Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 47
Sjómannablaðið Víkingur – 47
eftir Hilmar Snorrason
Þau eru orðin nokkur tölublöðin af
Víkingnum þar sem fjallað hefur
verið um heimasíður. Með þessu þriðja
tölublaði ársins eru liðin nákvæmlega
10 ár síðan fyrsti pistillinn Sigling um
netið leit dagsins ljós. Þetta mun því
vera fertugasti pistillinn minn um net-
síður er tengjast sjómennsku og sigling-
um. Efl aust hafa einhverjar síður ratað
oftar en einu sinni í blaðið á þessum tíu
árum en hvert blað hefur að geyma
upp-lýsingar um 10 heimasíður.
Ég ætla að byrja á nýrri síðu sem hef-
ur fengið mikið lof en það er Skipavefur
Hafliða á slóðinni www.togarar.is. Hér
hefur Hafliði Óskarsson á Húsavík kom-
ið upp heimasíðu með upplýsingum og
frásögnum af Nýsköpunartogurunum
sem smíðaðir voru fyrir okkur Íslendinga
eftir seinni heimsstyrjöldina. Vefurinn er
algjör gullmoli fyrir þá sem þekktu til
þessara skipa eða hafa áhuga á þeim.
Hafliði á miklar þakkir skyldar fyrir
þetta frábæra framtak sitt. Ef þið eigið í
fórum ykkar eitthvert efni eða ljósmynd-
ir þá endilega hafið samband við Hafliða
haflidi@togarar.is eða við Víkinginn á ice-
ship@heimsnet.is.
Nýlega varð landinn algjörlega hug-
fanginn af snekkju sem hver landsmaður
hefði vilja eiga þótt reyndar daglegur
kostnaður sé ekki beint á færi launþega,
né þeirra manna sem í eina tíð töldu
sig fjármálasnillinga, að leggja út fyrir.
Snekkjuna Octopus, sem er í eigu Paul
Allen Microsoft auðkýfingsins, er hægt
að finna á mörgum heimasíðum enda ein
glæsilegasta snekkja heims. Ég ætla þó
að leiða ykkur að síðunni www.motory-
achtoctopus.com þar sem margvíslegur
fróðleikur er um þetta mikla skip.
Margir veltu því fyrir sér hvort Octo-
pus væri ekki stærsta skemmtisnekkja
heims en svo er ekki. Samkvæmt heima-
síðunni Yacht trails á slóðinni www.
yachttrails.com þá er snekkjan níunda
stærsta snekkjan með aðeins 126 metra
milli stafns og skuts. Sú stærsta, Eclipse,
er 38 metrum lengri en sú fyrrnefnda.
Þessi síða hefur að geyma mikinn fróð-
leik um þessa gerð skipa en hugsanlega
eiga einhverjir erfitt með að horfa upp á
allan lúxusinn sem þar er í boði.
Til að halda okkur áfram í vellysting-
um þá ætla ég að fara næst á síðu sem
heitir We are Cunard á slóðinni http://
wearecunard.com. Hér er fjallað um skip
Cunard skipafélagsins og hvað sé um að
vera hjá útgerðinni. Þar er frá smíði
skipa félagsins sem og af þeim lúxus sem
við farþegum blasir þegar þeir koma um
borð. Skemmtileg síða að renna í gegn-
um.
Það þótti nú ekki neitt smáræðis lúx-
us þegar Titanic var smíðuð á sínum
tíma en eflaust væru fáir sem létu sér
duga þess tíma lúxus í samanburði við
það sem er í boði í dag. En Titanic átti
ekki langa lífdaga en sögur af henni hafa
lifað góðu lífi og munu svo gera um
ókomna framtíð. Það hafa eflaust margir
séð Hollywood myndirnar sem sköpuðu
skipinu sess en hvað er rétt og hvað er
rangt í myndunum hafa eflaust marg-
ir spurt sig að. Til að upplifa síðustu
klukkustundir skipsins og þeirra sem
komust lífs af er hægt að lesa allar yfir-
heyrslur yfir þeim sem fram fóru bæði í
Bandaríkjunum og Bretlandi fyrir opnum
tjöldum. Slóðin á endurrit sjóprófa í
kjölfar slyssins er að finna á slóðinni
www.titanicinquiry.org. Það mun vissulega
taka nokkurn tíma að fara yfir þetta efni
enda stóðu réttarhöldin í Bandaríkjunum
yfir í 18 daga en í Bretlandi 36.
Við skulum ekki alveg hverfa frá
sökkvandi farþegaskipum en 4. ágúst
1991 sökk farþegaskipið Oceanos undan
ströndum Suður-Afríku. Allir björguðust
úr þessu slysi en það sem gerir það öðr-
um slysum merkilegra er að skipstjórinn
og stór hluti áhafnarinnar og yfirmanna
þess yfirgáfu skipið og skyldu því sem
næst alla farþegana 581 eftir um borð.
Það voru síðan skemmtanastjórar skips-
ins sem tóku við stjórninni og unnu það
mikla afrek að koma öllum frá borði.
Slóðin www.oceanossinking.com fjallar um
þennan atburð en það er skemmtana-
stjórinn Moss Hills og eiginkona hans
sem halda síðunni úti. Þau hjónin unnu
þrekvirki í þessari aðgerð ásamt einum
til viðbótar. Þetta er saga sem allir eiga
að kynna sér því hún er ekki síður
merkileg en Titanic sagan.
Eftir að hafa lesið svona mikið efni
um sökkvandi farþegaskip er rétt að
benda á síðuna Britannia á slóðinni www.
britanniapandi.com sem er tryggingafélag.
Á síðu þeirra er mikinn fróðleik að finna
en þeir gefa meðal annars út fréttablað
og senda út ábendingar til sjómanna um
öryggismál.