Litli Bergþór - 01.06.2021, Síða 18

Litli Bergþór - 01.06.2021, Síða 18
18 Litli-Bergþór Veturinn 1948 kemur ríðandi mað ur vestan fyrir og stans ar örstutt við bakk ann á Tungu fljóti á móts við Kjarn ­ holt in. Honum liggur auð sjáan­ lega mikið á. Bregð ur sér örstutt af baki, gerir klárnum árennilegra með því að stappa niður verstu klaka skarirnar og stígur svo fim­ lega á bak aftur. Knap inn og hest­ urinn báðir al van ir að þvera vötn. Það þurfti ekki að berja fóta­ stokkinn áður en þeir stungu sér í og yfir kolmórauðan jökulinn. Heimilis fólkið í Kjarnholtum stendur í varpa og mænir spurult í átt að komumanni er ríður geyst í hlað. Þar var kominn Sigurður Greipsson í Haukadal. Var brýnna erinda við heimasætuna Ingibjörgu Einarsdóttur. Bað hana endilega að koma konu sinni og húsfrú, Sigrúnu Bjarnadóttur til hjálpar í þénustu við skólann. Holta-Stína er hafði gegnt starfinu hefði í skyndingu verið heim kölluð vegna veikinda. Hún var Rangæingur úr Holtunum. Var í nokkur ár aðstoðarstúlka við Geysi, þá mánuði er skólinn starfaði. Biðu strákarnir í Tungunum komu hennar jafnan með tilhlökkun. Þetta var upphaflega og fyrsta útkall Ingibjargar að Geysi. Hún átti ásamt fleiri Tungnastúlkum eftir fjölmörg útköll við allskonar veislur og starfa við hótel þeirra hjóna á Söndunum.. Þennan vetur var tekin sérstök mynd af Tungnafólki er þar dvaldist. Við hlið Ingibjargar stendur frænka hennar Dóra frá Holtakotum. Hún var þarna gestkomandi hjá Hlíf systur sinni sem því miður er ekki með á þessari mynd. Hlíf hafði þann eina starfa að gæta Más Sigurðs sonar þennan vetur og hafði marg ítrekuð og ströng fyrirmæli um að mega aldrei af honum líta. Var öllum er til þekktu ljóst að alvarleikinn réðst af þeim miklu raunum er foreldrar hans urðu fyrir áður, er þau misstu tvö af börnum sínum á afar sviplegan hátt. Tungnafólk á Geysi 1948 Af fésbókarsíðunni „Biskupstungur gamlar myndir“ Einar í Kjarnholtum Aftan f.v.: Eysteinn Þorvaldsson Lambhúskoti, Sigurður Erlendsson Vatnsleysu, Gunnar Steffensen Torfastöðum. Framan f.v.: Greipur Sigurðsson Geysi, Ingimar Karlsson Gýgjarhólskoti, Ingibjörg Einarsdóttir Kjarnholtum, Dórothea Einarsdóttir Holtakotum og Gísli Einarsson Kjarnholtum. Mynd úr myndasafni Ingibjargar Einarsdóttur.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.