Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Side 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Side 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur Tréskipin gömlu Sigmar Þór Sveinbjörnsson skrifar: „Heill og sæll Jón Hjalta, það getur verið fróðlegt og skemmti- legt að velta fyrir sér nöfnum á hlutum í tréskipum. Þó tréskip- um hafi fækkað á síðustu áratugum eru enn um 200 tréskip í notkun sem fiskiskip, skemmtiskip og farþegaskip sem nú eru mörg hver notuð í hvalaskoðun og henta vel í það. En eftir því sem tímin líður eru færri sem þurfa að nota þessi nöfn sem tengjast þessum tréskipum. En ég held að margir hafi gaman af því að lesa og rifja upp þessi nöfn á hinum ýmsu hlut- um tréskipa. Tréskipasmiðir, sem nú orðið eru orðnir örfáir, þekkja auðvitað öll þessi nöfn. Skipaskoðunarmenn þurfa líka að kunna þessi heiti þegar þeir t.d. eru að taka út viðgerðir eða skemmdir á tréskipum. Myndirnar skannaði ég úr Reglum um smíði tréskipa frá ár- inu 1947. Veit ekki hvort svona teikningar hafi komið í Víkingn- um, en sjómenn hefðu örugglega gaman af því að sjá þessar teikningar.“ Við tökum heils hugar undir með Sigmari Þór, þökkum honum sendinguna og hér eru teikningarnar fyrir okkur að rýna í.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.