Litli Bergþór - 01.06.2021, Blaðsíða 58
58 Litli-Bergþór
þjónustu, sem ekki var í hans starfssamningi.
Niður staðan var núningur í samskiptum, skortur
á upplýsingaflæði og samstarfi.
Einhvern tímann fyrir 2006 kemur upp
sú hugmynd hjá stjórn Skálholts að þessum
samningum við organistann þurfi að breyta.
Organ ist inn ætti að þjóna þeim sem borgaði
honum laun, ekki sveitasöfnuði í kringum kirkj
una. Auk þess höfðu þeir og söngmálastjóri
aðrar hug myndir en Hilmar um hámenningarlegt
tónlistarlíf í Skál holti, en þar þóttu kórar Hilmars,
með „ama tör“ söngfólki úr nágrenninu, greinilega
ekki við hæfi. (Í því sambandi má benda á að orðið
amatör þýðir „sá sem elskar“!)
Í grein frá Stjórn Skálholts, sem birtist í Morgun -
blaðinu 14. okt. 2006 um tónlistarstarf í Skálholti,
(„Staða tónlistarmála í Skálholti“), er sagt berum
orðum í drögum að starfslýsingu væntan legs
organ ista, að „Þjón usta hans við aðrar kirkj
ur Skálholtsprestakalls er óháð starfi hans á
staðn um og ekki hluti af því starfi sem hér er
fjallað um“... Skálholtssókn átti þó, og á enn,
kirkjusókn í Skálholti og þess vegna „semur
stjórn Skálholts við sóknarnefnd um hugsan lega
þátttöku í því“. (þ.e. starfi organistans fyrir Skál -
holts sókn. Letur breyting höfundar.)
Við kórfélagar stóðum alltaf í þeirri trú að við
værum að þjóna Skálholtsdómkirkju og söfnuði
hennar, sem skiptist í fjórar sóknir. Það, að
stjórn Skál holts kæmi söfnuðurinn ekkert við,
kom okkur því algjör lega í opna skjöldu.
En, sem sagt, að mati Stjórnar Skálholts var
Hilmar ekki að vinna fyrir Skálholtsstað, með
upp bygg ingu tón listarlífs hjá sóknarbörnum
Skálholtsdómkirkju og útkirkna hennar. Því var
tekið það ráð að segja honum upp og standa að
skipulagsbreytingum í Skál holti í sam ráði við
söngmálastjóra þjóð kirkj unnar. Ráða skyldi
organista sem starfaði eingöngu fyrir Skál holts
stað og byði upp á meiri „menningar lega“ tón -
listariðkun.
Því miður kynntu forsvarsmenn staðarins og
söngmála stjóri sér ekki starf Hilmars í héraði,
ræddu ekki við hagsmuna aðila í sveitinni, for
eldra kórbarna, kór félaga, sóknar nefndir né
organ ist ann sjálf an, áður en honum var sagt upp.
Gerðu sér ekki grein fyrir þeirri velvild sem
Hilmar hafði aftur byggt upp í samfélaginu í garð
Skálholtskirkju með barna- og kórastarfi sínu,
eftir álitsmissinn sem kirkjan og kirkjunnar menn
urðu fyrir við uppsögn gamla Skálholtskórsins
1988.
Það fór því eins og tuttugu árum fyrr. Kórfólkið
hvarf margt úr kórnum og kom ekki aftur, kirkju
sókn minnkaði enn.
Já, hvað er kirkja án sóknarbarna og safn
aðar starfs? Það eru spurningar sem við Tungna
menn höfum spurt okkur oftar en einu sinni, – og
margir spyrja enn.
En þetta er göm ul saga. Fram tíðin er okkar.
Tungnamenn eru góðir söngmenn upp til hópa
og vonandi fjölmenna þeir aftur í Skálholtskórinn
með vinum okkar úr nágrannasveitarfélögunum,
þar sem vel verður tekið á móti þeim með kærleika
og gleði. Það er ekkert eins gefandi og söngur í
góðum og sam heldnum kór með góðum kórstjóra.
Og barnakórastarfið, vonandi finnst einhver
eldhugi til að taka aftur að sér barnakór í
grunnskólanum.
Skálholts dómkirkja er dásamlega falleg kirkja
með sín ómetan legu listaverk og þar inni er góður
andi, alltaf. Og hvergi er betra að syngja en þar. Ég
efast ekki um að þeir sem stýra starfi í Skálholti í
framtíðinni sjái verðmætin í fólkinu sem býr hér
í Bláskógabyggð og öðrum sveitum í kringum
Skálholtskirkju og starfi þess fyrir kirkjuna.
Vonandi heyrir aðgreining sóknarstarfs presta
kallsins og Skál holts staðar sögunni til – og dóm -
kirkjan okkar í Skálholti verði helgistaður fyrir
okkur öll og samstarfsvettvangur heimamanna og
listafólk úr höfuðstaðnum og annarsstaðar að af
landinu eða heiminum. Það er eitthvað sem ég
myndi vilja sjá.
Geirþrúður Sighvatsdóttir.
(P.S. Höfundur flutti heim í Tungurnar í nóvember
1989 og var varla búin að taka upp úr töskunum
þegar Ágústa heitin Ólafsdóttir í Úthlíð dró mig
á kór æfingu fyrir jólamessurnar. Hálfum mánuði
síðar, í janúar 1990 var ég ásamt Val Lýðssyni
klöppuð inn í kórstjórn og var viðloðandi stjórn
kórsins til 1994. Í júní 2005 kom ég aftur inn í
stjórn kórsins og var til september 2008. Ég
þekki því af eigin raun nokkuð vel til upphafs og
endaloka tónlistarstarfs Hilmar Arnar í Skál holti
og starfsins þar á milli sem kórfélagi og móðir
tveggja barna í Barna og kammerkór Biskups
tungna. GS)
Heimildir: Fundargerðarbækur kórstjórnar, árs
skýrslur, reikningar, söngskrár og önnur kórgögn
1991-2008.
Heimildir frá 2006: Greinargerðir frá sóknar
nefnd Skál holts presta kalls, söng mála stjóra,
Stjórn Skálholts, Smára Ólasyni, Samn ingur
Hilm ars frá 2003 og Samningsdrög FÍO/FÍH við
Skál holtsstað f.h. Hilmars 2006, Greinarskrif
ýmis og blaða greinar um upp sögn Hilmars
Arnar frá 2006.