Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 4

Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 4
4 Litli-Bergþór Undanfarna mánuði hefur mikill órói verið í huga fólks vegna þeirra aðstæðna sem ríkja í heimsbyggðinni, baráttan við óvininn, COVID­19, á sér ennþá stað. Þegar ég hóf þessi skrif var farið að sjást til sólar og hægt var að slaka nokkuð á sóttvarnarreglum. Við finnum muninn þegar fólk getur farið að hittast aftur, því maðurinn er félagsvera sem þarfnast samveru við annað fólk. Góðu fréttirnar eru þær að vel gengur að bólusetja íbúa landsins og eftir því sem fleiri eru bólusettir þá eykst öryggi manna. Það er fleira en hræðsla við sjúkdóma sem veldur óróa. Ísland hefur myndast við síendurtekin eldgos og myndun landsins er enn í gangi. Sagt er að elsta berg ofan sjávarmáls sé um 16 milljóna ára gamalt. Því kemur það líklega engum á óvart þegar jörðin minnir á sig með tilheyrandi jarðskjálftum. Þetta hafa íbúar Reykjaness og nágrennis þurft að upplifa síðustu vikur og mánuði og loks kom að því jarðskorpan gaf sig og eldgos hófst við Fagradalsfjall í Geldingadölum, um kl. 20:45 þann 19. mars síðastliðinn. Um er að ræða lítið en virkilega fallegt eldgos sem hefur laðað að sér fjölda fólks sem margt hefur aldrei séð fegurra sjónarspil. Einn áhorfandi lýsir þessu þannig að á gosstaðnum komi fram nýjar tilfinningar sem hann þekkti ekki eða hefði ekki fundið fyrir áður, það eru mörkin milli þess að vera hræddur eða hugfanginn, eða kannski bæði. Þótt við, sem vitibornar mannverur, viljum og getum að miklu leyti haft áhrif á margt í umhverfi okkar og að með aukinni þekkingu eykst skilningur okkar á gangi náttúrunnar, þá verðum við að viðurkenna að við höfum enga stjórn á hinum stórkostlega skapandi mætti hennar. Skemmtilegasti tími ársins, að mínu mati, er hafinn. Vorið er komið, árstíð endurnýjunar og vaxtar. Einhvern veginn verður umhverfið virkara á vorin og við fögnum þegar við finnum geisla sólarinnar hita húð okkar eftir kaldan vetur. Á þessum tíma förum við í vorhreinsanir í kringum okkur, við finnum glöggt að öll náttúran lifnar við og við hlökkum til þess tíma þegar við getum dvalið meira úti, við hvers kyns áhugamál. Við erum þá hluti náttúrunnar. Arnór Karlsson, sem lengi var í ritstjórn Litla­Bergþórs og formaður hennar um langt árabil, skrifar m.a. svo í ritstjórnargrein sinni, sem birtist í Litla­ Bergþór þann 1.6. 1991 eða fyrir réttum þrjátíu árum síðan: Svo sem von er til eru umhverfismálin ofarlega í huga margra nú á vordögum. Augu fólks eru nú að opnast fyrir því að snyrtilegt umhverfi hefur mikið gildi. Stundum virðist sem það sé aðallega í þágu gesta að hafa staði aðlaðandi. Ekki er að efa að „glöggt er gests augað“, og þar sem markmiðið er að fá sem flesta þeirra, hefur mikið að segja að þeim finnist umhverfið fallegt og sjái að þar er vel um gengið. Ekki má þó vanmeta gildi vinalegs umhverfis fyrir þá er við það búa að staðaldri. Flestum líður betur þar sem allt er í röð og reglu og þykir vænna um staði þá er dvalið og starfað er á, ef þar er snyrtilegt. Þegar ég flutti í Laugarás var rætt um hann sem ,,hverfið“ en fljótlega var farið að kalla svæðið „þorpið í skóginum“ og það var vissulega sannmæli. Hagsmunafélagið á staðnum hafði lengi beitt sér fyrir fegrun staðarins með ýmsu móti og ekki síst með gróðursetningu trjáa á opnum svæðum. Garðyrkjubændur voru einnig duglegir að gróðursetja tré á lóðamörkum til skjóls fyrir gróðurhús sín og í mörgum tilfellum var síðar komin tvöföld eða margföld röð trjáa á mörkum lóða. Með tíð og tíma hefur ásýnd þorpsins breyst, sums staðar virðist lítið hafa farið fyrir fyrir snyrtingu og grisjun trjáa og runna og er það miður. Við vitum vel að röng umhirða eða jafnvel engin kemur niður á heilbrigði gróðursins. Veðurfar undanfarinna missera og ára hefur leikið trén okkar illa, víða hafa þau látið á sjá, skekkst eða jafnvel rifnað upp með rótum. Sums staðar er gróður farinn að hamla nauðsynlegu útsýni vegfarenda. Ef ekkert er að gert getur illa hirtur gróður eða rangt staðsettur valdið óþægindum gagnvart gangandi umferð, tafið snjómokstur og aðra þjónustu á götum og gönguleiðum. Þeir mættu líka slá brekkurnar í Bláfelli Ritstjórnargrein
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.