Litli Bergþór - 01.06.2021, Page 28
28 Litli-Bergþór
Hvað segirðu til?
Fréttir úr Tungunum frá janúar til maí 2021
Veðurpistill frá desember til loka maí 2021.
Í heildina var veðrið í vetur tíðindalaust,
snjólétt, færð góð en umferð lítil útaf Covid19.
Eftir nokkra frostdaga í byrjun desember
hlýnaði með hvassri austanátt fram undir jól. Þurrt
var hér í uppsveitum Sunnanlands en ausandi
rigning á Austfjörðum, sem olli aurflóðum á
Seyðisfirði 15. desember. Fyrir jól frysti aftur, var
umhleypingasamt um jólin, frost og fallegt veður
um áramótin.
Eftir áramót var hitastig flesta daga í kringum
frostmark til vors, engar öfgar í hvoruga áttina.
Nokkurra daga frostakafla gerði þó á auða jörð,
fyrst í lok janúar og svo í lok mars og fyrripart
apríl, svo frost hljóp nokkuð í jörð. Þótti tíðindum
sæta að í apríl snjóaði í einn dag!, en ekki olli það
neinni ófærð. Um miðjan apríl gerði smá vætu og
síðan þokkalegt vorveður fram til mánaðarmóta
með tilheyrandi þrastaklið og lóukvaki. En
þar með var draumurinn búinn og maí heilsaði
með nöprum norðanþræsingi. Heiðskírt og sól
að deginum, en hiti rétt undir frostmarki flestar
nætur. Þurrt, svo gróður tók ekki við sér fyrr en
30. maí, þegar loks fór að rigna og hlýna.
Eldgos hófst í Geldingadölum á Reykjanesi
19. mars, þakka má norðanáttinni
að gosmóða hefur lítið borist í
uppsveitir enn sem komið er,
en jarðvegsfok var í austan
hvassviðri í lok maí.
Friðheimar fá verðlaun. Á
degi Ábyrgrar ferðaþjónustu, þann
7. janúar, veitti forseti Íslands hr.
Guðni Th. Jóhannesson garðyrkjubýl
inu og hestamiðstöðinni Friðheimum
í Reykholti hvatningarverðlaun
Ábyrgrar ferðaþjónustu og tóku þau
Knútur Rafn Ármann og Helena
Hermundardóttir við verðlaununum.
Meðal atriða í rökstuðningi dóm
nefndar segir, að Friðheimar eru
fjölskyldufyrirtæki, sem hefur
vaxið og dafnað í gegnum árin með
það markmið að ganga vel um og virða náttúruna.
Umhverfismál eru eigendum hugleikin, þau leggja
mikla áherslu á réttindi starfsfólks, nýliðaþjálfun
og fræðslu. Á síðasta ári var lögð áhersla á að
halda öllu starfsfólki og byggja upp sterka innviði
fyrir bjartari tíma. Í ferðaþjónustunni skapa þau
gestum sínum einstaka upplifun, sem tengir
saman marga þætti og styður við hugsun um að
nýta landið á sjálfbæran hátt. Þau fræða gesti sína
um ræktunina og um sögu ylræktar á Íslandi, og
það er lögð áhersla á verslun í héraði, nýsköpun,
aðferðir til að minnka matarsóun og kolefnisspor.
Fyrstu tómatarnir tíndir í nýju gróður
hús unum í Friðheimum. Þann 20. janúar, átta
mánuðum eftir fyrstu skóflustungu að 5.600
fermetra nýjum gróðurhúsum í Friðheimum, voru
fyrstu tómatarnir tíndir af og settir á markað.
Reiknað er með um 500 tonna ársframleiðslu úr
nýju gróðurhúsunum á Friðheimum.
Knútur sýnir kvenfélagskonum nýja tækni við tómatarækt, með aðstoð
lyftara á brautum, í nýju gróðurhúsunum í Friðheimum.
Eru
engar fréttir nema
frá Friðheimum?