Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 28
um. Sumarið 1959 var ég stýrimaður á b/v Hallveigu Fróðadóttur en skipstjóri var áðurnefndur Sigurður Þórarinsson, mikill sóma- og heiðursmaður. Við vor- um að veiðum við Vestur-Grænland og veiddum í ís. Vorum við búnir að reyna víða, þar á meðal á Nafnlausabanka, Friðrikshaabbanka, Damasbanka og Fiskinesbanka en þegar eftirfarandi gerðist vorum við á suðvestur-horni Fyllasbanka. Þegar veitt var í ís við Vestur-Græn- land var tíminn á veiðum skorinn við nögl vegna fjarlægðar frá heimahöfn. Þegar þetta gerðist áttum við aðeins eftir einn sólarhring á veiðum og vorum komnir með um það bil 80 tonn af karfa svo útlitið var ekki gott. Þá gerðist það. Mig dreymdi að ég væri í brúnni á Hallveigu og horfði frameftir skipinu. Sé ég þá hvar mikill brotsjór ríður yfir skipið svo allt fer í kaf og finnst mér brotið fara yfir brúna og hugsa með mér: Hún hefur sig aldrei upp úr þessu. Í sama bili ræsir kokkurinn mig. Þeg- ar ég kem upp í brú klappaði ég á öxlina á Sigurði skipstjóra og sagði: „Þetta verður fínn túr, Siggi minn.“ Sigurður leit á mig stórum augum og sagði: „Þú skalt þá redda því.“ Síðan rauk hann niður og skellti á eft- ir sér hurðinni sem var ólíkt honum. Hann var yfirleitt rólegur á hverju sem gekk. Ég hugsaði með mér, hvað er ég nú búinn að gera? Særa Sigga, nú sit ég fallega í því. Eins og áður er getið vorum við á SV- horninu á Fyllasbanka og það var sunn- an kaldi. Ég hífði upp trollið og það var smá-skaufi í. Í svona tilfelli hefði verið skynsam- legast að kippa suður á bóginn til þess að stytta leiðina heim en fyrsta hugsunin er venjulega best: Mér datt í hug að halda norður eftir. Þetta var um 10 um kvöldið. Um klukkan 2 um nóttina fór að halla norður af bankanum og þegar kom niður á 65 faðma dýpi fór að hauglóða. Varla er þetta karfi, hugsaði ég, svona grunnt en það sakar ekki að reyna. Ég kastaði á lóðið og togaði í 15 mínútur og það voru 5 pokar í trollinu af góðum karfa. Í næsta holi lóðaði ekki á 65 föðmum en þegar ég fór 10-15 föðmum dýpra fékk ég hann undir. Og svona gekk það, ég varð að láta dýpka í hverju holi. Það var mokafli og allir strákarnir komu á frívakt óbeðnir. Þegar Siggi kom upp um morguninn datt af honum andlitið, hann varð svo hissa. Um klukkan 4 um daginn vorum við búnir að fá nóg til þess að fylla lest- ina og rúmlega það. Frá því að við köst- uðum kl 2 um nóttina og til klukkan 4 daginn eftir, eða á 14 tímum, fengum við nálega 220 tonn af karfa. Seinna þegar ég var orðinn skipstjóri, og illa gekk, hefði ég þegið svona draum. En það gerðist aldrei, utan einu sinni, sem ég mun segja frá í annarri grein. 28 – Sjómannablaðið Víkingur Ljósmynd: Ragnar Franzson. Ljósmynd: Ragnar Franzson.Ljósmynd: Ragnar Franzson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.