Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 27
Litli-Bergþór 27
vinna og voru það „tenorarnir þrír úr Tungunum“,
þeir Kjartan Helgason, Magnús Kjartansson
og Ragnar Hjaltason sem unnu keppnina með
lagið „Reykholt State Of Mind“. Var lagið sent á
umsjónarmenn USSS (Undankeppni söngkeppni
Samfés á Suðurlandi).
USSS var í ár streymt beint af youtube og fara
sigurvegarar í þeirri keppni síðan á söngkeppni
Samfés (Samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi) sem
haldin er í maí. Zetor hefur í nokkur ár farið á
söngkeppni Samfés og samfésballið, en nú er
þetta í þriðja sinn sem okkar krakkar komast
ekki á viðburðinn. Fyrst var vitlaust veður, síðan
Covid.
Vorið 2020 náðum við í félagsmiðstöðinni að
fara saman í ferð til Reykjavíkur, í skemmtigarðinn
í Grafarvoginum. Þar spiluðum við m.a. kubb,
strandblak og frispígólf og grilluðum á eftir.
Umsjón með starfinu í félagsmiðstöðinni Zetor
hafa þau Ragnheiður Hilmarsdóttir tómstunda- og
félagsmálafræðingur, Hörður Óli Guðmundsson
í Haga og Elías Bergmann Jóhannsson úr Þing-
vallas veitinni. Gerður Dýrfjörð sem unnið hefur
með Zetor frá 2015 lét af störfum nú í lok mars.
Ragnheiður, Hörður og Elías.
Umsjónarmennirnir Elías, Ragnheiður og Höddi á búningakvöldi Zetor
á öskudaginn.
Verslun og bensínafgreiðsla
Opið kl. 9:00 til 20:00
Allar almennar matvörur og olíur