Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Qupperneq 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Qupperneq 39
Sjómannablaðið Víkingur – 39 Myndir: Þorgeir Baldursson Háhyrningur í trollið Okkar góðkunni ljósmyndari, Þorgeir Baldursson, sendi okkur þessa mynd af háhyrningi sem á dögunum kom í trollið hjá skuttogaranum Gullveri NS 12. – Ég er búinn að vera á sjónum í 40 ár, segir Þorgeir, og hef aldrei séð það eða heyrt að háhyrningur kæmi í troll. Við vorum að veiðum fyrir austan, á Berufjarðarál, þegar skepn- an fór sér að voða. – Hver var aflinn að öðru leyti, vill Víkingur fá að vita. – Þetta var svona bland í poka, þorskur, ufsi og karfi. – Túrinn langur? – Nei skipið er lítið, rúmar 423 brúttólestir, og við ekki nema þrjá daga að fylla. Um leið og við þökkum Þorgeiri fyrir að hafa Víkinginn á bak við eyrað skal skorað á sjómenn að gera slíkt hið sama. Netjið endilega á okk- ur örfréttir af sjónum. Netfangið er jonhjalta@simnet.is – hafið þið til dæmis fengið háhyrning í vörpuna? Óheppni háhyrningurinn í vörpu Gullvers. Aflinn var blandaður, segir Þorgeir.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.