Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Blaðsíða 20
20 – Sjómannablaðið Víkingur
Upphaf fjarskiptanna
Í upphafi ritsímans þegar einungis var hægt að rjúfa eða tengja
strauminn sem fór eftir símalínunum, raðaði Samuel Morse
saman löngum og stuttum strikum sem mynduðu þannig mors-
stafrófið.
Í upphafi radíófjarskiptanna var einungis hægt að framkalla
neista, langan eða stuttan og heyra brakið yfir langar vegalengd-
ir með krystal móttakara, ef bæði sendir og móttakari voru
tengdir við loftnetsvír.
Fyrstu fjarskiptin til sjós voru á stórum farþegaskipum og
voru aðallega notuð til skemmtunar fyrir farþegana. Hægt var
nú að senda fréttaskeyti til skipanna nokkur hundruð sjómílur
út frá strönd t.d. Englands eða Ameríku og bæta þeim inn í
fréttablöðin sem gefin voru út og prentuð um borð. Fyrstu loft-
skeytamennirnir voru því öðrum þræði blaðamenn, eins og gott
dæmi var um með fyrsta íslenska loftskeytamanninn Vilhjálm
Finsen, sem stofnaði svo Morgunblaðið árið 1913.
Loftskeytamaðurinn á Titanic
Vilhjálmur réðst sem nemi til Marconi félagsins árið 1906,
fyrstur Norðurlandabúa, og sigldi síðan á mörgum farþegaskip-
um á milli Evrópu og Ameríku. Á upphafsárunum og langt
fram yfir seinna stríð leigði Marconi félagið skipaútgerðum
bæði loftskeytatæki og loftskeytamenn. Þannig fluttust „Mar-
conimennirnir“ bæði milli skipa og skipafélaga.
Í Marconi skólanum í Liverpool var herbergisfélagi Vil-
hjálms, John George Phillips, sem síðar varð loftskeytamaður á
farþegaskipinu Titanic og fórst hann með skipinu út af Ný-
fundnalandi í jómfrúrferðinni 1912.
Yfirmaður Vilhjálms í verklegri þjálfun til sjós var hinn
þekkti Jack Binns sem var svo loftskeytamaður á farþegaskipinu
Republic árið 1909 þegar það sökk eftir árekstur.
Eftir Titanic slysið var kallað til alþjóðlegrar ráðstefnu um
neyðar- og öryggisfjarskipti þar sem mönnum var nú orðið ljóst
hvaða hlutverki fjarskiptin gátu þjónað í öryggi sjófarenda. Á
þessari ráðstefnu var lagður grunnur að skipulagðri hlustvörslu,
neyðarkallinu SOS, ákveðinni neyðar- og uppkallsbylgju ofl.
Síðar var skipum skipt upp í flokka eftir stærð þar sem m.a. var
kveðið á um hvaða skip þurftu að hafa loftskeytatæki og loft-
skeytamann, og hvaða skipum og bátum nægði talstöð og tal-
stöðvarvörður. Þannig varð „the buddy system“ eða „kunningja-
kerfið“ til. Það varð til samfélag á hafinu þar sem menn
fylgdust með og pössuðu hver upp á annan. Þetta samfélag
byggði á því að hlustvarslan á neyðar- og uppkallsbylgjunum
væri virk.
Upphaf fjarskiptanna við Ísland
17. júní 1918 var loftskeytastöðin í Reykjavík opnuð til al-
mennra nota með aðeins einum loftskeytamanni, og aðallega
sem varaleið fyrir ritsímastrenginn sem lagður var til Seyðis-
fjarðar og áfram norður um land til Reykjavíkur. En stöðin
þjónaði einnig þeim fáu skipum sem voru þá með loftskeyta-
tæki hér við land. Meðal þessara skipa voru gamli Gullfoss,
nokkrir franskir togarar og dönsku eftirlitsskipin. Smátt og
smátt komu loftskeytatækin svo um borð í togarana og flutn-
ingaskipin, en lítið pláss var fyrir tækin og loftskeytamanninn
um borð í togurunum. Á sumum skipum voru tækin niðri í
káetu og á öðrum var byggður lítill klefi, 2x2 metrar, og boltað-
ur niður á keisinn aftan við brú og skorstein. Í þessum litla
klefa var koja loftskeytamannsins og rafgeymarnir undir henni,
lítið borð, neistasendirinn og krystal móttakarinn. Klefinn var
kaldur og slæmt loft í honum vegna rafgeymanna. Loftskeyta-
mönnunum var því yfirleitt kalt og þóttu óttalegar kuldaskræf-
ur. Sambandið við skipstjórann var í gegn um tveggja tommu
slöngu sem lá fram í brúna.
Til allrar hamingju er einn svona klefi varðveittur á sjó-
minjasafninu Víkinni við Grandagarð.
Nýsköpunartogararnir
Þegar nýsköpunartogararnir komu til landsins í lok fimmta ára-
tugarins var loftskeytaklefinn aftast í brúnni og rafgeymarnir
komnir upp á þak. Skipin voru með bestu tækjum sem þá voru
á markaðnum, flest frá M. P. Pedersen í Danmörku. Þetta voru
Hvað gerðu
loftskeytamenn?
Egill Þórðarson
Birgir Aðalsteinsson tekur kódann um borð í gamla Harðbak.
Mynd: Birgir Óskarsson