Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Side 30
30 – Sjómannablaðið Víkingur
spratt Baldvin upp og valhoppaði á
nýjum skónum til fallegustu stúlkunnar,
hneigði sig kurteislega og spurði hana
hvort hún vildi dansa. Það vildi hún,
enda pilturinn glæsilegur. Í þá daga var
dansað í spyrpum, þrír dansar í einu og
var þá dömunni skilað með þakklæti.
Baldvin sá í hendi sér, enda stærðfræð-
ingur góður, að ef eftir slíku kerfi væri
farið, ætti hann von um annan dans rétt
við blálok ballsins. Nú var það ráð eitt,
og það tók Baldvin, að skila stúlkunni
ekki við syrpulokin, heldur framlengja
upphafsboðið. Það tókst, enda Baldvin
skemmtinn í besta lagi, þrátt fyrir sárar
kvalir í tánum, en eins og allir vita, skal
mikið til mikils vinna. Ekki hlaut hann
vinsældir annarra herra á ballinu, en þar
eð þetta var skemmtun án áfengis, slapp
hann fyrir horn.
Að loknum dansleik, fylgdi Baldvin
dömunni til hennar heima, kvaddi hana
riddaralega við garðhliðið og réri síðan
draghaltur á nýjum skónum til skips.
Sagnir herma, að þar sem hann dans-
aði heilt ball í föðurlandinu, hafi vart
verið þurr þráður á piltinum, enda dans-
að bæði vals, polka og Óla skans, og
staðfest er, að næstu dagana hoppaði
Baldvin um Snæfellið, kvölum kvalinn,
en í sæluvímu hið innra.
(Bernharð Haraldsson skráði eftir
lauslegri frásögn Baldvins sjálfs.)
Góður afl i kominn að landi í Krossanesi.
Snæfellið að landa í Krossanesi eftir góðan túr 1959.