Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Síða 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Síða 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur Eins og sagði í umfjöllun um Nor- rænu ljósmyndakeppnina 2016, hrepptu þrjár myndir heiðursverð- laun. Ein var skondin að mati dómara. Sú kom frá hinum danska Remigusz Piotrowski, yfirstýrimanni á Tasing Swan. Önnur var mynd Jörgen Språng sem hann kallar, „Charlie“, en hún sýnir augnsamband um borð sem hluta af hinu daglega lífi. Þið munið að Språng átti einnig myndina í fimmta sæti keppninn- ar. Þriðja heiðurssætið hlotnaðist svo Sví- anum, Tim Ruttledge, skipstjóra á tank- skipinu Fure West, fyrir myndina, „Tank man.“ Dómararnir hrifust af arkitektúrn- um í myndinni, skuggabirtunni og hinni miklu tvíræðni er felst í myndefninu. Er þetta í dómkirkju eða hvað, veltu þeir fyrir sér. Að lokum skal á það minnt, um leið og ykkur öllum er þökkuð þátttakan, að áhugasamir geta skoðað myndband frá keppninni á slóðinni http://youtu.be/ dzJYk576cUA. Myndbandið er á síðu Vel- ferðarstofnunar finnskra sjómanna. Remigusz Piotrowski. NORRÆNA LJÓSMYNDAKEPPNIN Heiðursverðlaun 1

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.