Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Blaðsíða 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur
Rannsóknarniðurstaða
Í apríl síðastliðnum ákvað bandaríski
flotinn að fella niður ákæru á hendur
skipherranum á USS Fitzgerald, Bryce
Benson, en hann hafði verið ákærður
fyrir manndráp af gáleysi auk annarra
yfirsjóna.
Skip Bensons lenti þann 17. júní 2017
í árekstri við gámaskipið ACX Crystal í
Japanshafi um 80 sml SV af Tókyó en sjö
skipverjar herskipsins létu lífið. Þá var
einnig felld niður ákæra á hendur Natalie
Combs lautinants en hún var yfirmaður
upplýsingastjórnstöðvarinnar um borð
sem var ábyrg fyrir upplýsingastreymi til
brúarinnar varðandi árekstrarhættu.
Bæði Bendson og Combs fengu
áminningarbréf þar sem bent var á að
ómarkvissir leiðtogahæfileikar þeirra og
léleg dómgreind eða samskiptaleysi hefðu
verið þýðingarmiklir þættir á árekstrin-
um. Áminningabréf sem þetta hefur að
vísu ekkert lagalegt gildi. Tveimur mán-
uðum eftir þennan árekstur lenti annað
bandarískt herskip, USS John S McCain,
í árekstri við flutningaskip og létust þá
10 sjóliðar. Rannsókn á þessum slysum
leiddi til 117 tillagna að breytingum sem
síðar voru skornar niður í 103. Búið er
að framkvæma 91 þessa tillagna. Meðal
þeirra má nefna fjölgun í áhöfn þessara
skipa, meiri svefn fyrir áhafnir og betri
þjálfun.
Við frekari skoðun á menningunni
innan flotans kom í ljós að sjöunda flota-
deild sjóhersins sem er með aðstöðu í
Japan hefur verið vanmönnuð þannig að
skipverjar hafa verið að vinna allt að 100
klukkustundir á viku og að skautað væri
létt yfir þjálfanir. Þá væri þetta farið að
bitna á viðhaldi. Er ljóst að flotastjórnin
hefur tekið þá ákvörðun að skella ekki
allri skuldinni einungis á skipstjóranna
heldur að nota þetta tilefni til að skoða
og laga innri vandamál flotans.
USS Fitzgerald eftir áreksturinn.
Utan úr heimi
Vatnagarðar 16, Reykjavík, s. 568 6625, velarehf.is
Við látum dæluna ganga
• Dælur
• Dæluviðgerðir
• Ásþétti
• Rafmótorar
• Vélavarahlutir
Viðgerðir • Tæringarvarnir
Keramikhúðun
Fyrir Eftir