Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Blaðsíða 43
Allt frá því Hannes Hafstein tók við ráðherratign, fyrstur Íslendinga, í febrúar 1904 og þar til Einar Arnórsson baðst lausnar frá ráðherraembættinu í janúar 1917 var aðeins einn ráðherra yfi r Íslandi hverju sinni; Hannes fyrstur, þá Björn Jónsson, Kristján Jónsson, Hannes aftur, Sigurður Eggerz og seinast Einar. Það verður því að sama skapi athyglisverðara að seinasti ráðherrann í þessari „einmenningsröð“, Einar Arnórsson úr Grímsnesi, settist á ráðherrastól fyrir hreinan misskilning. Að- dragandinn var sá að Sigurður Eggerz hafði sagt af sér á vor- dögum 1915 og stóð í miklu stappi með Íslendingum og Dön- um, sem var reyndar ekki ný bóla, og vildi konungur ekki fallast á þær breytingar er Íslendingar vildu gera á stjórnar- skránni. Greip konungur þá meðal annars á það ráð að boða á sinn fund þá Einar Arnórsson prófessor, Guðmund Hannesson prófessor og Svein Björnsson lögmann. Þegar þremenningarnir komu heim aftur frá kóngsins Kaupinhafn, eftir viðræðurnar við konung, höfðu þeir í farteskinu tillögu að lausn þrætunnar. Voru þær ræddar fram og til baka á ótal fundum, sumum mjög leynilegum. Meðan á þessum fundarhöldum stóð voru þremenningarnir í skeytasambandi við einkaritara konungs og skrifuðu þá jafnan eftirnöfn sín undir í stafrófsröð. Vegna stríðsins voru símskeyt- in á ensku sem hjálpaði ekki upp á sakirnar. Svo kom að þremenningarnir sendu skeyti þar sem þeir buðust til að gera tillögu um ráðherraefni ef konungur hefði engan ákveðinn í huga. Kviknaði þá misskilningurinn því að í niðurlagi skeytis- ins var svo komist að orði „ ... if considered necessary we will propose Arnorsson Bjornsson Hannesson.“ Þetta skildu þeir í konungsgarði svo að tveir hinna síðar- nefndu væru að stinga upp á „Arnorsson“ sem ráðherra. Var því Einar Arnórsson skipaður ráðherra Íslands og gegndi því embætti frá 4. maí 1915 til 4. janúar 1917. Ráðherra fyrir misskilning Kristján X var konungur Danmerkur þegar þessi furðulegu ráðherraskipti urðu. Hér fer hann ríðandi um götur Kaupmanna- hafnar árið 1940. Honum var þá þegar heldur í nöp við Íslendinga og ekki átti það eftir að batna 1944. Sjómannablaðið Víkingur – 43

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.