Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Blaðsíða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2019, Blaðsíða 52
52 – Sjómannablaðið Víkingur Togarajaxlar í málningarvinnu Allt fram á byrjun níunda áratugar síðustu aldar mátti sjá farmenn við málningarvinnu ýmiskonar þar sem skip þeirra lágu í höfnum vítt og breitt um landið. Var þar jafnt um að ræða erlend leiguskip auk íslenskra skipa. Með breyttum atvinnuháttum, gámavæðingu og fleiru stytt- ist viðvera farmskipa í höfnum og menn á málningarflekum málandi skip sín sáust ei meir. Áhafnir flutningaskipa sem unnu sín verk með málningarpensilinn og rúlluna við land máluðu stundum skipsheiti sitt, auk dagsetningar, á bryggjur og grjóthleðslur. Sjá mátti slík „listaverk“ víða um land og skiptar skoðanir á meðal fólks um fegurðargildi slíks verknaðar. Þessi siður að skilja eftir sig menjar í formi málningar hefur líklega lagst alveg af þegar líða tók á áttunda áratuginn síðasta. Fiskimennirnir okkar sem alla jafna eru ekki að sinna málningarvinnu á skipum sínum, og telja það jafnvel fyrir neðan virðingu sína, nema þá helst vélaliðið, eru þó ekki alveg saklausir af því að hafa dregið fram málningarpensilinn og rúlluna einhvern tíma og ritað skips- heiti sitt annars staðar en á eigið skip. Íslenskir togarasjómenn sem sóttu Vestur- Grænland heim undir lok sjötta áratugar síð- ustu aldar, fundu sumir hjá sér þörf fyrir að skilja eftir sig spor um viðveru sína í landi. Slíkt mátti til dæmis sjá á klöppum við inn- siglinguna til Færeyingahafnar, en á með- fylgjandi ljósmynd má til dæmis greina mál- uð íslensku togaranöfnin; Akurey - Gerpir - Jón Þorláksson - Marz - Skúli Magg (Skúli Magnússon)- Þormóður goði og Þorkell máni. Auk fjölda annara þjóða skipsheita. Ártöl sem eru læsileg á myndinni eru frá 1957 til ´60. Má ef til vill enn sjá menjar á klöppum úti fyrir Færeyingahöfn um veru íslenskra togarasjómanna þar fyrir um sextíu árum síðan? GAMLA MYNDIN Hafliði Óskarsson Myndina tók Guðmundur Daníelsson skipverji b.v. Pétri Halldórssyni RE.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.