Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 78
tsh@frettabladid.is Listamannadvölin Saga Residency fer fram þessa vikuna á Eyrarbakka í fimmta sinn síðan 2015. Í þetta skiptið fer Saga fram í samstarfi við fangelsið Litla-Hraun og félagasam- tökin Múrar brotnir sem hefur það að markmiði að bjóða upp á lista- vinnusmiðjur í íslenskum fang- elsum. „Við höfum alltaf verið á einhvern hátt að vinna með samfélaginu á Eyrarbakka. Núna erum við sér- staklega að vinna með Litla-Hrauni. Helsta þemað okkar er samstarf með föngunum. Þannig að við erum að para saman listamenn og vistmenn,“ segir Hrefna Lind Lárus- dóttir, einn skipuleggjenda. Átta listamenn taka þátt í lista- mannadvölinni í ár og koma þeir meðal annars frá Bandaríkjunum, Kína, Póllandi og Íslandi. Lokaafurð verkefnisins er samsýning á verkum sem listamennirnir og fangarnir vinna saman og verður sett upp í Litla-Hrauni næsta mánudag. Á þriðjudag verður sýningin svo sett upp á Eyrarbakka í  Skrúfunni – grósku- og sköpunarmiðstöð fyrir bæjarbúa. Þetta hljóta að vissu leyti að vera svolítið krefjandi aðstæður. Hvernig hefur samstarfið gengið á milli lista- manna og fanga? „Það byrjaði alveg svakalega vel. Við erum náttúrulega stutt komin í ferlinu en við komum í gær og þeir bara stukku til, þeir voru svo spenntir að hitta alla listamennina og voru bara á fullu að spjalla og í hugmyndavinnu. En auðvitað erum við líka að fara út í einhvers konar óvissu á þann hátt að við vitum ekki hvort allir mæta á morgun sem mættu í gær. Það fer held ég svolítið bara eftir dagsforminu.“ Upphafið að samstarfinu við Litla-Hraun hófst þegar Saga Resi- dency var síðast haldin í byrjun árs 2020 en þá fengu listamennirnir að heimsækja fangelsið. Hrefna segir það hafa komið henni skemmtilega á óvart hversu vel fangelsisyfirvöld tóku í hugmyndina. „Þau eiginlega bara segja já við öllum hugmyndum. Við erum í raun að vinna eftir þeirri reglu að allt sé mögulegt. Eftir að við fórum þarna fyrir tveimur árum þá sáu þau bara hvað þetta hafði góð áhrif á vist- mennina, þannig að þau hafa alltaf sagt já við okkur.“ Er mikilvægt fyrir fanga að fá að sinna listsköpun? „Já, alveg svakalega mikilvægt. Þetta er oft fólk sem fúnkerar illa innan almenns kerfis, skólakerfis og samfélagslegs strúktúrs, en er afskaplega skapandi og vantar oft bara einhvern vettvang til að tjá sig.  Og líka bara að nýta tímann á meðan fólk er í fangelsi til að byggja sig upp og kynnast sjálfum sér betur.“ n Listsköpun innan fangelsisveggja Þátttakendur Saga Residency og forstöðumaður Litla-Hrauns. Frá vinstri: Halldór Valur Pálsson, Jess LoMonaco, Hrefna Lind Lárusdóttir, Jaclyn Gil- strap, Rahul, Claire, Brandur Karlsson, Kami Mierzvvinsk, Scott Shigeoka, Sally Rumble, Viv Li, Hera Fjord, Adam Rosendahl, Alex Maceda. MYND/AÐSEND Listahátíðin Hamraborg Festival fer fram í Kópavogi um þessar mundir. Berglind Jóna Hlynsdóttir er heiðurs- listamaður hátíðarinnar og sýnir marglaga verk sem teygir sig um svæðið. tsh@frettabladid.is „Hamraborgin fór bara að verða einhvers konar þráhyggja,“ segir Berglind Jóna Hlynsdóttir, heiðurs- listamaður hátíðarinnar Hamra- borg Festival, sem fer fram í miðbæ Kópavogs 26. til 28. ágúst. Sýning Berglindar ber titilinn Hamraborg fjöleignarhús og byggir á áralangri rannsókn Berglindar á sögu svæði- sins. Hamraborg f jöleignarhús er marglaga sýning sem byggir meðal annars á innsetningu sem Berglind hefur sett upp í gömlu Olís bensín- stöðinni í bílakjallara Hamraborgar og hljóðverki sem leiðir áhorfendur um svæðið. „Fyrir fjórum eða fimm árum síðan þá bauðst mér að vinna verk fyrir Gerðarsafn og þá hefst þessi rannsókn. Ég hef gengið um svæðið á ólíkum tímum dags, hef setið og skrásett umferð, hef komið með nemendur hingað og við höfum spáð í rýminu. En svo fer ég rosa mikið að skoða söguna og leita að fólki sem tengist byggingunni og skoða arkitektateikningar. Þá kemst ég að því að hérna hafi verið starfrækt sjónvarpsstöðin Hamra- borgarrásin sem ég geri heilt verk um í Gerðarsafni.“ Óborganleg heimild Hamraborgarrásin var sjónvarps- stöð sem var starfrækt af húsfélagi fjölbýlishússins Hamraborgar á 10. áratug síðustu aldar. Þórir Stein- grímsson, leikari og lögreglumað- ur, var stofnandi rásarinnar, sem Berglind segir vera einstaka fyrir sinn tíma. „Hún er alveg óborganleg heimild fyrir Ísland og íslenska menningu. Það er eitthvað svo ótrúlega bilað að húsfélag hafi lagt alvöru sjónvarps- kapal, bara fyrir sjálfa sig, búið til sjónvarpsstöð og varpað út. Þetta var mjög alvarleg sjónvarpsgerð, það voru f lottir fréttaskýringa- þættir, fjölþjóðlegir þættir og menn- ingarþættir,“ segir Berglind, en verk hennar Hamraborgarrásin var sýnt á sýningunni Skýjaborg í Gerðar- safni í fyrra. Rödd Hamraborgar Í hljóðverkinu sem sýnt er á Hamra- borg fjöleignarhús, persónugerir Berglind sjálfa Hamraborgina og gefur henni rödd. „Í nýja verkinu byrja ég að leita að þessari rödd Hamraborgar og reyna að skilja hver hún er, hvað hefur hún um þetta að segja? Við erum alltaf eitthvað að velta henni fyrir okkur. Þá nýti ég mér raddir almennings sem hefur í gegnum árin skrifað í blöðin, viðtöl, greinar og umfjall- anir í sveitarstjórnarblöðum. Þá tek ég upp skoðanir og hugmyndir almennings en sný þeim upp í hug- leiðingar Hamraborgarinnar.“ Að sögn Berglindar hefur Hamra- borgin ýmsar skoðanir á því hvað fólki finnst um hana og þeim miklu breytingum sem orðið hafa á skipu- lagi Kópavogs á undanförnum árum og áratugum. Hún vann hljóðverkið í samstarfi við listrænu feðgana Einar Örn Benediktsson og Kaktus Einarsson sem sköpuðu tónlist og hljóðmynd verksins. Þá ljáði leik- og söngkonan Thelma Marín Jónsdótt- ir verkinu rödd sína. Hljóðverkið er rúmlega 40 mínútna langt og leiðir áhorfendur í ferðalag um króka og kima Hamraborgar. „Hugmyndin er sú að fólk geti komið hérna hvenær sem er þegar sýningin er opin. Það getur bæði fengið lánað heyrnartól hjá mér en líka náð í verkið í símana sína. Hugmyndin er að fólk komi hérna og eyði svolitlum tíma með Hamra- borginni. Byrji hér á bensínstöðinni og setjist þar inn en fari svo og gangi um og týnist í bílakjallaranum og klifri upp stigann í garðinn. Hún er svolítið að leiða þig áfram,“ segir Berglind. Fullkomið samhengi Samhliða Hamraborg Festival kemur út bókin Með Hamraborgir á heilanum en Berglind Jóna er með texta og ljóð í þeirri bók. Þá hyggst hún einnig gefa út allan texta rann- sóknar sinnar á Hamraborginni og hljóðverksins í litlu riti sem verður fáanlegt á sýningunni. „Ég var beðin um að skrifa ljóð fyrir bókverkið um Hamraborgina. Þar eru bara rosalega f lottir höf- undar og við ætlum einhver okkar að lesa upp úr bókinni á Catalinu,“ segir Berglind. Eins og áður sagði hefur Berglind rannsakað Hamraborgina í langan tíma og er hún síður en svo hætt og vinnur nú að kórverki um sama efni. „Svo fannst mér þetta passa svo rosalega vel inn í hátíðina. Mér fannst þetta bara fullkomið sam- hengi fyrir þetta sögulega verk. Hamraborgin hún einhvern veg- inn innbyrðir alla og er í einhverju svona hátíðarsamtali,“ segir Berg- lind. Hamraborg fjöleignarhús er opin til 11. september. Sýningin er unnin í samstarfi við Y Gallery, Hamraborg Festival, Mekó og Gerðarsafn. n Með þráhyggju fyrir Hamraborg Berglind Jóna Hlynsdóttir, heiðurlistamaður Hamraborg Festival, sýnir meðal annars í gömlu bensínstöðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Verk Berglindar hefst í gömlu Olísbensínstöðinni í bílakjallara Hamraborgar. MYND/SKÚLI SKÚLASON Í nýja verkinu byrja ég að leita að þessari rödd Hamraborgar og reyna að skilja hver hún er, hvað hefur hún um þetta að segja? Berglind Jóna Hlynsdóttir Við erum í raun að vinna eftir þeirri reglu að allt sé mögulegt. Hrefna Lind Lárusdóttir tsh@frettabladid.is Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands stendur fyrir málþingi í Þjóðarbók- hlöðunni í tilefni þess að 250 ár eru liðin síðan fyrsti breski vísindaleið- angurinn heimsótti Ísland árið 1772. Málþingið fer fram mánudaginn 29. ágúst klukkan 13-18 og er haldið í samvinnu við sænska sendiráðið. Þennan sama dag fyrir 250 árum steig Sir Joseph Banks fæti á Ísland ásamt fjölmennu liði vísinda- og listamanna. Leiðangurinn vakti mikla athygli samtímamanna og í Napóleonsstríðunum reyndist Banks Íslendingum einstaklega vel. Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra setur málþingið og Jón Atli Benediktsson rektor HÍ f lytur ávarp. n Málþing um Sir Joseph Banks Málverk af Sir Joseph Banks eftir Sir Joshua Reynolds. 38 Menning 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 27. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.