Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Page 40
40 – Sjómannablaðið Víkingur
Lesendur góðir, til að gefa ykkur sýn-
ishorn af því fróðlega og skemmti-
lega lesefni sem finna má á vefsíð-
unni aba.is – en þetta er ekki í fyrsta
skiptið sem Víkingurinn leitar þar fanga
– skulum við skoða hvað Árni Björn
hefur að segja um Grenvíkinginn Jó-
hann Adolf Oddgeirsson.
Fiskinn
Ekki er fjarri sanni að halda því fram að
Jóhann Adolf Oddgeirsson hafi verið
orðinn þjóðsagnapersóna í lifanda lífi.
Vel má vera að full sterkt sé þarna til
orða tekið en svo mikið er víst að allir
sjómenn þekktu hann eða höfðu af hon-
um heyrt.
Hann var fiskinn í besta lagi en það
skar hann frá öðrum aflamönnum að oft
fiskaði hann ævintýralega vel þá aðrir
fengu lítið sem ekki neitt.
Sumir vildu meina að hann væri að-
eins fáránlega heppinn en það segir sig
sjálft að slíkar fullyrðingar fá ekki stað-
ist. Vissulega geta menn verið heppnir
annað slagið en að halda því fram að
heppnin ein og sér dugi til farsælla afla-
bragða heila mannsævi er alveg gjörsam-
lega út í hött. Miklu meira þarf til og
mun mála sannast að karlinn hafi verið
með afbrigðum glöggur á allt, sem að
veiðimennsku sneri.
Sögur um slíka menn ganga ljósum
logum og lifa þær bæði vel og lengi.
Flestar ef ekki allar eru sögur þessar
græskulausar og hafðar í frammi mönn-
um til gamans en ekki í því augnamiði
að lítillækka eða meiða einn né neinn.
Hér að neðan eru birtar nokkra slíkar,
sem líta ber jákvæðum augum.
„Hentu þeim“
Jóhann Adolf Oddgeirsson hafði mikla
rödd og var söngmaður góður. Fyrirskip-
anir sem frá honum bárust út um stjórn-
borðs brúargluggann fóru ekki framhjá
þeim sem á dekki voru. Á einni vetrar-
vertíðinni þegar hann var með Vörð
TH-4 á línuveiðum fyrir Suðurlandi kom
tímabil þar sem lítið aflaðist. Kokkur
þessa vertíð var Sigurður Kristinsson í
Höfða oftast nefndur Siggi í Höfða. Á
lögninni var það hlutverk hans að færa
línubala að línurennu og fjarlægja tóma
bala þá línan var úr þeim runnin.
Dag nokkurn í blíðskaparveðri þegar
Siggi var að basla við að renna línuböl-
unum eftir dekkinu að rennunni tók
hann eftir því að sumir balanna voru
merktir Von TH-5. Hann vakti athygli
Adda á þessu og lét þau orð falla að lítil
von væri um afla á meðan annarra báta
balar væru notaðir undir línu þeirra.
Karlinum rak hausinn út um brúar-
gluggann fyrirskipunin drundi yfir þá
sem á dekki voru: „Hentu þessu drasli
í sjóinn.“
Þó að karlinn hafi örugglega sagt
Árni Björn Árnason
Tilsvör Adda
Gjögurviti.
Mynd: Jón Hjaltason
Arthúr Vilhelmsson, Jóhann Adolf og óþekktur á útkikki eftir síld eða hvað?
Mynd; Úr bók Björns Ingólfssonar, Bein úr sjó.