Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 33
Sjómannablaðið Víkingur – 33 DFDS Logistics. Eimskip ætti að taka sína fyrrum samstarfsaðila til eftirbreytni því eitthvað virðist vanta upp á að skip félagsins séu í sama stílnum eins og t.d. kranar, möstur og svínahryggir. Afrek áhafnar Það voru þreyttir skipverjar, á gámaskipinu Charlotte Mærsk, sem bundu skip sitt við bryggju í Tanjung Pelepas sunnudaginn 18. júlí s.l. Þá voru þeir búnir að berjast við elda í 150 gámum um borð í skipi sínu og hafði bardaginn staðið yfir í 11 sólarhringa. Eldurinn kom upp í gámum á þilfari en þrátt fyrir það voru erfiðleikarnir bundnir við elda sem geysuðu inni í gámunum sjálfum. Til að ráða niðurlögum eldsins notuðu þeir sérstakan háþrýstibúnað, Cobra, þar sem þeir skáru upp gámanna með vatnsþrýstingi til að geta slökkt inni í gámunum. Vegna hins mikla hita gerðu skipverjarnir sér grein fyrir því að þéttingar lestarlúga myndu gefa sig í hitanum og til að koma í veg fyrir að fá vatn í lestar við slökkvistörfin var skipinu gefin slagsíða svo það rynni sjórin af skipinu. Þegar skipið kom að bryggju varð mönnum ljóst að áhöfnin hafði unnið krafta- verk og talið að ekki tæki nema mánuð að gera við skipið og koma því aftur í áætlun. Útgerðin bauð áhöfninni að fara heim í frí en aðeins fáir þáðu það og vildu bara halda áfram með sína törn eins og ekkert hefði í skorist. Tímamótadómur Nýlega gekk dómur í máli sem höfðað var fyrir breskum dómstólum um það hvort skip, sem félli í hendur sjóræningja, teldist falla úr leigu meðan það væri í sjóræningjahöndum. Málið snérist um stór- flutningaskipið Saldanha sem lenti í höndum sómalskra sjóræningja 22. febrúar og tóskt ekki að fríja skipið fyrr en 25. apríl. Leigan var í samræmi við New York Produce Exchange leiguformið og vildi farmeigandi túlka samninginn á þann veg að leiga félli niður í slík- um tilfellum. Ekkert er minnst á sjórán í þessu leiguformi en farm- eigandinn vildi meina að orðalag sem sagði að ef skipið gæti ekki siglt vegna annarra orsaka (any other cause) en tilteknir voru í samningnum þá hlyti ákvæðið að taka til sjórána. Þessu hafnaði dómstóllinn og var niðurstaða hans að þetta orðalag tæki á engan hátt til sjórána. Með þessum dómi er komin niðurstaða í mikla óvissu sem ríkt hefur í þessum efnum og ef farmeigendur vilja kom- ast hjá að borga, lendi skipið í höndum sjóræningja, verða þeir að bæta ákvæði inn í leiguformið til að tryggja sig. Fækkun sjórána Það eru þó gleðifregnir, varðandi sjóránin, að á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru sjóránin 20% færri en á sama tíma árið 2009. Haf- svæðið undan Sómalíu trónir enn í efsta sæti yfir hættulegustu haf- svæðin en þá hafa einnig sómalskir sjóræningjar sótt í sig veðrið og eru farnir að herja á Indlandshafi. Notast þeir þá við móðurskip til að stunda iðju sína þar. Þá er suðurhluti Rauðahafs orðinn að hættusvæði þar sem sjórán hafa farið vaxandi. Herskip sem hafa verið skipum til verndar á svæðunum hafa, að mati manna, haft þessa jákvæðu breytingu í för að sjóránum fækkar. Á fyrri helming ársins 2010 hefur einn sjómaður verið drepinn, 16 særðir og 597 verið teknir til gíslingar. Samið var um lausn á 31 skipi, skotið var á 48 skip en sjóræningjum tókst að komast um borð í 70 skip. Færeyska alþjóðaskráning skipa Mikill vöxtur hefur verið á færeysku alþjóðaskipaskráningunni að sögn Vilhjálms Gregoriussonar forstöðumanns skráningarinnar. Á síðasta ári komu 17 skip undir fánann og voru flest þeirra frá Sví- þjóð og Noregi. Meðal þeirra voru sex nýleg tankskip. Fjörutíu og sjö skip voru á þessari skipaskrá í lok júní og hafa menn litið á þessa skipaskráningu sem viðbótarstyrk við efnahag þjóðarinnar og stuðningur við þverrandi tekjur af fiskveiðum. Þann 1. júní s.l. var alþjóðaskipaskráningin og færeyska siglingamálastofnunin sameinuð en ekki hefur, þegar þetta er skrifað, verið fundið nafn á hina nýju stofnun né hver muni fara með stjórnartauminn þar á bæ. Nú stefna Færeyingar á að staðfesta fleiri ILO samþykktir til að geta verið samkeppnisfærir með siglingafánann sinn. Hver er svo staðan hjá okkur þegar Færeyingum gengur svo vel? Nákvæmlega engin þar sem ASÍ lagðist gegn frumvarpi sem hefði geta gert íslenska alþjóðaskipaskráningu að veruleika. Kraftur í Færeyjum Nú eru hafin borun eftir olíu á færeyska landgrunninu. Færeyingar hafa undanfarin ár verið að undirbúa að takast á við þessi nýju verkefni. Eitt af því var sannarlega að koma á alþjóðaskráningu en einnig hafa fiskiskipaútgerðir snúið sér í auknu mæli að gera einnig út hjálpar- og aðstoðarskip fyrir olíuiðnaðinn. Gera menn sér ljóst að innan fárra mánaða gæti olía verið farin að streyma upp úr hafs- botninum og þar með gildnar færeyski landskassinn umtalsvert. Ein útgerðanna, Thor Offshore, gerir út átta togara og 15 aðstoðarskip. Það er því ljóst að hér er eftir miklu að slægjast fyrir fiskiskipaút- gerðir og því eðlilegt að íslenskar útgerðir, sem stjórnvöld vilja taka kvótan af, snúi sér á ný mið. Önnur útgerð, Supply Service, hefur nýlega fengið afhent fullkomið hjálparskip sem smíðað var í Noregi og er annað stærra skip í smíðum fyrir þá. Fyrir eiga þeir rækjutog- ara og einn togara sem þeir gera út til skemmtisiglinga með ferða- menn. Þriðja útgerðin, Tyr Shipping Management, er með útgerð- arstjórnun á tveimur skipum og getur boðið upp á fjölda sérhæfðra skipa fyrir olíuiðnaðinn sem þeir sæju um útgerðarstjórnun á. Hyggja þeir á nýsmíði fyrir olíuiðnaðinn. Fyrrum forstöðumaður færeysku siglingamálastofnunarinnar, Óle Hans Hammer Olsen, er forstjóri Tyr Shipping en áður fyrr stundaði hann sjó frá Hornafirði. Það er ljóst að mikið gengur á í Færeyjum en spurningin er sú hvort við verðum nokkurn tíma tilbúin í þennan slag þar sem mikið vantar upp á að unnt sé að tryggja slíkan útgerðarrekstur undir ís- lenskum fána. Nú þýðir ekki lengur að bíða heldur verða stjórnvöld að taka slaginn og undirbúa jarðveginn til að afleiðustörf olíuleitar og vinnslu falli ekki í hendur útlendinga. Mikill vöxtur er í olíuiðnaðinum í Færeyjum en hér sjáum við nýjasta aðstoðar- skip þeirra fyrir olíuborpalla, Eldborg. Ljósmynd Sverri Egholm.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.