Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Side 34
34 – Sjómannablaðið Víkingur
Ljóskan kom til læknis mjög áhyggju-
full: „Ég hef ekki verið á blæðingum í
fjóra mánuði!“
Læknirinn spyr hvort hún kunni að
vera ófrísk.
„Nei, það getur ekki verið! Ég á ekki
mann, engan kærasta og þekki barasta
engan karlmann, ja nema náttúrulega ná-
grannann sem kemur stundum yfir til að
hlusta á tónlist.“
Læknirinn áttar sig nú á því að ekki
er allt með felldu hjá þessari ungu snót
og segir: „Nú, gerir hann það.“
„Já, þá leggur hann höfuðið ofan á
brjóstin á mér og heyrir þá tónlist!“
Læknirinn leggur höfuðið á brjóst
konunni og segist enga tónlist heyra.
Ljóskan horfir á hann með vorkunn í
augum og segir hátt og snjallt: „Þú átt
líka eftir að stinga í samband.“
Tvær ljóskur eru á ferð í sveitinni þegar
þær sjá aðra ljósku á miðjum grasbala
róandi á báti.
Þá segir önnur ljóskan við hina:
„Svona ljóskur skaða sko orðspor okkar
ljóskanna.“
Hin svarar: „Rétt, og ef ég kynni að
synda myndi ég synda út í bátinn og
drekkja þessari heimsku ljósku.“
Kona þvær þvotta og finnur þá lítinn
kassa í skúffu eiginmannsins. Í honum
eru þrír golfboltar og 150 þúsund kall.
Þegar eiginmaðurinn kemur heim
svífur hún á hann og yfirheyrir um kass-
ann.
„Ég ætla ekki að ljúga að þér, en í
hvert skipti sem ég hef haldið framhjá
þér á seinustu 30 árum hef ég sett golf-
bolta í kassann“
Konan verður auðvitað nokkuð æst út
af þessu en hugsar svo með sér að það sé
nú ekki svo slæmt að á 30 árum hefði
karlinn aðeins haldið fram hjá henni
þrisvar.
„En hvers vegna var þá 150 þúsund
kall í kassanum?“
„Jú, sjáðu til í hvert skipti sem ég
náði tólf golfkúlum seldi ég þær og setti
peninginn í skúffuna.“
Badda bleika kemur í apótek og spyr af-
greiðslumanninn hvort hann selji yfir-
stærð af verjum.
„Jú, það gerum við, má bjóða þér
pakka?“
„Nei, þakka þér fyrir,“ segir Badda.
„En má ég bíða hérna þangað til einhver
maður kemur sem biður um þannig
pakka?“
Svör nokkurra 11 ára barna í söguprófi
Egyptaland til forna var gamalt. Það
var byggt sígaunum og múmíum sem öll
skrifuðu með fornu letri. Þau áttu heima
í Sara-eyðimörkinni. Veðurfarið í Sara er
þannig að íbúarnir neyðast til að búa
annars staðar.
Móses leiddi hebresku þrælana að
Rauðahafinu þar sem þeir bjuggu til
ósýrt brauð en það er brauð án nokkurs
innihalds.
Móses fór síðan upp á Blásýrufjall
(Mount Cyanide) til að sækja boðorðin
tíu. Hann dó áður en hann komst
nokkurn tíma til Kanada en boðorðin
náðu að komast.
Johann Bach samdi mörg frábær tónverk
og átti fjöldann allan af börnum. Inn á
milli æfði hann sig á gamalli piparmey
sem hann geymdi uppi á háalofti. Bach
dó frá 1750 til dagsins í dag. Bach var
frægasta tónskáld í heimi og líka Hendel.
Hendel var hálfur Þjóðverji, hálfur Ítali
og hálfur Englendingur. Hann var mjög
hávaxinn.
Beethoven samdi tónlist þrátt fyrir að
vera heyrnarlaus. Hann var svo heyrnar-
laus að hann samdi háværa tónlist og var
faðir rokksins. Hann fór í langar göngu-
ferðir í skóginum, líka þegar allir voru
að kalla á hann. Beethoven andaðist
1827 og lést síðar vegna þess.
Sir Walter Raleigh er sögupersóna vegna
þess að hann fann upp sígarettur og fór
að reykja.
Jóhanna af Örk var brennd í kássu og
tekin í dýrlingatölu af Bernard Show af
ástæðum sem ég skil ekki. Það er enn
vesen hjá Englendingum og Frökkum.
Elísabet drottning var meydrottning.
Hún var frábær drottning. Þegar hún
beraði sig fyrir framan her sinn æptu all-
ir “HÚRRA” og lengi á eftir voru engir
bardagar.
Charles Darwin var náttúrufræðingur.
Hann skrifaði Uppruna tegundanna sem
var mjög löng bók. Fólk varð æst vegna
hennar og fór í réttarsal til að athuga
hvort hún væri rétt. Hann sagði svona
nokkurn veginn að dagur Guðs væri
ekki bara 24 klukkutímar en án þess að
hafa úr, hver gæti vitað það ? Ég næ
þessu ekki!
Madman (madame) Curie uppgötvaði
radióið. Hún var fyrsta konan til að gera
það sem hún gerði. Fleiri konur hafa
orðið vísindamenn síðan en þær gátu
ekki fundið radióið því það var búið að
því.
Karl Marx var einn Marx-bræðra. Hinir
þrír voru í kvikmyndum. Karl hélt ræð-
ur og kom byltingum af stað. Einhver í
fjölskyldunni varð að vera í vinnu, finnst
mér.
Endum þáttinn að þessu sinni á sígildri
skotasögu.
Willie litli: „Pabbi, eigum við ekki að
fara á aldamótahátíðina? Það kostar bara
eina evru?
Faðirinn: „Næsta skipti, væni minn,
næsta skipti.“
Móse dó áður en hann komst til Kanada.
Þegar Elísabet drottning beraði sig þá ...
Einhver varð að vera í vinnu.