Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Side 44
44 – Sjómannablaðið Víkingur
Það var frábær árangur sem þátttak-
endur í ljósmyndakeppni Sjó-
mannablaðsins Víkings náðu í
Norðurlandakeppni sjómanna í byrjun
þessa árs. Þrír okkar manna unnu til
verðlauna í þeirri keppni. Segir það
okkur hversu góðir ljósmyndarar ís-
lenskir sjómenn eru og sýndi það sig
vel á því erfiða hlutverki sem dómnefnd
íslensku keppninnar stóð frammi fyrir.
Nú blásum við til næstu keppni og
hvetjum alla sjómenn á íslenskum skip-
um sem og íslenska sjómenn á erlendum
skipum til að taka þátt í keppninni.
Fimmtán myndir sem taka þátt í keppn-
inni hér á landi fara síðan áfram í Norð-
urlandakeppni sjómanna sem fram mun
fara hér á landi í byrjun febrúar á næsta
ári. Reglur keppninnar eru ekki flóknar
en hafa þó tekið smá breytingum til sam-
ræmingar við Norðurlandakeppnina:
Hver þátttakandi má senda inn að há-
marki 15 myndir.
Myndir eiga að vera í hæstu mögulegri
upplausn.
Myndefnið á að tengjast umhverfi sjó-
mannsins hvort heldur er um borð í
skipum, frá landi hvort heldur er í
vinnu eða frítíma.
Með hverri mynd á að fylgja heiti, hvar
myndin var tekin auk upplýsinga um
á hvaða skipi viðkomandi starfar.
Myndir eiga helst ekki að vera eldri en
tveggja ára.
Myndir með vatnsmerkjum, tímastimpli
eða nafni á myndinni eru ekki gjald-
gengar.
Myndir sem sendar eru inn verða að vera
í eigu þess sem tók myndina með því
að ýta á afsmellarann og sem á höf-
undarrétt hennar.
Ljósmyndarinn tekur ábyrgð á að ef
einstaklingar séu á myndinni að heim-
ild sé fyrir að birta hana.
Með þátttöku samþykkir ljósmyndarinn
að umsjónarmaður keppninnar fari
með upplýsingar hans í samræmi við
upplýsingalögin í þeim eina tilgangi að
upplýsa um ljósmyndarann í tengslum
við íslensku keppnina og Norður-
landakeppnina.
Áskilinn er réttur til að birta myndirnar í
blöðum þeirra aðila, sem að keppninni
standa, án greiðslu.
Skilafrestur er til 1. desember nk.
Dómnefnd Sjómannablaðsins Víkings
mun velja þrjár vinningsmyndir sem
hljóta verðlaun blaðsins. Að auki verða
tólf aðrar myndir valdar af dómnefndinni
sem taka þátt, ásamt vinningsmyndum, í
Norðurlandakeppni sjómanna í ljós-
myndun sem fer fram í byrjun næsta árs.
Stafrænar myndir í keppnina skal
senda á netfangið iceship@iceship.is en
ef þær eru sendar inn á öðru formi skulu
þær sendar til:
Félag skipstjórnarmanna
v/Sjómannablaðsins Víkings
Ljósmyndakeppni 2019
Grensásvegi 13
105 Reykjavík
Ljósmyndakeppni
sjómanna 2019
Einar Vignir Einarsson á þessa ágætu mynd af Helgafelli. Við hvetjum hann og aðra íslenska sjómenn til að
taka þátt í Ljósmyndakeppni sjómanna 2019.