Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Síða 14
14 – Sjómannablaðið Víkingur
Þetta viðtal við Bolla Magnússon birtist í Morgunblaðinu 6. janúar 1973. Þar lýsir hann
í aðalatriðum sínu starfi í Japan. Það eina sem uppá vantar er að Japanirnir unnu 6 daga
vikunnar og því varð hann að nota sunnudaginn til þess að ferðast á milli stöðvanna
en ferðin tók 8-9 klst.
H
inn 6. janúar 1973 birtist í
Morgunblaðinu grein eftir Krist-
ínu Bjarnadóttur þar sem hún
sagði frá Japanstogurunum og reynslu-
ferð með einum þeirra, togaranum
Vestmannaey. Grípum þar niður sem
Kristín ræðir við Bolla Magnússon
sem hún kallar réttan mann á réttum
stað:
„Bolli Magnússon hefur dvalizt í Jap-
an síðan í ágúst sl. sumar og unnið að
eftirliti með smíði 10 skuttogara, 6 hjá
Narasaki í Muroran og 4 í Niigata, fyrir
hönd kaupenda. Bolli er skipatækni-
fræðingur að mennt. Hann segist reynd-
ar hafa lifað og hrærzt í skipum hálft
sitt líf. Bolli hefur haft nóg á sinni
könnu hingað til, því að hann hefur
orðið að skipta sér milli tveggja skipa-
smíðastöðva. Tekur heilan dag að ferð-
ast á milli þeirra með mörgum farar-
tækjum, flestum yfirfullum, en
umferðin í eins þéttbýlu landi og Japan
er gífurleg. Hraðinn við smíðarnar hef-
ur verið svo mikill, að það hefur tekið
hann langan tíma að setja sig inn í það,
sem unnizt hefur á meðan hann var í
burtu.
Samtal okkar Bolla varð stutt, en
hann var í Niigata mestallan þann tíma,
sem ég var í Muroran, svo að ég hitti
hann aðeins rétt í svip. Ég reyndi samt
að nota tækifærið til að spyrja hann um
dvöl hans og störf í Japan.
„Bolli, hverju sætir þessi mikli
byggingarhraði?“
„Fyrst og fremst hve margir komast
að starfi í einu. Ég býst við, að þessi
vinnubrögð væru óhugsandi á Íslandi,
einfaldlega vegna þess að 8-12 manns
gætu ekki unnið á sama blettinum eins
og hér gerist.“
Allir, sem hlut eiga að máli, bera á
störf Bolla mikið lof, bæði Japanir og
Íslendingar. Japanir lofa sérstaklega
samstarfið við hann og segja, að þar
hafi Íslendingar valið réttan mann á
réttan stað. Þeim hefur samt vafalaust
vaxið hann í augum fyrst í stað, því að
Bolli er myndarlegur fulltrúi norræna
kynstofnsins og er á við tvo meðal Jap-
ani að stærð og umfangi.
„Í hverju hefur daglegt starf þitt ver-
ið fólgið?“
„Ég hef fylgzt með smíði skipanna
frá degi til dags og verið ráðgefandi um
hvað hæfði íslenzkum staðháttum.
Sannleikurinn er sá, að Íslendingar gera
óvenju miklar kröfur um allan búnað,
bæði öryggisbúnað, fis veiði- og sigl-
ingatæki og aðbúnað að skipverjum. Og
ég verð að segja, að hvergi í nokkru er-
lendu landi hafa verið smíðuð skip fyrir
Íslendinga sem fullnægðu eins vel kröf-
um okkar og hér í Japan. Það er
einungis hægt að jafna því saman við
skipasmíðar á Íslandi og í Færeyjum, en
þær þjóðir þekkja bezt hvað hæfir
þeirra aðstæðum.“
„Réttur maður á réttum stað“
Reykjavík
Fundur verður haldinn
að Háteigi, A-sal á 4. hæð
Grand Hótels Reykjavík,
föstudaginn 30. desember og hefst kl. 14.00.
Léttar veitingar.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Skipstjórnarmenn
í Félagi skipstjórnarmanna
Akureyri
Fundur verður haldinn
á veitingastaðnum Strikinu, norðursal,
á 5. hæð að Skipagötu 14, Akureyri,
fimmtudaginn 29. desember kl. 14.00.
Léttar veitingar.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.