Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Side 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Side 16
16 – Sjómannablaðið Víkingur Í tímaritinu „Logg“ 6/2016 sem gefið er út af norsku sjó- mannasamtökunum er fjallað um nýfallinn dóm Hæstarétt- ar Noregs um uppsögn yfirstýrimannsins Kell-Atle Fred- heim árið 2014 sem hafði siglt á Svartfossi frá árinu 2010. Svartfoss tilheyrir norsku félagi í eigu Eimskipafélags Íslands sem skráð er með aðsetur í Sortland í Noregi. Eimskipafélag Íslands á í gegnum dótturfélag sitt í Noregi 6 skip: Langfoss, Stigfoss og Vitfoss sem eru systurskip öll smíðuð í Århus á árinu 1990. Hin skipin eru: Holmfoss, Polfoss og Svartfoss, öll smíðuð Noregi eftir sömu megin teikningunni, tvö 2005 og eitt 2007. Skipin eru öll skráð í Antigua Barbados, eru frysti- skip sem sigla með frosinn fisk á norsku ströndina, til Mur- mansk og hafna á Bretlandi. Yfirmenn í brú eru ýmist norskir eða færeyskir, aðrir í áhöfn eru flestir rússneskir. Svartfoss, skip Kell-Atle, siglir aðallega milli Bergen og Kirkenes auk nefndra erlendra hafna. Niðurstaða Hæstaréttar var á þá lund að norsku „skips- arbeidsloven“ gildi ekki í þessu tilfelli þar sem skipið siglir ekki undir norskum fána heldur fána Antigua Barbudas. Því gilda þarlend lög um borð í skipinu. Í umfjöllun blaðsins um málið kemur m.a. fram að lögmanni Kell-Atle finnist það afar sérstakt ef norskir útgerðarmenn geti með einu pennastriki skráð skip sín í karabísku eyríki og losn- að með því undan nor skri löggjöf sem hefur að geyma sjálf- sögð mannréttindi í Noregi sem barist hefur verið fyrir undan- gengin 100 ár. Blaðið hefur eftir forsvarsmönnum norsku sjó- mannasamtakanna að með þessum dómi liggi ljóst fyrir að búið sé að hirða hluta af sjálfsögðum mannréttindum af þeim norsku sjómönnum sem sigla á skipum undir þægindafána. Hvað með íslenska sjómenn í sömu stöðu? Með niðurstöðu Hæstaréttar er málinu síður en svo lokið, næst er að fá uppsögnina tekna fyrir í Vesteraalen tingrett en þar verður fjallað um málið samkvæmt gildandi lögum Antigua Barbados, lagaákvæðum sem samkvæmt heimildum blaðsins liggur ekkert fyrir um hver eru þar sem á þau hefur aldrei reynt í Noregi. Rétt er að það komi skýrt fram að sjómenn þessara skipa sigla ekki samkvæmt norskum kjarasamningum þess í stað samkvæmt lágmarkskjörum Alþjóða flutningaverkamannasam- bandsins ITF. Helgi Laxdal Dómur Hæstaréttar Noregs Saltkaup hf. • Cuxhavengata 1 • 220 Hafnarfjörður Sími: 560 4300 • www.saltkaup.is

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.