Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Qupperneq 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Qupperneq 37
Sjómannablaðið Víkingur – 37 Á fyrra helmingi 20. aldar, og allt fram um 1960, lék sérstakur ljómi um nafn Siglufjarðar í hugum flestra Íslendinga, kvenna ekki síður en karla. Góðskáld, hagyrðingar og laga- smiðir mærðu kaupstaðinn á Þormóðs- eyri í ljóðum og lögum og þegar Siglu- fjörð bar á góma á góðri stund færðist tíðum roði í kinnar og blik í augu þeirra, sem þar höfðu dvalið sumarlangt – jafnvel aðeins eina lognværa sum- arnótt. Kverúlantar og heimsósómaspá- menn voru á annarri skoðun, kölluðu síldarbæinn Sódómu, en í hugum fjöl- margra Íslendinga (og reyndar einnig útlendinga) var Siglufjörður staður æv- intýra og tækifæra. Mestu skiptir þó að hann var einn helsti vettvangur mesta ævintýris í íslenskri atvinnusögu á 20. öld, sókn þjóðarinnar frá örbirgð til bjargálna. Fyrsti „alíslenzki síldarfarmurinn“ Rætur verslunarstaðarins í Siglufirði, nánar tiltekið á Þormóðseyri, má rekja aftur á einokunaröld. Á 19. öld verslaði þar danski kaupmaðurinn Chr. D. Thaae, sem einnig rak verslun á Raufarhöfn og víðar. Síðasti verslunarstjóri hans í Siglu- firði hét Snorri Pálsson og að hans hvöt- um keypti Gránufélagið eignir Thaaes í Siglufirði árið 1876 og hóf þar verslun. Á þeim tíma var allnokkur hákarlaútgerð í Siglufirði, en annars hokruðu Siglufjarðarbændur eins og þeir höfðu gert um aldir, lifðu jöfnum höndum af sjó og landi, og fátt benti til annars en að svo myndi verða um ókomna tíð. En þess var skammt að bíða að nýir tímar boðuðu komu sína í Siglufirði. Snorri Pálsson var snjall fjármálamaður, framfarasinnaður frumkvöðull, og fljótur að koma auga á nýja möguleika í at- vinnu- og fjármálum. Hann hafði fylgst gjörla með síldveiðum Norðmanna og nágranna sinna austan Sigluness og taldi að vel mætti reka síldveiðar í Siglufirði með að minnsta kosti jafn góðum árangri og á Eyjafirði. Sumarið 1880 hófst hann handa ásamt mági sínum, Einari B. Guð- mundssyni bónda á Hraunum í Fljótum, og Tryggva Gunnarssyni, kaupstjóra Gránufélagsins. Saman hófu þeir síldarút- gerð, landnótaveiðar og söltun, og fluttu í sameiningu út fyrsta „alíslenzka síldar- farminn“ haustið 1881. Snorri fékk hins vegar ekki lengi að njóta verka sinna. Hann lést úr taugaveiki 13. febrúar 1884. Síldarútvegur Snorra og félaga stóð að- eins skamma hríð og um það bil sem Snorri lést fór í hönd mikið harðinda- skeið sem lamaði allt atvinnulíf og alla framfaraviðleitni á Norðurlandi. Þegar því slotaði hófst hins vegar hið eiginlega síldarævintýri í Siglufirði. Upphaf þess er tíðum dagsett 8. júlí 1903, en þann dag var hafsíld fyrst söltuð á Þormóðseyri. Á næstu árum jókst söltunin ár frá ári, hver söltunarstöðin af annarri reis á eyrinni og víðar í firðinum og ekki leið á löngu uns síldarbræðslur tóku til starfa. Fyrst í stað voru Norðmenn umsvifamestir, en Ís- lendingar færðust í aukana með hverju árinu sem leið. Auk þessara tveggja þjóða voru sænskir síldarsaltendur umsvifa- miklir á Siglufirði og víðar á Norðurlandi á fyrra helmingi 20. aldar og Danir, Skot- ar, Þjóðverjar og Færeyingar tóku þátt í ævintýrinu mikla. Stöku sinnum mátti sjá sjómenn frá enn fjarlægari löndum á síldarmiðunum úti fyrir Siglufirði, á Grímseyjarsundi og víðar, er útvegsmenn frá Finnlandi og Eistlandi sendu skip sín norður í höf. 6000 manna kaupstaður Allt hafði þetta mikil áhrif á byggðina og þróun hennar. Um aldamótin 1900 voru íbúar í Siglufirði alls 142, en fjölgaði síð- an hratt. Þeir voru 2.100 árið 1931 og urðu flestir árið 1948, samtals 3.100. Hér þó aðeins talið fólk sem átti fasta búsetu í Siglufjarðarkaupstað. Á sumrin streymdi fólk úr öðrum héruðum og landshlutum til Siglufjarðar í atvinnuleit. Þá tvöfaldað- ist íbúafjöldinn í tvo til þrjá mánuði og þegar vertíðin stóð sem hæst hafði Siglu- fjörður á sér harla alþjóðlegan blæ. Þar var líf og fjör, hvernig sem viðraði, og oft Jón Þ. Þór Siglufjörður Höfuðstöðvar síldveiða á Norður-Atlantshafi

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.