Litli Bergþór - 01.06.2021, Síða 63

Litli Bergþór - 01.06.2021, Síða 63
Litli-Bergþór 63 Síðasti bóndinn selur Biskupstungnahreppi Síðasti bóndinn í Hólum, var Guðjón Helgason og bíður frásögn af hans búskapartíð betri tíma. Aftur á móti verður að geta þess hér að 14. maí árið 1959 er hann skráður bóndi að Hrauni í Grímsnesi. Eru forráðamenn Biskupstungnahrepps einmitt staddir þar hjá Guðjóni, til þess að ganga frá kaupum á Hólajörðinni er ennþá var í hans eigu. Gengið var frá kaupsamningi er hljóð aði upp á umsamið kaupverð kr. 90.000,­. Í sam komulaginu er fyrirkomulag um yfir töku skulda tilgreint í all löngu máli, ásamt því að mismunur upp á krónur 13.806,84 voru greiddar við undirritun. Undir skjal þetta hafa ritað f.h. selj ­ anda Guðjón Helgason og f.h. Bisk - ups tungnahrepps Skúli Gunn laugs­ son. Vit undarvottar eru þeir Erl endur Björns son og Sveinn Skúlason.2 Harmur í baðstofunni á Hólum Mikill harmur hafði átt sér stað í litlu baðstofunni í Hólum. Hafði lent í hlut húsfrúarinnar sjálfrar, Sigríðar Guðmundsdóttur, að taka einsömul á móti og aðstoða dóttur sína við fæðingu andvana barns. Vegna fyrri starfa bjó hún að læknisfræðilegri reynslu og hafði gengið fumlaus að öllum undir­ búningi og aðhlynningu dóttur sinnar, er lauk svo með þessari nístandi og óendanlega sáru rauna­ stund. Lengst frá sjó og inn við efstu sjónarrönd við öræfi landsins hafði hún nýverið valið fjölskyldu sinni stað. Hún hafði viljað komast sem allra lengst í burtu frá solli og syndum manna. Dóttirin hafði svo sannarlega hlotið þá gjöf að verða svo af Guði gerð, þótt fullorðin væri, að halda sínu barnslega og hreina sakleysi umfram aðra menn. Sakleysi er hafði staðið varnarlaust frammi fyrir því sem orðið var. Fjölskyldan hafði nýverið komið sér fyrir og hafið búskap, í sárri fátækt, að Hólum í Biskups- tungum. Húsbóndinn, Guðmundur Einarsson var fjar verandi og vann útifrá, en Sigríður stóð fyrir búi og var einsömul heima með yngri börnin. Hún hafði ávallt notið mikilla samvista við Guð sinn og fann sig líklegast óvíða nær honum hafa komið en á þessu bæjarhlaði, þar sem stórbrotin fjallahringur og tign náttúrunnar kölluðu fram tilfinningar um „máttinn og dýrðina“ og nærveru Skaparans. Þau höfðu komið hér upp í Tungur frá Bræðra­ bóli í Ölfusi er þau höfðu áður átt búsetu um eitthvert skeið. Þar áður höfðu þau dvalist í sömu sveit, bæði að Hvammi og í Hveragerði um einhvern tíma. Þangað höfðu þau flust frá Hafnar firði þar sem þau höfðu átt sína upphaflegu heimilis festi. Sigríður starfaði hjá héraðslækninum í Hafnar­ firði og vann honum við hlið í umönnun sjúkl inga um ein hvern tíma, en Guðmundur stund aði sjó­ róðra og þá vinnu er til féll og þegar hún gafst. Ör lögin höguðu því þannig til í kreppunni miklu, um og eftir 1930, að Einar Gíslason í Kjarn holtum (afi höfundar) hafði, sér til björg- unar á krepputímum, reykt kjöt af öllum sínum sauðum og var þá oft á tíðum í söluferðum og í sérlega miklum tengslum við ýmsa, m.a. í Hafnar firði. Þar urðu upphafleg kynni hans og þeirra hjóna, Sigríðar og Guðmundar og byrjun á þeim örlagavef sem átti eftir að þróast í ævilanga vináttu. Einhverju síðar höfðu mál þróast þannig að Sigríður og Guðmundur voru orðin búsett í Ölfusinu. Einar átti hjá þeim reglulega viðkomu og þáði hjá þeim næturgistingu í Reykjavíkurferðum. Einhverju sinni færir Sigríður í tal löngun sína til að yfirgefa Ölfusið, vildi auðsjáanlega, einhverra hluta vegna, komast þaðan sem allra fyrst. Á þessum tíma er móðir Einars, Guðrún Sveinsdóttir orðin ekkja eftir Gísla Guðmundsson í Kjarnholtum. Í dánarbúi eftir hann voru til einar fimm jarðir í Tungunum, er hún hafði áform um að selja að einhverju leyti og var Hólajörðin ein af þeim. Það gerist svo á Gýgjarhóli þann fjórða júní 1942 að Einar í Kjarnholtum undirritar sölusamning fyrir hönd móður sinnar og Guðmundur Einars­ son stað festir með undirskrift sinni nafn kaup anda að jörðinni Hólum með öllum húsum, mat jurta- görðum og gæðum er jörðinni fylgja.3 Kaup verð eru krónur sex þúsund og eru kr 2.000,­ greidd ar Sigríður brýnir ljáinn. Góðir grannar í Upphólum.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.