Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Síða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Síða 31
Sjómannablaðið Víkingur – 31 lega. - Aðeins 2% sjómanna eru kven- kyns. Meira rifið Allt stefnir í að árið 2016 verði metár í niðurrifi gámaskipa. Það sem af er árinu hefur 150 gámaskipum verið siglt á land til niðurrifs en það dugar þó engan veg- inn til að lappa upp á offramboð á gáma- skipum. Árið 2015 var ár vonbrigða þar sem einungis helmingur þess sem árið 2016 hefur gefið af sér og útgerðir berj- ast í bökkum. Ákaft niðurrif gámaskipa vegur lítið á móti þeirri fjölgun sem varð á smíði gámaskipa á árunum 2010 til 2015. Á þessu ári er gert ráð fyrir að 450 þúsund TEU´s sem leggst út á að meðal- stærð þeirra gámaskipa sem rifin voru hafi verið um 3.000 TEU´s. Skipafélagið Mærsk tilkynnti í febrúar að það myndi senda fleiri skip til niður- rifs og hefur af þeim sökum byrjað að nota fjórar niðurrifsstöðvar á Alang ströndinni á Ítalíu til að rífa skip sín. Þá hefur þýska gámaskipafélagið Hapag-Ll- oyd aðvarað fjárfesta, hagnaður mun dragast saman árinu 2016, segir félagið, sem hefur því undirritað bindandi samkomulag við Arabíska gámaskipafé- lagið UASC um að setja á laggirnar fimmta stærsta skipafélag heims og berj- ast þannig á móti kreppunni í gáma- skipaútgerðinni. Gámaskip eru að öllu jöfnu í notkun í um og yfir 25 ár en útgerðir eru farnar að losa sig við skip allt að 15 ára gömul vegna lækkandi farmgjalda. Eigendur eldri gámaskipa geta valið um að leigja skipin sín á sögulega lágu verði sem einungis getur staðið undir föstum kostnaði meðan markaðurinn er í þessari lægð eða þá að selja skipin til niðurrifs. Um 90% allra flutninga í heiminum fara sjóleiðina þar sem yfir 70% þess fer með gámum. Kominn í mafíuhóp Skipstjóri gámaskipsins MSC Poh Lin hefur verið ákærður fyrir þátttöku í al- þjóðlegum eiturlyfjahring eftir að yfir- völd á Ítalíu komu upp um flókið kerfi til að losa eiturlyf í hafi svo hægt væri að koma þeim á markað í Evrópu. Búið er að handtaka 12 manns í tengslum við málið. Skipið MSC Poh Lin var kyrrsett í höfninni Gioia Tauro, sem er á Suður- Ítalíu, meðan á rannsókn málsins stóð ásamt 1.500 gámum sem um borð í skip- inu voru. Í einum gámi fundust þrír pokar sem innihéldu eiturlyf. Ítalska lög- reglan sagði að smyglhringurinn hefði verið afar flókinn og háþróaður þar sem meðal annars hafnarverkamenn og skip- stjóri gámaskipsins hefðu verið hluti af þessu hring. Þessir aðilar hefðu notað dulkóðuð samskipti til að ekki kæmist upp um þá. Um 300 tollverðir og lög- regluþjónar tóku þátt í aðgerðinni 8. júlí sl. þegar skipið kom til hafnar frá Suður- Ameríku en um borð fundust alls 83 kg af kókaíni. Smyglhringurinn var skipulagður af mafíuhring sem kallast Ndràngheta sem reyndar er ekki einn af þekktustu glæpahópum þar í landi en hann tengist hinni margfrægu Sikileyj- armafíu. Síðasta skál um borð Þeim hefur eflaust brugðið í brún skip- verjunum á norsku Hurtigruten Finn- marken þegar þeir fengu heimsókn á fimmtudagsmorgni af fulltrúum út- gerðarinnar sem sjá um að áfengismæla starfsmenn. Skipið var í þurrkví í Harstad eftir að hafa orðið fyrir tjóni á stýri þegar skipið hafði tekið niðri við Finnsnes þremur dögum áður. Í ljós kom að þó nokkrir skipverjar, af 76 manna áhöfn, höfðu fengið sér neðan í því kvöldinu áður enda talið tækifæri til þess þar sem engir farþegar voru um borð. Hinsvegar er útgerðin með þá reglu að algjör áfengisbann er meðal skipverja á skipum útgerðarinnar og því var öllum þeim sem mældust með áfengi í blóðinu afhent uppsagnarbréf og munu þeir hafa látið strax af störfum. Útgerðin sagði að engin breyting væri á reglum þeirra þótt skipin væru í slipp. Tíu mannskæðustu sjóslys sögunnar Þegar rætt er um sjóslys þar sem fjöldi fólks lætur lífið kemur upp í hugum margra Titanic slysið þar sem 1.514 manns fórust í apríl 1912. Það var vissu- lega mannskætt slys en þó aðeins tíunda mannskæðasta í sögunni. Alltaf eru þó mögulegar skekkjur á fjölda þeirra sem fórust og lengi má deila um hvaða skip eigi að vera á þessum vafasama lista. Á þessum eru bæði sjóslys friðar- og stríðs- tíma. En svona lítur stórsjóslysasaga síð- ari tíma heimsins út. 10. Titanic Eins og öllum lesendum ætti að vera kunnugt þá sökk skipið eftir að hafa siglt á ísjaka þann 15. apríl 2015 en með skipinu fórust eins og áður hefur komið fram 1.514 9. Hai Chu Kínverska gufuskipið Hai Chu var á leið frá Canton til Hong Kong með 2.000 hermenn og 100 óbreytta auk áhafnar þegar skipið sigldi á tundurdufl nærri Bacca Tigris við ósa Canton fljótsins 8. nóvember 1945. Talið er að 1.800 manns hafi farist með skipinu en að- eins 300 komust lífs af. 8. Sultana Sultana var fljótaskip á Mississippi en 27. apríl 1865 varð sprenging í skip- inu sem gerði þennan atburð að mesta sjóslysi Bandaríkjanna. Talið var að 1.800 farþegar af 2.427 sem um borð voru hefðu farist en skipið mátti ein- ungis flytja 376 farþega. 7. Le Joola Þann 26. september 2002 hvolfdi ferj- unni Le Joola undan strönd Gambíu og með skipinu fórust 1.863 en 64 björguðust. Um borð í ferjunni, sem var í eigu Senegölsku ríkisstjórnarinn- ar, voru þrisvar sinnum fleiri farþegar en leyfilegt var. 6. Mont-Blanc Að morgni 6. desember 1917 fórust um 2.000 manns þegar franska flutninga- skipið Mont-Blanc lenti í árekstri við norska flutningaskipið Imo í höfninni í Halifax. Eldur braust út um borð í Mont-Blanc sem var lestað sprengiefni sem olli gífurlegri sprengingu með þeim afleiðingum að sjómenn sem og íbúar létust í sprengingunni. Áætlað var að 9.000 manns hefðu slasast. All- ir skipverjar Mont-Blanc að einum undanskildum lifðu sprenginguna. 5. Kiangya Kínverska farþegaskipið Kiangya, eða Jiãngjìng Lún, fórst í sprengingu ná- lægt mynni Huangpu fljótsins sem er um 80 km norður af Shanghai 3. eða 4. desember 1948. Ekki er með vissu hvorn daginn sprengingin átti sér stað en talið er að skipið hafi siglt á tund- urdufl. Skipið hafði leyfi til að flytja 1.186 farþega en talið er að um borð hafi verið á bilinu 2,750 til 3,920 manns. Alls björguðust. 4. Lancastria Lancastria var farþegaskip í eigu Cunard en undir stjórn herstjórnar Breta. Því var sökkt 17. júní 1940 í kjölfar loft- árása á skipið. Skipið var að taka þátt í aðgerð sem gekk undir nafninu Ariel og fólst í að bjarga breskum þegnum og hermönnum frá meginlandi Evr- ópu en skipið var skammt frá frönsku borginni Saint-Nazaire. Með skipinu fórust að því talið er á bilinu 3.000 til 5.800 manns en það er stærsta eins- taka sjóslys í breskri siglingasögu. 3. Doña Paz FIllipínska ferjan Doña Paz sökk eftir árekstur við olíuskipið Vector 20. des- ember 1987 og með skipinu fórust 4.386 manns en aðeins 24 björguðust af Doña Paz en allir skipverjar Vectors fórust. Þetta er mannskæðasta sjóslys sögunnar á friðartímum en ferjan var yfirfull af fólki, langt umfram leyfi- legan farþegafjölda sem skipið mátti flytja.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.