Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Qupperneq 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Qupperneq 50
50 – Sjómannablaðið Víkingur Ég lofaði ónefndum lesanda Víkings að gera ögn gleggri grein fyrir skáldinu sem í skírninni fékk nafnið Kristján Níels Jónsson, fæddur á Akureyri í apríl 1859, fluttist vestur um haf 1878 og átti aldrei afturkvæmt til Íslands. Í Norður-Ameríku átti Kristján heimili fyrst í Winnipeg, þá borginni Duluth í Bandaríkjunum en lengst af bjó hann í Pembínasýslu í Norður-Dakóta og þar andaðist hann hinn 25. október 1936. Eldri bróðir Kristjáns var Jón Júlíus. Gerðist hann einnig Vestur-Íslendingur og er þá komin skýringin á ættarnafninu Júlíus sem öll systkini Kristjáns sem vestur fóru - tveir bræður og tvær systur – tóku sér. Þannig titlaði skáldið sig í blaðagreinum K. N. Júlíus - sem í fram- burði enskumælandi verður Káen. Þar með hafði okkar maður eignast skálda- heiti og nefnist eftir það Káinn. Káinn var skáld kímni og léttleika og tók veröldina ekkert of alvarlega. Hann vildi njóta dagsins en gerði sér ekki rellu út af morgundeginum: Að njóta lífsins gæða er náttúrunnar þrá og nota tímann, meðan að við lifum. Þó að maður drekki og stansi stúlku hjá, það stendur ekki neinum fyrir þrifum. Káinn stansaði þó aldrei lengi „stúlku hjá“. Hann var alla tíð ógiftur, eignaðist ekki afkomendur og fannst mesta furða að nokkur karl gæti búið jafnvel áratugum saman við sömu konu: Ég gæti elskað átta, ef engin væri stór, en kysst og klappað fleirum og kannski „loved some more“. Mér finnst það næstum furða, hvað fáir svíkja lit; að eiga eina konu er ekkert minnsta vit. Kvenmannslaus veröld var Káinn þó ekki að skapi og var hann þá ekkert endilega að hugsa um viðhald mannkyns: Svarið þér ég sendi hér, segi þér og skrifa, kona mér það kenndi ber hvað það er að lifa En hið veikara kyn átti sér Akkilesarhæl sem skáldið kom snemma auga á og varð því afhuga sambúðarlífi: Þó kvenfólk beri ljúfa lund og lini sorg og þraut, og karlmönnunum stytti stund og styðji á lífsins braut, og margar eigi menntagull, sem meta ber til auðs, og konan sé af kærleik full, „hún kjaftar mann til dauðs.“ Þrátt fyrir þennan bitra sannleik, sem Káinn fannst vera, varð niðurstaða hans engu að síður þessi: Kvenfólkinu ann ég enn eins og fleiri kvennamenn á því sé ég engan blett ef að það er brúkað rétt. Káinn þótti gott að fá sér í staupinu og hélt uppi vörnum fyrir Bakkus sem var útlagi í Norður-Dakóta lengst af þeim tíma sem skáldið bjó þar: Bindindismennirnir birta það hér, að brennivín geri menn „crazy“, en það get ég sannað, að orsökin er oftast nær brennivíns-leysi. Kirkjuþing var haldið í skólanum að Mountain í Pembínasýslu. „Mun það flestra manna mál óvilhallra, að þing þetta hafi verið eitthvert hið bezta og afkastamesta er haldið hefir verið á meðal Vestur-Íslendinga“, las skáldið í blaðinu Lögbergi og tengdi óðara við kamra sem stóðu að húsabaki við þingstaðinn: Í lágri bygging búska hjá bak við skólahúsið, að minni hyggju mætti sjá mikið eftir liggja þá. Deilugirni landa vestan hafs endurspeglaðist í blöðunum Heimskringlu og Lögbergi. Kom þar að Káinn var nóg boðið: Þar er engin þjóðrækni þaðan af síður guðrækni, heldur íslensk heiftrækni og helvítis bölvuð langrækni. Endum þessa stuttu heimsókn til skáldsins á þessari sjálfslýs- ingu: Óviljandi aldrei laug, – oft við Bakkus riðinn; – af flestum, sem að fælast spaug, fremur illa liðinn. Kristján Júlíus. Ekki skal fullyrt hvenær myndin er tekin en væntanlega hefur það verið í Winnipeg þar sem skáldið bjó frá 1878 til 1891.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.