Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 50

Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 50
50 Litli-Bergþór Barnakórinn, Kammerkór Suðurlands og Raggi Bjarna á aðventutónleikum 2007 ásamt Gunnari Þórðarsyni og hljómsveit Hjörleifs Valssonar. Barnakórsenglar á aðventutónleikum 2007: Íris, Áslaug Alda, Ástrún og Margrét Björg. Minningar frá stofnun Barnakórs í Biskupstungum 1991 Það var mikið lán að fá hann Hilmar Örn Agnarsson ráðinn haustið 1991 sem dóm­ organ ista í Skálholti og er hægt að þakka sr. Guðmundi Óla Ólafssyni það. Sr. Guð­ mundur Óli var búinn að binda það fastmælum að ráða Hilmar Örn til starfa þegar hann kæmi úr námi. Við Ólafur fermdum okkar elsta barn á hvítasunnunni árið 1992. Það var svo dásamlegt að vera við athöfnina. Hilmar hafði komið litla barnakórnum fyrir í Maríu­ stúkunni og þar sungu þau áður en athöfnin hófst. Dásamlegt að hlusta á börnin syngja með sínum barnaröddum fyrir fjölskyldurnar sem voru að koma sér fyrir í kirkjunni. Þetta var alveg nýtt og svo dásamlega fallegt. Foreldrar og aðstandendur barnanna flykktust í kirkjuna á allar athafnir sem börnin þeirra voru látin syngja við. Skálholtsstaður lifnaði við. Tungnamenn flykktust í kirkjuna. Þetta var stórkostleg breyting fyrir staðinn og hug íbúanna til Skálholts. Hilmar Örn gerði barnakórinn að kór Reykholtsskóla og Skálholtsstaðar. Hann fékk að æfa kórinn í skólanum á skólatíma og seinna líka eftir skóla. Það gerði það að verkum að flest börn tóku þátt í kórastarfinu og þeirri gleði sem það gaf. Hilmar Örn var og er mikill listamaður og oft kominn langt framúr sér varðandi hugmyndir og skipulag. Hann gleymdi sér líka stundum, hafði í svo mörg horn að líta. Það varð til þess að stundum var hann talaður niður fyrstu árin, óskipulagður, óstundvís,...... En sá hæfileiki og fallegi andi sem Hilmar Örn bar með sér var svo mikils virði að það varð að horfa á það frekar en telja upp lesti. Og tímastjórnun hans lagaðist með árunum. Við stofnuðum því foreldrafélag Barnakórsins og fékk ég að vera formaður fyrstu árin. Þetta var mjög mikilvægt því við gátum alltaf rétt umræðuna við, dregið upp kosti Hilmars en gert lítið úr ókostunum. Við héldum því gjarnan utanum skipulag en Hilmar sá um að þjálfa börnin og leika við þau. Ég vil minna á þátt Hólmfríðar eiginkonu Hilmars á þessum tíma. Hún fékk sannarlega að taka til hendinni og framlag hennar var einnig ómetanlegt. Vera með um helgar í Sumarbúðum Skálholts, baka fyrir börnin, gera pitsur og standa í praktískum málum. Hún var alltaf með en við hin foreldrarnir gátum skipst á að vera til halds og trausts í þeim verkefnum sem Hilmar var stöðugt að finna upp og láta okkur hin gera. Drífa Kristjánsdóttir, Torfastöðum, Bisk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.