Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur
Dómnefnd norænu keppninnar
ákvað að veita tveimur myndum
heiðurssæti en án verðlauna.
Önnur var eftir Tryggva Sigurðsson
vélstjóra á Frá VE en hina myndina
átti Finninn Elisa Pihkala
mótormaður á m/s
Fjärdvägen.
Árleg ljósmyndakeppni Sjómannablaðsins
Víkings er nú í fullum gangi og er skilafrestur
á myndum til 30. nóvember n.k. Þátttakan hefur
aukist jafnt og þétt í gegnum árin og höfðu aldrei
fl eiri ljósmyndarar tekið þátt í keppninni en á
síðasta ári. Reglur keppninnar eru mjög einfaldar
eða sú eina að ljósmyndarinn hafi verið til sjós.
Myndir mega bæði vera af sjónum og úr landi og
efniviðurinn er hverjum frjáls. Ljósmyndirnar geta
verið á stafrænu formi eða hverju öðru prentuðu
formi. Skyggnur eru einnig gjaldgengar. Ekki er
þörf á fyrir þá sem skila myndum á stafrænu að
láta prentaðar myndir fylgja með.
Dómnefnd Sjómannablaðsins Víkings er skipuð
þremur mönnum sem velja þrjár myndir sem hljóta
verðlaun blaðsins auk tólf annarra mynda sem síðan
halda áfram og taka þátt í norrænni ljósmynda-
keppni sjómanna.
Á síðasta ári var norræna keppnin haldin hér á
landi og komst mynd Guðmundar St. Valdimars-
sonar, bátsmanns á varðskipinu Ægi, í annað sæti
keppninnar. Norræna keppnin verður haldin í
Kaupmannahöfn í febrúar n.k. en þar keppa til
verðlauna sjómenn frá öllum Norðurlöndunum.
Verðlaunasætin í þeirri keppni eru fimm en keppnin
hefur verið mjög hörð í gegnum tíðina enda mikið
af skemmtilegum myndum sem teknar eru úti á sjó.
Hafa skal í huga þegar ljósmyndir eru sendar inn
til keppninnar að sá sem sendir hana inn verður að
vera sá sem ýtti á afsmellarann á myndavélinni.
Allar ljósmyndir skulu merktar ljósmyndara auk
þess sem þeim skal gefið nafn. Með hverri mynd
þarf að vera örstutt lýsing á myndinni þar sem
henni er gefið nafn sem og hvar og hvenær hún var
tekin. Þá skulu vera upplýsingar um á hvaða skipi
ljósmyndarinn var. Mikilvægt er að senda mynd-
irnar í sem mestri upplausn.
Sjómannablaðið Víkingur áskilur sér rétt til að
birta hverja þá mynd sem tekur þátt í keppninni án
endurgjalds í blaðinu. Það sama á einnig við um
þau norrænu velferðartímarit sjómanna, sem eru
aðilar að keppninni, varðandi birtingarétt án endur-
gjalds.
Hvetjum við ykkur enn og aftur til dáða bak við
myndavélina en myndir skulu sendar stafrænt á
iceship@heimsnet.is en á pappírs- eða diskaformi til
Sjómannablaðsins Víkings merkt:
Sjómannablaðið Víkingur,
Ljósmyndakeppni 2010
Grensásvegi 13
108 Reykjavík
Látið nú hendur standa fram úr ermum
og missið ekki af keppninni í ár!
Ljósmyndakeppni
sjómanna 2010