Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 13
nýlega tekinn við honum, líklegast yngsti skipstjórinn á togaraflotanum, 24– 25 ára, þegar hann tók við skipinu. Við vorum fyrir norðan og sunnan landið, fórum hingað og þangað, hvar sem fisk var að fá, alltaf voru ördeyðutímabil. Karfinn var í Víkurálnum. Grænlands- miðin voru fundin, og við fórum a.m.k. einn túr þangað. Um haustið komu heimamenn af síldinni. Þá var maður látinn fjúka. Allt frændur á Siglufirði. Mér þótti vænt um Elliða, minn fyrsti togari. Þeim var boðið mikið þessum skipum, siglt var svo að vatnaði undir þá miðja. Já, sagði Auðun, að þeir hefðu verið veikir um miðjuna, og þess vegna hafi Egill rauði brotnað í tvennt undir Grænuhlíð, en ekki Fylkir gamli, þegar hann fékk duflið í trollið, sem sprakk undir honum; búið að styrkja Fylki, og þess vegna brotnaði hann ekki í tvennt; Auðun veit þetta, hann var með Fylki.1 Búið var að styrkja þá flesta þarna á síðunni, þar sem þeir sprungu, þessir nýsköpunartogarar, rétt við svelginn; spilið var á upphækkuðu dekki (há- dekki, skammdekki), og þar sem það lækkaði niður á fordekkið, þar sprungu þeir allir. Hafði ekkert með hnoðunina (riveting) að gera, þessir brezku togarar voru hnoðaðir. Plöturnar rifnuðu, plötur og bitar voru logsoðnir í þá til styrktar. Þetta hafði þó ekki verið gert á Elliða. Hann sökk út af Jökli 10. febrúar 1962. Engu mátti muna, hann sökk 5 mínút- um, eftir að þeir fóru í björgunarbátinn frá Júpíter. Ólafur: Skipshundurinn neitaði að fara frá borði. Hann fór niður með skip- inu. Hann hét Bob. Hafði verið undar- legur allan daginn og löngu áður en menn gerðu sér grein fyrir, að sjór var kominn í lestarnar.2 Haukur: Gæti hann hafa heyrt hljóð, sem menn heyrðu ekki, ískur í brotnu járni. Þeir heyra tíðni, sem við heyrum ekki. Benedikt: Fór einn afleysingartúr á Hvalfellinu. Snæbjörn Ólafsson var þar, rólegheitamaður, mjög góður skipstjóri og aflamaður, heppinn. Missti aldrei mann. Ekkert að segja frá einum afleys- ingartúr. Guðbjörn Jensson, Bubbi, var stýrimaður, hann var náfrændi Snæ- bjarnar, en gjörólíkur persónuleiki, gerði frekar grín að mönnum en að hann æsti sig upp, þegar trollið var tekið. Gekk vel að fiska, karlinum. Þá fékk ég pláss á Ólafi Jóhannessyni BA 77 frá Patreks- firði. Um hátíðarnar 1957 fórum við á Óla Jóh í sölutúr til Þýzkalands. Við áttum söludag strax eftir áramótin, þá er lítill fiskur í boði, fólk hefur étið kjöt yfir jólin og gott að selja, verðið hátt á fiski. Þá lendum við í slæmu veðri á Norðursjó. Ég hugsa, að það hafi staðið nokkuð tæpt með skipið fullt og svona ástatt. Við komum spannaskafti niður í rifurnar. Sprungur voru í honum báðum megin á síðunum, þar sem upphækkunin undir spilinu og framdekkið mættust. Sjór vætlaði inn í lestina um lensportið, svelginn, en ekki var kominn teljandi leki. Sprunga gæti hafa verið undir tré- dekkinu, en slíkt athugar maður nú ekki á sjó. Þegar ég kom á Óla Jóh, var Torfi Jónsson stýrimaður og Gísli Auðunsson skipstjóri, einn Auðunsbræðra. Svo tók Torfi við, og Kjartan Ingimundarson varð stýrimaður. Úrvalsmenn allir saman, þó hver á sinn hátt. Þessi togari var snyrti- legri en hinir, nýrri, smíðaður 1951, Sjómannablaðið Víkingur – 13 m ð Á síld sumarið 1955. Brynjar ST 47 frá Hólmavík við bryggju á Siglufi rði. Ljósmynd: Haukur Brynjólfsson. Benedikt Gabríel Egilsson, formaður. Guðbjörn Jensson, skipstjóri. Auðun Auðunsson, skipstjóri.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.