Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 12
I Á línu frá Hólmavík Benedikt: Sjómennskan byrjaði á trillum á Hólmavík með Hans Sigurðssyni. Móð- ir okkar, Þórunn Benediktsdóttir, flutti til Hólmavíkur, þegar ég var innan við fermingu. Ég var þó lítið á Hólmavík. Fyrsta lögskráningin var á 38 tonna bát Kaupfélags Steingrímsfjarðar. Hann hét Brynjar ST 47, gerður út á línu, og ég var sjóveikur upp á hvern einasta dag. Við vorum mikið út af Hornbanka, út af Drangaskörðum og Ófeigsfirði, á Reykjarfjarðarálnum, fórum langt út, vatnaði í hálf fjöll eins og sagt var. Fjórir voru á bátnum, formaðurinn, mótoristinn, stýrimaður, og hásetinn var ég. Þórhallur var fyrst með bátinn, svo tók Benedikt Gabríel Egilsson við. Línan var dregin á spili, vélstjórinn eða stýri- maðurinn voru á goggnum eða á rúll- unni. Blóðgað var og hent ofan í lest. Þetta var þorskur, steinbítur, ýsa, hlýri, skata, bara öll flóran eða á maður að segja fánan, já, jafnvel skötuselur. Fórum út á kvöldin, lögðum línuna, biðum í 2– 4 tíma og vorum oft að draga um 4 leytið á morgnana. Í landi voru fimm beitingarmenn, beittu með smokkfiski, síld eða loðnu. Í hverjum bala eða bjóði voru 4 línur og 100–120 krókar á hverri línu eða yfir 400 krókar í bjóði. Fengum oft beitu frá Ísafirði, nóg beita, – að vísu var smokk- fiskurinn beztur og aldrei nóg af honum. Löndunarmálin voru aluminiumkassar, plastið var ekki komið. Við vorum að landa svona kl. 5 síðdegis. Þetta urðu ekki margir klukkutímar, þar til farið var út aftur. Engar Evrópureglur í þá daga! Höfðum með okkur skrínukost, eldavél var í bátnum til að hita kaffi, og stund- um var sett ýsa í pott. Svona lærðu strákar að vinna fyrir vestan í þá daga. Bátar á borð við Brynjar fórust margir fyrir Vestfjörðum á þessum árum. Vest- firðingar sóttu sjóinn fast, of fast. En það skiljum við ekki núna. Þarna eru stórhættulegar rastir, Látraröstin ill- ræmdust, en rastir reyndar út af hverjum firði, straumar inn og út úr fjörðum, hættulegir í vondum veðrum. Brynjar var af þeirri gerð báta, sem kölluðust Land- smiðjubátar; nokkrir voru smíðaðir eftir þessari teikningu, voru úr eik, góðir bát- ar. Á sumrin voru þeir á síld með einn nótabát. Þá voru 10–11 manns í áhöfn, nótin dregin inn á handafli. Ég var á Brynjari frá hausti og fram á vor, en fór ekki á síld á honum, en Haukur bróðir fór. Ég var messagutti á Skjaldbreið, sem þræddi hvert krummaskuð frá Reykjavík til Akureyrar; Herðubreið fór austur með landinu á móti, tók Vestmannaeyjar, Hornafjörð og svo áfram Austfirðina til Akureyrar. Elliði var sá fyrsti Benedikt: Var stutt á Skjaldbreið, því ég fékk pláss á togaranum Elliða SI 1 frá Siglufirði. Kristján Rögnvaldsson var þá 12 – Sjómannablaðið Víkingur Vænt þykir mér um síðutogaratímabilið - Rætt við Benedikt Brynjólfsson, togarasjómann - Aðrir þátttakendur: Haukur Brynjólfsson og Ólafur Grímur Björnsson – Fyrsti hluti – Hásetarnir Benedikt Brynjólfsson (viðmælandi okkar) og Niels Mor um borð í bv. Ólafi Jóhannessyni BA 77 í Patreksfjarðarhöfn. Ljósmynd: Benedikt Brynjólfsson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.