Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Side 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Side 29
Sjómannablaðið Víkingur – 29 að fiskur lyktaði illa. Mjög oft þegar ég var sendur í skóla fann ég um leið og skólahurðin opnaðist að fiskur var á mat- seðlinum. Þegar ég fór vissu þeir sem réðu eldhúsinu að það var verið að selja þeim úldinn fisk. Ég var mjög oft svokallaður gesta- kokkur í mötuneytum stórra fyrirtækja og skóla. Til dæmis var ég gestakokkur 7 eða 8 sinnum í mötuneyti Sameinuðu þjóðanna í New York. Þar borða um þrjú þúsund manns í hádeginu. Yfirkokkurinn þar sagði að af þeim veldu ekki nema kannski svona 120-130 fisk þegar hann væri á boðstólum. Mötuneytið og salurinn er risastór. Í miðju afgreiðslu-eldhúsinu er risastór salatbar með ávöxtum, súpum og brauði. Í kring voru 9 opin eldhús þar sem menn gátu pantað hina ýmsu rétti. Hvert eldhús hafði sitt þema og matseðil. Eitt hafði pastastöð, annað heitar og kaldar sam- lokur, þriðja hamborgara, fjórða steikur, næsta japanskt, þar var líka Mexíkó- matur og svo framvegis. Ég var settur í eldhús sem kallað var alþjóða eldhúsið, International Kitchen. Þar var ég alltaf með ofnbakaðan þorsk, eða ufsahnakka með sósu, og til hliðar hrísgrjón, kartöfl- ur og grænmeti. Þegar menn gengu fram- hjá dýfði ég lítilli plastskeið í sósuna og bauð þeim að smakka. Það dugði oftast og í ótrúlega mörgum tilfellum tóku menn fiskinn jafnvel án þess að spyrja hvað þetta væri. Að meðaltali fóru 300 til 400 skammtar úr eldhúsinu hjá mér. Ég var líka mjög oft gestakokkur í skólum. Þar var ég iðulega með samskon- ar fisk á boðstólnum en líka oft með svo- kallaðar vefjur. Mjúkar Tortilla kökur sem ég setti í saxað jöklasalat, saxaða tómata, saxaðan vorlauk, saxaða papriku, rifinn ost, Tortilla sósu, Range salat sósu og svokallaða fiskifingur eða eitthvað langt og mjótt sem passaði í vefjur. Þetta úðuðu skólakrakkarnir í sig og vissu fæst að þau voru að borða fisk. Oftast voru borðaðir fjórum til sex sinnum fleiri skammtar af fiski þegar ég var gestakokk- ur á staðnum. Leyndarmálið, góður fisk- ur falinn í góðri sósu. Einn skólayfir- kokkur, sem ég hitti nokkrum árum eftir að hafa verið á námskeiði hjá mér, sagði að í skólanum hjá honum hefði fisk- neysla farið úr 40 skömmtum í um 300 síðan hún lærði að kaupa fisk og gefa góðar sósur með. Benni tekur við Stuttu eftir að fyrirtækið flutti til New- port News var það komið í mikil vand- ræði. Margt hafði farið úrskeiðis undir stjórn Hal Karper. Sennilega hafa þetta þó bara verið venjuleg vandamál sem fylgja flutningi svona margslungins fyrirtækis en allavega var honum sagt upp og þá- verandi forstjóri Iceland Seafood á Ís- landi, Benedikt Sveinsson, ákvað sjálfur að taka við stjórninni. Ég heyrði eftir honum haft að mistökin hefðu verið gerð fyrir framan nefið á honum og því stæði það honum næst að kippa hlutunum í lag aftur. Benedikt flutti til Newport News seint í nóvember og fjölskyldan bjó á hóteli til að byrja með. Um sama leiti lokaði við- skiptabanki fyrirtækisins á viðskipti og vandamálin margfölduðust. En fáir ef nokkrir sem ég hef kynnst eru jafn slungnir og Benni eins og við kölluðum hann. Hann, ásamt gjaldkeranum John Williams, fundu annan banka og á einu ári tókst Benna að hífa Icelandic upp úr milljóna dollara tapi í núllið og á næstu árum fóru hlutirnir fljótt að snúast við. Þá var Icelandic selt til SÍF og þeir létu Benna fara. Benni er eini yfirmaðurinn sem ég hef unnið með sem kallaði mig reglulega inn á skrifstofu til að spyrja hvort ekki væri allt í góðu lagi og til að ræða mín mál og vinnuna sem ég var að leggja til. Þvílíkur snillingur. Þá tók Ævar Agnarsson við sem forstjóri en hann hafði verið verk- smiðjustjóri all lengi. Það voru bara fjórir Mynd: Þröstur Njálsson

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.