Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 25
þremur tugum ára, að ég fékk minn fyrsta lax, sennilega 11 eða 12 ára. Líklega var það í Hölkná. Þannig vildi til þennan dag að stálpaður hvolpur af bænum hafði elt okkur niður að ánni. Ég sinnti hundinum, lék mér við hann, lét hann sækja spýtu og bjó til hálsfesti úr sóleyjum sem ég skreytti hann með. Karlarnir voru að veiða í steikj- andi hitanum en ég hvíldi með hvutta í ofurlítilli kvos við ána. Þá kom pabbi og sagði að þeir ætl- uðu að ganga upp að fossi. Ég spurði hvort ég mætti ekki bara vera eftir hjá hvolpinum og fékk til þess leyfi: Ég yrði bara að passa mig á ánni, að fara ekki að vaða út í hana með kaststöngina mína. Ef ég vildi veiða og festi í botni þá ætti ég bara að slíta eða leggja stöngina á bakkann og bíða þar til þeir kæmu til baka en alls ekki reyna að vaða út að festunni á stígvélunum. Ég sá að pabbi var dálítið áhyggjufullur þegar þeir bjuggu sig til fararinnar en ég reyndi að sann- færa hann um að allt yrði í stakasta lagi. Hundurinn var skemmtilegur. Hann var kelinn og við nut-um þess að veltast um í sólskininu og hlusta á ána hjala niður undan slakkanum. Ég var hér um bil sofnaður þegar ég heyrði kallað frekjulegri röddu á snata. Skuggi á að giska 18 ára pilts vofði yfir okkur í kvosinni. Hann stóð uppi á brúninni með hendur á mjöðmum, svartur eins og skugginn með sólina að baki sér. Ég kom ekki upp orði, sagði þó kannski „blessaður“ og vissi ekki fyrr til en þessi stóri strákur hafði henst ofan til okkar. Hann sparkaði í kvið stálpaðs hvolpsins og reif hann upp á hnakkadrambinu. Komumaður gaf mér illt auga, henti litla hundinum upp í brekku í átt til bæjar og tautaði „hálfviti“. Ég sá hvorki strákinn né hvolpinn framar en vælið í hundinum bergmálaði í eyrum mér lengi dags á meðan sólin hélt áfram að skína linnulaust. Hrifningin mesta Þar með var hvolpurinn úr sögunni og ég sat einn eftir með veiðistöngina mína. Ég horfði niður eftir kvosinni sem lá eins og rennibraut að ánni. Hátt í lofti sá ég stóran fugl hnita hringi yfir einhverju sem hann hafði fundið og ég reis á fætur til að sjá betur. Líklega var þetta krummi að skoða afvelta á með riðuveiki því oftar en einu sinni höfðum við feðgar rekist á vankaðar kindur á hvolfi milli þúfna og sagt bændum frá því að loknum veiðidegi. Aldrei uppskárum við annað en illt augnaráð. Ég greip litlu veiðistöngina og gekk niður að ánni. Þarna var stór steinn á að giska tvo metra frá landi og fyrir neðan hann djúpur pollur. Grynningar með traustum malar- botni voru frá landi út að ofanverðum steininum og það flæddi ekki ofan í stígvélin þegar ég óð þangað í þremur skrefum. Ég lét spóninn dingla ofan í grængolandi dýpið undir steininum, fann skjótt fyrirstöðu, arkaði aftur í land og togaði silfraðan fisk upp úr rennandi vatninu. Hann fetti sig og bretti á grænu grasinu. Ég settist ofan á hann og barði hann í hausinn með grjóti. Þar með var það búið. Fyrsti lax ævinnar kominn á land og ekkert eftirminnilegt við það nema ef væru þessi fumlausu handtök, blóðið sem rann úr tálknunum og undarlegt hreistrið sem sat eftir á puttunum. Tveimur tímum síðar komu faðir minn og félagi hans ofan úr gljúfrunum. Ég lá milli svefns og vöku í kvosinni við ána með spenntar greipar ofan á brjóstinu og dinglaði krosslögðum fótum. Það var að verða kalt. Mennirnir störðu í forundran á hálfsofandi strákinn og fiskinn sem við hlið hans lá. Sjálfir höfðu þeir veitt ágætlega upp við fossinn en enginn lax á Ís- landi vakti jafnmikla hrifningu og laxinn minn þennan dag, þótt hann væri varla meira en 5 eða 6 pund. Ég sofnaði á bekknum aftur í gamla gula Bronconum á meðan þeir tóku niður tjaldið og spjölluðu saman lágværum rómi í næturhúminu. Ég rankaði varla við mér fyrr en daginn eftir þegar leggja átti laxana inn í Kaupfélagið og mér fannst sem ég heyrði lágvært ýlfur í umkomulausum hvolpi þegar hemlað var framan við kjötvinnsluna þar sem aflanum var skilað. Tilhlökkunin mesta Allt hefur breyst síðan þetta var: Það stendur ekki steinn yfir steini. Tækninni hefur fleygt fram og tíminn hefur flogið. Núna er ég orðinn miðaldra og á litla stúlku sem bráðum verður þriggja ára. Ég tel dagana og mánuðina þar til hún verður aðeins öruggari á fótunum og ég get farið með hana til veiða. Við munum ekki fara austur að Hofsá, Hafra- lónsá, Hölkná, Sandá eða Selá þar sem veiðihallirnar standa og ég maulaði sjálfur blautar samlokur á gúmmístígvélum fyrir svo fáum árum. Við höldum til heiða þar sem er varla að finna vegi og varla stendur hús. Við munum leiðast yfir kargaþýfið, horfa á fugla hnita hringi, heyra hrossagaukinn hneggja og stinga tjaldhælum okkar niður í lítilli kvos við bakkann. Segið svo að ekkert hafi breyst. Guðmundur Haukur Jónsson við Höll sumarlandsins. Eiríksjökull í baksýn. Baldur Sigurðsson og Guðmundur Haukur brosa framan í varginn. Sjómannablaðið Víkingur – 25

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.