Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 29

Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 29
Litli-Bergþór 29 Jafnlaunavottun. „Bláskógabyggð hlaut í febrúar jafnlaunavottun, sem er staðfesting á því að jafnlaunakerfi sveitarfélagsins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði“. Nýir eigendur að lögbýlum í Skálholtssókn. Breyting hefur átt sér stað á eignarhaldi og ábúð nokkurra lögbýla í Laugarási og nágrenni og viljum við nota þetta tækifæri og kynna nokkra þessara nýju íbúa sveitarfélagsins um leið og við óskum þeim velfarnaðar. Fyrst er að telja að þann 1. júní 2020 keyptu Anna Margrét Elíasdóttir, bókari og frístundabóndi, og Árni Ingason, sem vinnur hjá Keracis, Kvistholt (áður í eign Drafnar Þorvaldsdóttur og Páls M. Skúlasonar) og búa þau þar. Síðastliðið sumar fluttu Ólöf Kristjánsdóttir og Ólafur Gunnarsson, ásamt Gabríel syni þeirra, að Helgastöðum 1 (áður í eigu Jóns Sigurbjörnssonar). Þau höfðu búið í Bandaríkjunum í um tuttugu ár en njóta nú sveitasælunnar á Helgastöðum. Þá fluttu Anna Svava Sverrisdóttir og Úlfar Örn Valdimarsson í íbúðarhúsið að Laugargerði (áður í eigu Fríðar Pétursdóttur), í ágúst 2020. Þau starfa að myndlist og hafa verið að koma upp vinnustofu í aðstöðuhúsi sínu. Þar er ætlunin að taka á móti gestum og gangandi. Geysisbúðirnar loka. Geysisbúðunum, 6 að tölu, þ.m.t. Geysir shop í Haukadal, var lokað 2. febrúar 2021 og öllum starfsmönnum sagt upp. Hótel Geysir hefur nú keypt allar vörubirgðirnar af þrotabúinu og hyggst reka áfram verslunina á Geysi auk þess að þróa nýja bað­ og snyrtivörulínu. Sköpum saman. Undanfarin ár hefur hópur kvenna hist reglulega og unnið að margvíslegri sköpun, meðal annars má nefna leirgerð og ýmiskonar prentlist. Covid­19 veiran hefur sett sitt strik í reikninginn hvað samveru varðar en nú eru þær byrjaðar að hittast á ný og margt skemmtilegt verður gert á næstu vikum og mánuðum. Gestakennarar hafa komið og munu halda því áfram. Áherslan er lögð á samveru, sköpun og fræðslu af ýmsum toga. Stefnt er að samverustundum tvisvar sinnum í mánuði og að meðlimir hópsins skiptist á að bjóða heim til sín þar sem aðstæður leyfa. Vatnsmál í Laugarási. Að morgni 10. febrúar áttuðu nokkrir íbúar Laugaráss sig á kaldavatnsleysi í húsum sínum. Kom í ljós að lögn hafði farið í sundur og fljótlega var hafin viðgerð á henni. Eftir því sem leið á daginn urðu garðyrkjubændur smeykir því fljótt tók að minnka í vatnstönkum býlanna og fór svo að óska þurfti eftir tankbíl frá sveitarfélaginu með vatn og var vel tekið í það. Kom Bjarni Daníelsson á bíl slökkviliðsins og fyllti á tanka hjá þeim bændum sem þess óskuðu. Viðgerð lauk um kvöldið og allt fór vel. Leitað að heitu vatni fyrir Reykholt og Laugarvatn. Eftir mikla uppbyggingu gróður­ húsa í Reykholti á síðustu misserum, hefur á álagstímum borið á heitavatnsskorti þar þrátt fyrir bætta nýtingu vatnsins í gróðrarstöðvum. Á Laugarvatni eru einnig vandræði með heita vatnið vegna útfellinga. Samkvæmt Helga Kjartanssyni oddvita hefur sveitarstjórn því fengið Íslenskar Orkurannsóknir (ÍSOR) til að skoða álitlega staði í nágrenni þorpanna til að bora eftir meiru af heitu vatni. Hagsmunafélag Laugaráss. Þann 3. febrúar síðastliðinn var efnt til íbúafundar í Slakka í Laugarási, jafnframt var íbúum gefinn kostur á að sækja fundinn á netinu. Á fundinum var ákveðið að stofna hagsmunafélag á formlegum fundi og var skipaður hópur til undirbúnings stofnunar þess. Búið er að semja drög að samþykktum Hagsmunafélags Laugaráss og framundan er boðun stofnfundar þess. Björgunarsveit Biskupstungna. Samkvæmt Sigurjóni Pétri Guðmundssyni hefur lítið verið um að vera hjá Björgunarsveitinni í vetur, enda snjólétt og góðviðrasamt. Þó fóru nokkrir félagar til gæslu við eldstöðvarnar á Reykjanesi á fyrstu dögum gossins í lok mars og voru eina nótt, en annað félagsstarf hefur verið í lágmarki vegna Covid 19. Umhverfisvænt varmaver á Efri-Reykjum. Við borholuna á Efri­Reykjum hefur nýlega risið myndarlegt hús, nokkru stærra en gamla dæluhúsið sem reist var af Hitaveitu Hlíðamanna Pétur, Ási og Krissi á vakt við eldstöðvarnar á Reykjanesi í mars.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.