Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Qupperneq 16
(Stálskip ehf.). Rán gekk víst til 1979– 1980, var þá seldur Ísstöðinni hf. í Garð- inum og hét Ingólfur GK 42 og var enn síðutogari. Árið 1984 var Ingólfur seldur til Ísafjarðar, hét nú Arnarnes, eftir að miklar breytingar höfðu verið gerðar á skipinu og sett í það skutrenna. Má því segja, að síðutogaratímanum hafi lokið í Garðinum 1984, mjög nærri þeim stað, þar sem það hófst 80 árum áður. Arnar- nes var selt til Siglufjarðar 1988, Þor- móður rammi gerði það út, og þaðan fór skipið til Mexíkó. Þar er það enn og heitir Capasa-I og er gert út á línu. Upp- haflega enskur dísieltogari, sem strand- aði við Arnarnes í Ísafjarðardjúpi, en náðist út og var gerður upp, reyndist happaskip, gerður út frá Hafnarfirði og nefndur Rán eins og áður sagði. Þetta er í stuttu máli lífshlaupið á sjónum. Það spannaði nær 30 ár. Einhverjum skipum hefur verið sleppt, víkjum kannski að því seinna, þegar við athugum þetta nánar. Mættu um borð í jakkafötum, í hvítri skyrtu og með hálsbindi Ólafur: Þegar Guðmundur Jónsson, skipstjóri í Hafnarfirði, var að byrja til sjós um 1960, þá segir hann, að ástandið hafi einkennzt af því, að „... helzt engir fengust um borð í togara nema sæmi- legar fyllibyttur.”5 Og ekki fer Tryggvi Ófeigsson fögrum orðum um þetta lið, sem mannaði síðutogarana eftir 1950 og til loka. Allt er það þó almennt orðað, og engin mannanöfn nefnd.6 Benedikt: Þetta var önnur veröld, þegar menn gengu í jakkafötum með bindi og voru í hvítri skyrtu og mættu svoleiðis um borð og skiptu þar um föt og fóru úr sparigallanum. Menn vildu vera snyrtilega klæddir í landi og komu með vinnufötin með sér í pokanum. Svo fór þetta að breytast smám saman. Þá var ein áhöfn, en nú er gjarnan ein og hálf. Menn fara tvo túra og eiga frí í einn túr. Nú er erfiðara að fá pláss en var. Þeir velja unga menn, séu menn komnir yfir fertugt, er það mjög erfitt. Trollin eru einfaldari, dregin upp í einni rennu, tog- kraftur margfaldur. Allt önnur vinnu- brögð, og fækkað hefur í áhöfn. Loft- skeytamannastéttin dó út með síðu- togurunum, skipstjóri og stýrimenn sjá um þetta núna, brúin er eitt tækjasafn. Bræðslumaðurinn (grútarkarlinn) er löngu farinn, en bátsmaður og netamenn eru enn í fullu gildi, og margt getur „óklárast“ á dekki eins og forðum. Þó nokkuð var að komast inn í þetta, sérstaklega að komast inn í trollið, skilja uppbygginguna á því. Öll þessi reynsla er farin að gleymast eftir 1975. Á hana er lítið minnzt, en meira talað um, að þessir sjómenn hafi alltaf verið fullir, sáust ekki öðruvísi en fullir, fóru um borð fullir. Jú, oft var það. Gætu samt hafa verið reyndustu mennirnir, þegar til átti að taka, þoldu þetta vel. Ef vínlykt finnst núna af manni, þá fer hann ekkert þann túr, ekki flóknara en það. Þeir viðurkenndu það nú, mestu þrælahöfðingjarnir, að eftir að vökulögin komu (1921), þá hafi afköstin margfald- ast hjá mannskapnum. Lengi hjálpuðu Færeyingar togaraflotanum, þegar erfitt var orðið að manna hann reyndum mönnum hér heima. Við vorum svolítið sárir út í Færeyingana; þeir fengu sömu krónutölu í kaup og við, en í dönskum krónum, og gengið var 1 á móti 5; það þýddi fimmfalt hærra kaup. Ágætir karlar; nokkuð rólegir í tíðinni margir þeirra. Menn fóru að þéna meira á bátunum, á góðum bátum. En svo hvarf síldin, og þeir þurftu að fara að vinna fyrir skött- unum. Skattarnir voru borgaðir eftirá. Það setti margan á hausinn, þegar síldin hvarf. Kannski búnir að koma sér upp húsi og bíl á tveimur árum; ekkert var tryggt í þessum atvinnumálum. Netafiskur er annað en togarafiskur. Almennt er netafiskurinn lélegri. Verið var að draga netin 2ja til 3ja nátta, þá var fiskurinn löngu steindauður og farinn að morkna, voru með allt of margar trossur. Ólafur: Vökulögin 1921 tryggðu 6 klst. hvíld á sólarhring við veiðar, lengt í 8 klst. 1928. Það tók nær áratug, frá því að Ísleifur Högnason bar árið 1942 fram frumvarp um 12 klst. hvíld og 12 klst. vinnu á sólarhring, þar til það var sam- þykkt og þurfti í lokin margra vikna verkfall sjómanna til að koma núverandi fyrirkomulagi á. Kjörnir fulltrúar þjóð- arinnar á Alþingi höfðu ekki gert annað en þæfa málið og kæfa (flytja þurfti frumvarpið 10 sinnum). Og 5 ár þurfti í viðbót, eða til 1955, til að fá þetta lög- fest. Borið var við, að fjölga þyrfti svo í áhöfn, að ekki væri pláss um borð fyrir allan mannskapinn.7 Á þessum árum sagðist ónefndur út- gerðarmaður á hinn bóginn hafa það eftir togaraskipstjóra, að gott hafi verið, ef náðist að manna spilið. Benedikt: Að fiska með botnvörpu á síðutogara var flókinn veiðiskapur. Það gerðu ekki viðvaningar, heldur samæfður hópur margra manna, og margt gat farið úr lagi, óklárast. Er hann ekki að gagn- rýna sjálfan sig þarna? Voru togaraút- gerðarmenn, þegar hér var komið, sam- keppnisfærir? Kvartar undan því að fá ekki menn, farnir á bátana, nýju stál- bátana með kraftblökkir, betri vistarver- ur, og þar var meira upp að hafa. Hann bar sig þó enn nokkuð vel útgerðar- maðurinn á fundi hjá F.Í.B., þegar þeir voru að barma sér þessir bæjarútgerðar- menn. Þá stóð hann allt í einu upp og sagði: „Heyriði drengir, ef þið eruð í van- dræðum með togarana ykkar, látið mig þá bara vita,“ – og með það labbaði hann út. Haukur: Tryggvi Ófeigsson var brjál- aður út í allar bæjarútgerðir, tómir kom- múnistar, sem ráku þær. Sagði óspart sögur af vinnulaginu þar. Ólafur: Hann lærði að fiska og gera út togara hjá Hellyer-bræðrum í Hull, Gyðingunum, var sjálfur togaraskipstjóri til margra ára, fór í land 1939, þegar stríðið byrjaði. Menn jöfnuðust ekki á við hann. Tryggvi vissi það. En sumir höfðu samt verið á togurunum frá því fyrir stríð, sigldu á úrsérgengnum ryð- kláfum á stríðsárunum eins og Stebbi Olsen, kyndari, keyrður niður í Fleet- wood af Bretum, skotinn niður á Faxa- flóa af Þjóðverjum, hélt enn áfram á togurum eftir stríð og eftir 1950; aldrei bindindismaður, þrælaði engum út nema sjálfum sér, hvorki til sjós eða úr öruggu sæti í landi.8 Hversu margir voru líkir honum á 5., 6. og 7. áratugnum? Að undrast og fordæma, þegar áralangt strit hefur sett mark sitt á menn á þessum ryðdollum, þar sem festa í botni gat rifið upp vírrúllu á dekki, og togvírinn klippt í sundur hvern, sem fyrir varð. Benedikt: Útgerðarmaðurinn beygir framhjá þessu. Hann hælir þeim, sem hófust til mannvirðinga og mannaforráða eins og hann sjálfur gerði, og þeir stóðu fyllilega undir því. En þá gengu líka sögur, að trollað væri upp í landsteina og kartöflugarða, uppí Gróttu, togari strand- aði í fjöru með trollið úti; notaðar væru tvær gerðir togvíra, landhelgisvírar, 16 – Sjómannablaðið Víkingur Haukur (t.v.) og Benedikt Brynjólfssynir: „Það átti að sjanghæja okkur bræðurna um borð í Pétur Thorsteinsson. Við þáðum drykk en stukkum svo upp á bryggju á síðustu stundu. Fengum okkur aftur í glösin og tókum þessa mynd í myndasjálf- sala sem þá var í miðbænum, nærri Kirkjuhvoli minnir mig.“

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.