Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2016, Page 30
30 – Sjómannablaðið Víkingur íslenskir starfsmenn á þessum síðustu Newport News árum. Ævar Agnarsson forstjóri, Elvar Einarsson og Magnús Baldursson voru í að kaupa fisk og svo ég. Ævar reyndist frábær forstjóri. Árið 2009 sameinuðust Sjóvík – sem 2004 hafði keypt Icelandic Seafood Cor- poration – og SH undir nafninu Icelandic Group. Þessi tvö stóru íslensku fisk fyrir- tæki höfðu verið í bullandi samkeppni í um 60 ár á Bandaríkjamarkaði. Verk- smiðju Icelandic í Massachusetts var lok- að og starfsemin sameinuð undir nafni Icelandic Group. Við þennan samruna misstu um 52 Brókerar umboð sín og rúmlega 300 manns vinnuna í Massa- chusetts. Þetta var flókinn samruni þar sem vöruúrval þessara fyrirtækja voru að mörgu leiti mjög svipuð en samt ekki eins. Margir viðskiptavinir töpuðu þar einhverri vöru sem þeir höfðu keypt jafn- vel árum saman. Í lokin var Icelandic með um 700 vörunúmer á framleiðslu- lista. Vissulega ótrúlega mörg en þá ber að hafa í huga að mjög margar vörur voru framleiddar í fimm til sex stærðum og jafnvel úr allt að 17 fisktegundum eins og ég hef víst minnst á áður. Einnig voru margar vörur sérframleiddar fyrir hin ýmsu eldhús og engan annan. Hefðum átt að sameinast fyrr Við vorum með stórfyrirtæki í viðskipt- um eins og Aramark og Foodbuy sem taka að sér að reka eldhús fyrir skóla, sjúkrahús, banka, fangelsi, skrifstofur, íþróttahallir og svo eitthvað sé nefnt. Aramark starfrækti meðal annars eldhús- ið hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og eldhúsið hjá Nato í Brussel þar sem ég var einu sinni gestakokkur. Þessi fyrirtæki eru bæði í Bandaríkjunum og Evrópu og framreiða hundruð þúsunda máltíða á dag. Ótal sölumenn gera ekkert annað en að þjóna þeim. Hjá okkur var tiltekinn sölumaður sem sá um verslunarkeðjur en þar tíðk- uðust sérstaklega – ef má segja frá því – óaðlaðandi viðskiptahættir. Keðjurnar selja þér hillupláss í versluninni fyrir himinháa upphæð en í mörgum tilvikum veita þær litla sem eiga þjónustu við vörumerkið. Oftast þarf því fyrirtækið að skaffa starfsfólk til að sjá um að varan sé sett í hillur, jafnvel þó nóg sé af henni á lager verslunarinnar. Því miður virðast sumar verslanir á Íslandi hafa lært þetta bragð. Ég hef margoft rekist á starfsfólk sem er að raða í hillur verslana hér á Fróni sem segist ekki vinna fyrir verslun- ina heldur heildsalann. Síðan voru sérstakir sölumenn og Brókerar fyrir litlar og stórar veitinga- húsakeðjur. Flestar ef ekki allar veitinga- húsakeðjur reka tilraunaeldhús og var ég oft sendur í slík eldhús til að kynna fisk sem sölumanninum okkar fannst líklegt að þær gætu notað. Sumar ráku líka sinn eigin lager ef veitingastaðirnir voru dreifðir á litlu svæði. Mörg keðjuveit- ingahús voru bara í einni borg eða einu eða tveimur fylkjum. Ég lenti oft í keppni við hitt íslenska fiskfyrirtækið, Icelandic, sérstaklega í við- skiptum við keðjurnar og nú verð ég að vera hreinskilinn: Ég gat aldrei skilið af hverju í ósköpunum þurftu að vera tvö íslensk fyrirtæki að keppa á þessum risa markaði. Við hefðum átt að sameinast tugum ára fyrr. Ef ég man rétt réði Ísland á þessum árum innan við 12 til 15 pró- sentum af öllum fiskmarkaði í Bandaríkj- unum. Þvílík sóun á peningum. Ef ég mætti hafa eitthvað að segja myndu allar íslenskar útflutningsvörur seljast undir einu höfuð-vörumerki. Höfundur til hægri sýningu í Las Vegas. Saltkaup hf. • Cuxhavengata 1 • 220 Hafnarfjörður Sími: 560 4300 • www.saltkaup.is

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.