Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 29
Sjómannablaðið Víkingur – 29
Það er alkunna, að sjómennskan er
ekkert grín. Kuldi, bræla og dauður
sjór verða mönnum oft minnisstæðari
en það, sem vel fer að lokum. Hér verð-
ur sagt frá afl eiðingum brælu og kulda
og tilteknum erfi ðleikum, tímabundn-
um þó, því allt fór vel að lokum og lifi r
í endurminningunni.
Það var rétt eftir miðjan sjötta áratug
síðustu aldar, á síldarvertíð að sumri, að
sá sprettharði silfurfiskur, síldin, valdi
sér dvalarstað langt norður af landinu, í
köldum sjó. Þar var aflaskipið Snæfell
EA 740, en því stýrði Bjarni Jóhannesson
og hafði aflakóngstitil. Elsti sonur hans,
Baldvin Jóhannes, síðar um áratugaskeið
kennari og skólamaður á Akureyri, var
sumrungur hjá föður sínum. Sér til
skjóls, eins að aðrir um borð, var hann í
svellþykkum prjónafötum næst sér.
Nú gerði vonda brælu og flotinn leit-
aði undan veðri. Snæfellið fór í var við
Grímsey. Þetta var á laugardagskvöldi.
Baldvin og jafnaldri hans um borð fengu
„landvistarleyfi“ og tóku þeir skipsskekt-
una og réru í land. Eftir landtökuna kom
í ljós, að efna átti til dansleiks í eyjunni.
Strákarnir ákváðu að fara, enda bæði
söngmenn og dansfífl. Nú er víst afar
erfitt að dansa í bússum og því þurfti að
verða sér úti um dansskó. Að jafnaði
hafa menn ekki með sér danska skó á
síld, og því greip Baldvin til þess ráð að
fara í útibú KEA á staðum, sem auðvitað
var ekki opið. Steinunn Sigurbjörnsdótt-
ir, útibússtjóri, varð þó við bón Baldvins
og fór með honum í búðina. Ekki var
gnægð skótaus í boði og einu skórnir,
sem komu til greina voru strigaskór,
marglitir. Baldvin notar skó nr. 41, en
strigaskórnir voru númer 39, en nú var
mikið í húfi og Baldvin keypti skóna,
sem voru settir á reikning hans hjá KEA
með veði í óveiddri síld. Hann tróð sér
berfættur í skóna og stóð það nokkuð á
endum, að ef hann kreppti tærnar, svo
þær snéru næstum í átt að hælnum, gat
hann troðið sér í þá, en þrautir voru
nokkrar. Fór við svo búið á nýjum skón-
um á ballið. Margmenni var nokkurt, en
konur aðeins þrjár. Þegar harmoniku-
leikarinn sendi fyrstu tónana út í salinn
Snæfellið með risakast á síðunni við Jan Mayen árið 1964. Það nægði til að fylla bæði Snæfellið og Björgvin
frá Dalvík.
Háfað úr stóra kastinu. Myndin tekin af skipverja á Björgvini EA.
BRÆLUBALL Í GRÍMSEY