Litli Bergþór - 01.06.2021, Qupperneq 3

Litli Bergþór - 01.06.2021, Qupperneq 3
Litli-Bergþór 3 Formannspistill Ég vil byrja á að þakka öllum, sem koma að starfi Ungmennafélagsins með einum eða öðrum hætti, kærlega fyrir vel unnin störf. Það eru ekki margir sem koma að þessu starfi og flestir hafa meira en eitt hlutverk innan félagsins. Þannig að hver og einn hefur nóg af verkefnum. Erum við í stjórn félagsins rosalega þakklát ykkur fyrir alla þessa vinnu, sem er öll unnin í sjálfboðavinnu. Nú hljóta allir að vera sammála um að Ungmennafélagið eigi að vera virkt, það eigi að bjóða uppá íþrótta­ æfing ar sem henti flestum iðkendum ásamt öllu öðru starfi sem félagið býður uppá. En öll þessi vinna liggur á herðum fárra. Mæting á aðalfundi félagins síðustu ár hefur verið afar dræm og í raun ekki aðrir mætt en þeir sem starfa fyrir félagið. Ég ætla að leyfa mér að segja að með þessu er öllum þeim sem vinna í sjálfboðavinnu fyrir félagið ekki sýnt mikið þakklæti fyrir þeirra störf. Aðalfundur er fullkominn vettvangur til þess að koma fram með hugmyndir, ræða hvað er gott og hvað mætti betur fara. Við í stjórn aðaldeildar skoðum allar leiðir til þess að létta undir með þeim sem starfa fyrir félagið og lögðum við nú fyrir aðalfund tillögu um að útvista bókfærslu og ársreikningum allra deilda innan félagsins. Mun aðaldeild standa straum af kostnaði sem af því hlýst. Var tillagan samþykkt. Nú er það svo að ég bý og starfa á höfuðborgarsvæðinu og hef því átt erfitt með því að sinna þessu starfi eins vel og ég myndi vilja, en reyni mitt besta á meðan enginn annar fæst til að gegna formannsembættinu. En ef ég tala nú á jákvæðari nótunum þá hefur það í töluverðan tíma verið draumur hjá okkur í félaginu, og þá sérstaklega mér, að stofna rafíþróttadeild. Í vetur hefur Bláskógaskóli í Reykholti haft rafíþróttir í vali undir dyggri leiðsögn Öglu Snorradóttur. Hefur hún stýrt þessu starfi mjög vel, ásamt því að fara með hópinn á sitt fyrsta rafíþróttamót í vetur. Þá hjálpaði hún nemendunum að stofna sína eigin rafíþróttadeild, sem heitir Biskuparnir, og er með eigin stjórn og samþykktir. Sótti þessi deild um aðild að Ungmennafélaginu og er nú orðin að deild innan félagsins. Á döfinni hjá deildinni er að óska eftir inngöngu í Rafíþróttasamband Íslands og keppa á öðru rafíþróttamóti í sumar. Svo í framhaldinu verður fundinn aðili til þess að sinna þjálfun og fræðslu. Íþróttadeild hefur á haustönn boðið uppá fótbolta, frjálsar, fimleika, Þrek og Yoga svo flestir ættu að hafa fundið sér eitthvað við hæfi. Áfram hafa iðkendur svo keppt undir merkjum ÍBU – Uppsveitir á hinum ýmsu fótboltamótum. Við vonum öll að nú á haustönn hafi Covid-19 og samkomutakmarkanir í síðasta sinn haft áhrif á starf Ungmennafélagsins. Kristinn Bjarnason lét af störfum sem gjaldkeri leikdeildar og í hans stað kom inn Sigurjón Sæland. Þökkum við Kristni fyrir sín störf á sama tíma og við bjóðum Sigurjón Sæland velkominn til starfa. Leikdeildin hefur ákveðið að gera tilraun með að setja upp leiksýningu að hausti til, þar sem veður hefur oft haft áhrif á mætingu eftir áramót. Er það spennandi tilbreyting og vonandi að það gangi vel. Nú er ritnefnd að ljúka við fyrra blað Litla-Bergþórs á þessu ári. Veit ég að blaðið verður hlaðið skemmtilegu og fræðandi efni og hlakka til þess að fá það í hendurnar. Ritnefnd má svo sannarlega vera stolt af flottu blaði. Að lokum vil ég minna á fésbókarsíður félagsins þar sem hægt er að finna hinar ýmsu upplýsingar um starf félagsins: Íþróttadeild Umf-Bisk, Litli-Bergþór. Blað ungmennafélags Biskupstungna og Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna. Með kærri kveðju og ósk um gleðilegt sumar, Oddur Bjarni Bjarnason, formaður. Af hverju spurði enginn mig? Ég væri til í að vera formaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.