Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Side 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Side 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur Vasa. Þrátt fyrir hlaup karlanna þrjátíu var þetta látið eftir og hinn 10. ágúst 1628 lét Vasa úr höfn í jómfrúrsiglingu sína. Eða það var að minnsta kosti mein- ingin. „Guð einn veit“ Öllum heimildum ber saman um að veðrið hefði ekki getað verið betra þenn- an örlagaríka ágústdag. Suðvestan and- vari og bjart. Í landi fylgdust þúsundir með hinu mikla skipi líða af stað frá skipasmíðastöðinni við Skeppsgården. En aðeins eina 1.300 metra. Þá fyllti vindurinn skyndilega seglin og skipið lagðist á hliðina og sökk á örskammri stundu. Dýpið var þó ekki meira en 32 metrar og úr landi sást glöggt hvar áhöfnin stökk upp í reiða og möstur til að bjarga lífi sínu. Fjölmargir Stokk- hólmsbúar hlupu til, ýttu skektum úr vör og reru í snatri hina stuttu leið út að Vasa til að bjarga löndum sínum. Engu að síður fórust 30 manns. Það var ekki fyrr en tveimur vikum síðar að Gústav kóngur fékk fréttirnar. Hann brást hinn versti við og heimtaði sökudólg til refsingar. Í kjölfarið hófust ítarleg réttarhöld. Jú, fallbyssurnar voru tryggilega festar, svaraði einn, og áhöfnin var allsgáð, vottaði annar. Þá voru skipasmiðirnir teknir á beinið. Af hverju var skipið svona mjótt, spurði sak- sóknarinn, sem varð þó að neita sér um að taka aðalhöfund skipsins, skipasmið- inn Henryk Hybertson, á beinið. Hann hafði andast allnokkru áður en Vasa komst á flot. Réttarhöldin, sem snerust kannski frekar um að finna sökudólg en ástæðu hinna hörmulegu örlaga Vasa, tóku enda án þess að nokkur niðurstaða fengist. Nema menn sætti sig við svar bróður Hybertson, kaupsýslumannsins Arendt de Groot, sem sagði: „Guð einn veit af hverju skipið fórst.“ Gamli og nýi tíminn. Riddari, áður í skut Vasa, og stúlka með farsíma, dálæti 21. aldar-mannsins.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.