Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 2
88,7 prósent lands-
manna hafa aðgang að
háhraðaneti.
Þetta er algjörlega
fáránleg ráðstöfun.
Sigurjón Baldur
Hafsteinsson,
prófessor í
safnafræði við HÍ
Forsetar hittust í Höfða
Forsetar Lettlands, Litáen, Eistlands og Íslands hittust í Höfða í gær ásamt eiginkonum sínum, Elisu Reid, Diana Nausėdienė, Sirje Karis og Andra Levite. For-
setarnir eru komnir hingað til lands ásamt fylgdarliði í tilefni af þrjátíu ára afmæli stjórnmálasambands landanna þriggja við Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Námsstyrkir
til nemenda í verkfræði og raunvísindum
Stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
auglýsir hér með eftir styrkumsóknum vegna náms á skólaárinu
2022-2023. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verkfræði- og
raunvísindagreinum og hafa þeir einkum verið veittir nemendum
í framhaldsnámi.
Umsókn og fylgigögnum skal skilað í einu pdf-skjali á póstfangið
MinningHelguogSigurlida@gmail.com.
Umsókn skal innihalda ferilskrá, staðfestingu á skólavist og
námsárangri, meðmælum og öðrum gögnum sem umsækjandi
telur koma að gagni við mat umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 26. september 2022.
Stefnt er að úthlutun í lok október.
Sjá nánar á vef sjóðsins:
http://MinningHelguogSigurlida.is
kristinnhaukur@frettabladid.is
FJARSKIPTI Hlutfall þeirra Íslend-
inga sem búa við háhraða inter-
nettengingu hækkaði úr 83,6 pró-
sentum árið 2020 í 88,7 prósent í
fyrra. Þetta þýðir að um 20 þúsund
landsmenn fengu háhraðatengingu.
Ísland er nú í 9. sæti Evrópuþjóða
hvað varðar háhraðatengingar. Á
toppinum tróna Maltverjar, sem
hafa allir sem einn aðgang að slíkri
tengingu. En hlutfallið er einnig
mjög hátt í Lúxemborg, Danmörku
og á Spáni.
Alls hafa rétt rúmlega 70 prósent
Evrópubúa háhraða internetteng-
ingu. Í fimm löndum hefur minni-
hluti landsmanna aðgang, Austur-
ríki, Ítalíu, Kýpur, Bretlandi og
aðeins tæplega 20 prósent í Grikk-
landi.
Þrátt fyrir að hlutfallið hafi aukist
hér á landi hefur Ísland dregist aftur
úr miðað við aðrar þjóðir. En fyrir
áratug var Ísland í öðru sæti þegar
rúmlega 60 prósent landsmanna
höfðu aðgengi að háhraðaneti.
Margar þjóðir hafa hins vegar lyft
grettistaki við að skaffa háhraða-
tengingar, til dæmis Þjóðverjar sem
hækkuðu hlutfallið úr 7 prósentum
í 75 á aðeins fjórum árum. n
Þúsundir fengu
háhraðanet í fyrra
Margir innan fræðasamfélags-
ins eru afar ósáttir við skipun
nýs þjóðminjavarðar án þess
að staðan væri auglýst.
gar@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir, menningar- og viðskiptaráð-
herra, hefur skipað Hörpu Þórsdótt-
ur, safnstjóra Listasafns Íslands, til
að gegna embætti þjóðminjavarðar.
Skipað er í embættið án þess að
það hafi verið auglýst og styðst ráð-
herra í þeim efnum við heimildir
til að færa starfsmenn hjá ríkinu til
í starfi án þess að auglýsa viðkom-
andi stöðu lausa til umsóknar.
Meðal þeirra sem gagnrýna ráð-
stöfun embættis þjóðminjavarðar
er Sigurjón Baldur Hafsteinsson,
prófessor í safnafræði við Háskóla
Íslands.
„Þetta er mjög vafasamur gjörn-
ingur og hneyksli á tímum umræðu
um gagnsæi og góða starfshætti –
ekki síst á vegum hins opinbera,“
segir Sigurjón. „Þetta virðist vera
ákveðið í skjóli nætur og án nokk-
urrar umræðu.“
Sigurjón segir sérkennilegt að
gripið sé til þess að færa embættis-
mann til í starfi til að skipa embætti
þjóðminjavarðar. Harpa sé góð og
gegn og fagmanneskja en engar
upplýsingar séu veittar um það hvað
hún hafi fram yfir aðra sem gætu
sinnt verkefninu.
Bendir Sigurjón á að aðrir hafi
ekki getað lýst sýn sinni á starfið því
staðan hafi ekki verið auglýst. Þjóð-
minjasafnið sé sérstök stofnun og
ekki aðeins stjórnsýsluvettvangur.
„Það er engin tilraun gerð til að
sannfæra mann um með einhverj-
um rökum að þessi tilfærsla Hörpu
sé sú allra besta ákvörðun sem hægt
er að taka til þess að leysa úr þeim
verkefnum sem Þjóðminjasafnið
þarf að sinna,“ segir prófessorinn.
Einnig nefnir Sigurjón að á árinu
2013 hafi Þjóðminjasafnið fengið
hlutverk háskólastofnunar með
lagabreytingu. „Þarf þá þjóðminja-
vörður þar af leiðandi ekki að vera
með akademískt hæfi?“ spyr hann
og segist telja að í embættið ætti að
veljast fólk sem sé með doktorspróf
að lágmarki.
Harpa mun fylla skarð Mar-
grétar Hallgrímsdóttur sem lét af
starfi þjóðminjavarðar fyrr á þessu
ári. Sigurjón segir fólk hafa talið að
staðan yrði auglýst með haustinu
og sé því brugðið í dag. „Ég held að
engum hafi dottið í hug sá mögu-
leiki að ráðherra myndi skipa í þetta
mikilvæga embætti með þessum
hætti. Þetta er algerlega fáránleg
ráðstöfun,“ segir hann.
Harpa er dóttir Þórs Magnússon-
ar, fyrrverandi þjóðminjavarðar. Að
því er segir í tilkynningu menning-
armálaráðuneytisins hefur Harpa
starfað við íslensk og erlend söfn í
rúm tuttugu ár. Hún hafi leitt starf-
semi Listasafns Íslands inn í nýja
tíma. Hún hafi meðal annars numið
við fornleifafræði- og listasögudeild
Sorbonne-háskóla í París og starfað
við safna- og fornleifafræðideild
Boulogne-sur-Mer borgar.
Segir að „með tilliti til farsællar
stjórnunarreynslu, víðtækra starfa
innan safnageirans og góðrar þekk-
ingar á málefnum Þjóðminjasafns-
ins“, hafi ráðherra ákveðið að nýta
heimild í lögum til að f lytja emb-
ættismann milli stofnana og skipa
Hörpu þjóðminjavörð. n
Prófessor segir ráðningu
þjóðminjavarðar hneyksli
Harpa Þórsdóttir og Lilja Dögg Alfreðsdóttir. MYND/AÐSEND
benediktboas@frettabladid.is
REYKJAVÍK Samþykkt var í borgar-
ráði á fimmtudag að leigja aðstöðu
fyrir nemendur Laugarnesskóla hjá
KSÍ. Greiðir borgin knattspyrnusam-
bandinu um 2,3 milljónir á mánuði.
Borgin þarf að bregðast við meðan
verið er að útbúa kennsluaðstöðu á
lóð skólans. Aðstaðan á Laugardals-
velli verður notuð undir kennslu-
stofur fyrir um 80 nemendur.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins bókuðu á fundi borgarráðs að
enn eitt dæmið um viðhaldsleysi á
skólahúsnæði borgarinnar væri að
ræða. Fram hafið komið við skóla-
setningu að húsnæðið væri myglað,
listgreinastofur ónothæfar og eldri
nemendur þyrftu að sækja sína
kennslu í KSÍ.
Enn væru ekki komnar fram
framtíðarlausnir fyrir skólastarf í
hverfinu þó mikil íbúðauppbygg-
ing hefði átt sér stað. Meirihlutinn
í borginni bókaði að mikil ánægja
hefði verið meðal nemenda og
starfsfólks með aðstöðuna hjá KSÍ.
„Þetta er góð lausn fyrir 6. bekk.“ n
Borgin leigir hjá KSÍ fyrir nemendur
Borgin greiðir KSÍ um 2,3 milljónir á
mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 Fréttir 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ