Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Blaðsíða 34

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Blaðsíða 34
34 – Sjómannablaðið Víkingur  Ljóskan kom til læknis mjög áhyggju- full: „Ég hef ekki verið á blæðingum í fjóra mánuði!“ Læknirinn spyr hvort hún kunni að vera ófrísk. „Nei, það getur ekki verið! Ég á ekki mann, engan kærasta og þekki barasta engan karlmann, ja nema náttúrulega ná- grannann sem kemur stundum yfir til að hlusta á tónlist.“ Læknirinn áttar sig nú á því að ekki er allt með felldu hjá þessari ungu snót og segir: „Nú, gerir hann það.“ „Já, þá leggur hann höfuðið ofan á brjóstin á mér og heyrir þá tónlist!“ Læknirinn leggur höfuðið á brjóst konunni og segist enga tónlist heyra. Ljóskan horfir á hann með vorkunn í augum og segir hátt og snjallt: „Þú átt líka eftir að stinga í samband.“  Tvær ljóskur eru á ferð í sveitinni þegar þær sjá aðra ljósku á miðjum grasbala róandi á báti. Þá segir önnur ljóskan við hina: „Svona ljóskur skaða sko orðspor okkar ljóskanna.“ Hin svarar: „Rétt, og ef ég kynni að synda myndi ég synda út í bátinn og drekkja þessari heimsku ljósku.“  Kona þvær þvotta og finnur þá lítinn kassa í skúffu eiginmannsins.  Í honum eru þrír golfboltar og 150 þúsund kall.  Þegar eiginmaðurinn kemur heim svífur hún á hann og yfirheyrir um kass- ann.  „Ég ætla ekki að ljúga að þér, en í hvert skipti sem ég hef haldið framhjá þér á seinustu 30 árum hef ég sett golf- bolta í kassann“  Konan verður auðvitað nokkuð æst út af þessu en hugsar svo með sér að það sé nú ekki svo slæmt að á 30 árum hefði karlinn aðeins haldið fram hjá henni þrisvar.  „En hvers vegna var þá 150 þúsund kall í kassanum?“  „Jú, sjáðu til í hvert skipti sem ég náði tólf golfkúlum seldi ég þær og setti peninginn í skúffuna.“  Badda bleika kemur í apótek og spyr af- greiðslumanninn hvort hann selji yfir- stærð af verjum. „Jú, það gerum við, má bjóða þér pakka?“ „Nei, þakka þér fyrir,“ segir Badda. „En má ég bíða hérna þangað til einhver maður kemur sem biður um þannig pakka?“  Svör nokkurra 11 ára barna í söguprófi Egyptaland til forna var gamalt.  Það var byggt sígaunum og múmíum sem öll skrifuðu með fornu letri.  Þau áttu heima í Sara-eyðimörkinni.  Veðurfarið í Sara er þannig að íbúarnir neyðast til að búa annars staðar.  Móses leiddi hebresku þrælana að Rauðahafinu þar sem þeir bjuggu til ósýrt brauð en það er brauð án nokkurs innihalds. Móses fór síðan upp á Blásýrufjall (Mount Cyanide) til að sækja boðorðin tíu.  Hann dó áður en hann komst nokkurn tíma til Kanada en boðorðin náðu að komast.  Johann Bach samdi mörg frábær tónverk og átti fjöldann allan af börnum.  Inn á milli æfði hann sig á gamalli piparmey sem hann geymdi uppi á háalofti.  Bach dó frá 1750 til dagsins í dag.  Bach var frægasta tónskáld í heimi og líka Hendel.  Hendel var hálfur Þjóðverji, hálfur Ítali og hálfur Englendingur.  Hann var mjög hávaxinn.  Beethoven samdi tónlist þrátt fyrir að vera heyrnarlaus.  Hann var svo heyrnar- laus að hann samdi háværa tónlist og var faðir rokksins.  Hann fór í langar göngu- ferðir í skóginum, líka þegar allir voru að kalla á hann.  Beethoven andaðist 1827 og lést síðar vegna þess.  Sir Walter Raleigh er sögupersóna vegna þess að hann fann upp sígarettur og fór að reykja.  Jóhanna af Örk var brennd í kássu og tekin í dýrlingatölu af Bernard Show af ástæðum sem ég skil ekki.  Það er enn vesen hjá Englendingum og Frökkum. Elísabet drottning var meydrottning.  Hún var frábær drottning.  Þegar hún beraði sig fyrir framan her sinn æptu all- ir “HÚRRA” og lengi á eftir voru engir bardagar.  Charles Darwin var náttúrufræðingur.  Hann skrifaði Uppruna tegundanna sem var mjög löng bók.  Fólk varð æst vegna hennar og fór í réttarsal til að athuga hvort hún væri rétt.  Hann sagði svona nokkurn veginn að dagur Guðs væri ekki bara 24 klukkutímar en án þess að hafa úr, hver gæti vitað það ?  Ég næ þessu ekki!  Madman (madame) Curie uppgötvaði radióið.  Hún var fyrsta konan til að gera það sem hún gerði.  Fleiri konur hafa orðið vísindamenn síðan en þær gátu ekki fundið radióið því það var búið að því.  Karl Marx var einn Marx-bræðra.  Hinir þrír voru í kvikmyndum.  Karl hélt ræð- ur og kom byltingum af stað.  Einhver í fjölskyldunni varð að vera í vinnu, finnst mér.  Endum þáttinn að þessu sinni á sígildri skotasögu. Willie litli: „Pabbi, eigum við ekki að fara á aldamótahátíðina? Það kostar bara eina evru? Faðirinn: „Næsta skipti, væni minn, næsta skipti.“ Móse dó áður en hann komst til Kanada. Þegar Elísabet drottning beraði sig þá ... Einhver varð að vera í vinnu.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.