eiríksson, 1. vjelstjóri, átti heima á Bragagötu
21. Hann var fæddur 10. nóv. 1898 í Selkoti í Reykjavík.
Hann lætur eftir sig konu, Svanhildi Sigurðardóttur, 3
börn og eitt fósturbarn.
Jón Ó. Jónsson, 2. vjelstjóri, átti heima á Njálsgötu
23. Hann var fæddur 7. maí 1892 að Hróaldstöðum í
Vopnafirði. Hann lætur eftir sig konu, Margrjeti Ketil-
bjarnardóttur og 4 börn öll ung. Margrjet er systir
Eggerts Ketilbjarnarsonar sem einnig fórst með Apríl.
Friðrik Theodór Theodórsson, loftskeytamaður, átti
heima á Marargötu 7, hjá foreldrum sínum Ólafi Theo-
dórs snikkara og konu hans Sigríði Bergþórsdóttur,
sem er systir Hafsteins Bergþórssonar skipstjóra. Theo-
dór var 27 ára og ókvæntur. Frá honum komu seinustu
kveðjurnar frá „Apríl“ er hann hafði loftskeytasam-
bandi við „Otur“ á sunnudagskvöldið 30. nóvember.
Þórður Guðjónsson, bryti, til heimilis áLokastíg 28 A.
Hann var fæddur 12. desember 1903. Faðir hans heitir
Guðjón Egilsson og á heima á Bjargarstíg 3, og eru þar
tvær systur Þórðar. Hann var ókvæntur. Mun hafa ver-
ið ólögskráður á skipið.
Einar Sigurbergur Hannesson, aðstoðarmatsveinn,
var fæddur 17. september 1913. Hann átti heima hjá
foreldrum sínum, Hannesi Stígssyni og Ólafíu Einars-
dóttur á Laugaveg 11. Þau hjón eru Skaftfellingar og
eiga nú 6 syni á lífi, flesta yngri en Einar.
Kjartan Reynir Pjetursson, háseti, átti heima á
Ásvallagötu 13. Hann var fæddur 11. janúar 1907 í
Reykjavík. Foreldrar hans eru Pjetur Sigurðsson og
Gróa Jónsdóttir og eiga þau hjón heima á Vesturgötu
51. Kjartan lætur eftir sig konu, Valgerði Kr. Sigur-
geirsdóttur og barn á fyrsta ári.
Pjetur Ásbjörnsson, háseti, var eini maður á skipinu,
sem ekki átti lögheimili í Reykjavík. Hann átti heima í
Ólafsvík, var 26 ára að aldri, Iætur eftir sig konu, Ingi-
björgu Ólafsdóttur frá Sandi og þrjú börn kornung.
Foreldrar hans eru Ásbjörn Eggertsson og Ragnheiður
Eyjólfsdóttir, bæði um sjötugt.
Einar Axel Guðmundsson, háseti. Hann var fæddur
25. júlí 1910 í Reykjavík og átti heima hjá foreldrum
sínum á Framnesvegi 1 A. Var ókvæntur.
Páll Kristjánsson, háseti, var fæddur 4. október 1906
að Fossi í Staðarsveit í Snæfellsnessýslu. Hann var
ókvæntur og átti heima á Frakkastíg 24.
Sigurgísli Jónsson, háseti, var fæddur 11. desember
1892 að Skagnesi í Mýrdal. Hann átti heima á Ljós-
vallagötu 10 og lætur eftir sig konu, Hólmfríði Jóns-
dóttur, 4 börn og fósturbarn, hvert öðru yngra, hið
elsta á 12. ári og hið yngsta á 1. ári.
Kristján Jónsson, kyndari, var fæddur 20. apríl 1887
á Ísafirði. Átti hann nú heima á Bergstaðastræti 1 hjer
í bænum, var ókvæntur, en hafði fyrir þungu heimili
að sjá.
Magnús Andrjesson, háseti, var fæddur 18. apríl
1896 á Dagverðarnesi á Skarðsströnd. Átti nú heima á
Marargötu 3, hjer í bænum; hann var ókvæntur.
Eggert Snorri Ketilbjarnarson, kyndari, var fæddur
5. september 1909 að Sauðhól í Dalasýslu. Hann var
ókvæntur og átti nú heima hjá móður sinni, Halldóru
Snorradóttur, á Kárastíg 8. Misti hún þarna í sjóinn
samtímis efnilegan son sinn og tengdason, Jón Ó. Jóns-
son, 2. vjelstjóra.
Ragnar Júlíus Kristjánsson, fæddur 16. ágúst 1905,
átti heima á Holtsgötu 10. Faðir hans er Kristján Sæ-
mundsson, salernahreinsari. Ragnar var kyndari á
„GuIItoppi“, en varð eftir af skipinu í Englandi í sein-
ustu ferð þess og tók sjer þess vegna far með „Apríl“.
Morgunblaðið 13. desember 1930.