Litli Bergþór - 01.06.2021, Síða 11
Litli-Bergþór 11
ævintýri tengd ar mynd list og mál rækt var þemað
í vetur hjá Krumma klettum og Lambadal. Þau
fengu að gera hin ýmsu lista verk tengd bókunum
og héldu síðan sýn ingu á skrifstofu Blá skóga
byggðar og í Íþrótta miðstöðinni í tengslum við
Dag leikskólans í febrúar.
Á öllum deildum gefum við frjálsa leiknum
góðan tíma og hefur hann þróast og dafnað vel
í vetur. Eldri börnin hafa forskot á þau yngri og
eru þau meira en til í að leiðbeina. Það þarf t.d.
að læra að skiptast á og deila, sýna samkennd,
virðingu og vináttu. Hlutverkaleikurinn, og þá
helst heimilisleikur, er alltaf
vinsæll. Þar er hægt að spegla
sig í ýmsum hlutverkum, s.s.
að vera mamman, pabbinn eða
hundurinn.
Í Smáholti dvelja yngstu nem
endur okkar. Þar læra þau sín
fyrstu skref í leikskólanum
og eru dugleg að reyna og
gera sjálf. Við hvert skref
eflist sjálfstraust þeirra.
Starfið þar einkennist af
leik, gleði, umhyggju og
að tilheyra stórum hóp og
þekkja sjálfan sig, vera
virkur þátttakandi, hlæja
og leika saman. Vellíðan
barnanna og framfarir eru
það sem starfið snýst um
og sameinar starfshópinn. Að fá að taka þátt í lífi
og starfi barnanna er það sem gefur starfinu gildi.
Það eru forréttindi að vinna með börnum og fá
að upplifa heiminn með þeirra augum. Börnin í
Álfaborg hafa svo oft sýnt og sannað að þau eru
fjölhæf og skapandi, um það vitna öll listaverkin
sem þau hafa búið til í vetur. Við starfsfólk
leikskólans Álfaborgar óskum ykkur gleðilegs
sumars og þökkum ykkur fyrir heillaríkt og gott
samstarf á liðnum vetri.
Guðbjörg Gunnarsdóttir,
verkefnastjóri
í Leikskólanum Álfaborg.
Börnin á Smáholti í ökuferð í kerru sem Lionsklúbburinn
Geysir gaf leikskólanum.
Börnin í Álfaborg eru dugleg að föndra.
Fjör á öskudag á Lambadal
Hundur?
Ég vil ekki vera
hundur. Ég er tröll.