Fréttablaðið - 27.08.2022, Síða 6

Fréttablaðið - 27.08.2022, Síða 6
en inni í því er enginn réttur til fjöl- skyldusameiningar,“ segir Liz. En það þýðir að Kevin yrði að fara úr landi. „Við áfrýjuðum málinu og veittum frekari upplýsingar en feng- um ítrekaðar neitanir,“ segir hún. Lögmaður ráðlagði þeim að stofna eigið fyrirtæki og ráða Kevin sem sérhæfðan starfsmann. En þá kom í ljós að sú leið var bæði mjög kostnaðarsöm og óvíst hvort hún myndi virka. „Þess vegna tókum við þá ömurlegu ákvörðun að flytja frá Íslandi þar sem það var óviðunandi fyrir okkur að dvelja í nokkra mán- uði til viðbótar án þess að vita hvort við fengjum að vera áfram.“ Flutningurinn kostar hjónin um 1,5 milljónir króna og Liz segir þau ekki eiga fyrir honum. „Við unnum hörðum höndum að því að byggja upp líf hérna og höfum verið virk í samfélaginu frá upphafi,“ segir hún. Segist hún hafa vonast til þess að geta starfað sem félagsráðgjafi þegar íslenskukunnáttan væri orðin næg. Áður en þau f luttu hingað, í ágúst árið 2021, höfðu þau heim- sótt landið margoft. „Við komumst að því að okkar gildi samrýmdust Íslandi mun betur en Bandaríkj- unum,“ segir Liz. Erla Björk Sigurgeirsdóttir, þjón- ustustjóri Eplis, segir það ekki í höndum atvinnurekenda að veita erlendum starfsmönnum atvinnu- leyfi. Það sé alfarið komið undir Útlendingastof nun og VMST. „Vinnumálastofnun samþykkti ekki umsóknina sem um sérfræðing væri að ræða og því fær fjölskylda við- komandi ekki landvistarleyfi, því miður. Þetta er ákvörðun sem er einungis á valdi stjórnvalda,“ segir hún. „Við gefum ekki erlendum starfsmönnum loforð um atvinnu- leyfi né getum stjórnað því á hvaða forsendum Vinnumálastofnun gefur út leyfið. Hins vegar þá getum við veitt umsækjendum vilyrði fyrir starfsráðningu, sem var gert.“ n Við áfrýuðum málinu og veittum frekari upplýsingar en fengum ítrekaðar neitanir. Liz McLaughlin Vinnumálastofnun tók tveggja ára iOS-tækniþjálfun bandarískrar konu ekki sem gilda sérhæfingu. Neyðast hún og eiginmaður hennar til að flytja úr landi þrátt fyrir vinnuaflsskort á Íslandi. kristinnhaukur@frettabladid.is ÚTLENDINGAMÁL Bandarísku hjón- in Liz og Kevin McLaughlin eru nú að undirbúa f lutning frá landinu eftir að Vinnumálastofnun (VMST) hafnaði umsókn um atvinnuleyfi. En þau höfðu menntað sig hér og höfðu hug á því að starfa og búa sér til líf á Íslandi. Kenna þau bæði vinnuveitandanum og ríkisstofn- unum um hvernig fór. Eftir að hafa numið hagnýta íslensku við Háskóla Íslands ákvað Liz að leita sér að vinnu í vor. Í apríl var hún ráðin iOS-tæknimaður hjá Epli. En hún hefur lært það fag hjá Apple. „Yf ir maður minn sótti um atvinnuleyfi fyrir sérhæfðan starfs- mann,“ segir Liz. „Hún sagði að annar erlendur starfsmaður hjá fyr- irtækinu hefði slíkt leyfi og á grund- velli þess að hún fullvissaði mig oft ákvað ég að sækja ekki um frekara nám. Eiginmaður minn gerði það ekki heldur, byggt á þessu.“ Í júlí fékk Liz hins vegar símtal frá Vinnumálastofnun þar sem henni var tilkynnt að umsókn um atvinnuleyfi vegna sérhæfingar væri synjað. Hún væri með háskólagráðu sem félagsráðgjafi og tveggja ára þjálfun hjá Apple væri ekki ígildi þess. Þetta kom henni mjög á óvart miðað við leiðbeiningarnar á vef stofnunarinnar. „Mér var í staðinn boðið sérstakt atvinnuleyfi vegna vinnuaflsskorts Neyðast til að flytja úr landi eftir að Vinnumálastofnun synjaði um leyfi Liz og Kevin McLaughlin undirbúa nú kostnaðar- saman flutning frá landinu. MYND/AÐSEND Palestína Palestínskir mótmælendur lentu í átökum við ísraelska hermenn og landnema í þorpinu Beit Led nálægt borginni Tulkarm á Vesturbakkanum í gær. Palest- ínumenn voru þar til að mótmæla stækkun ísraelskra landtökubyggða á hernámssvæðum Ísraela. Sjö mótmælendur slösuðust í átökunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA benediktboas@frettabladid.is ÁSTRALÍA Yfirvöld í Ástralíu upp- lýstu í gær að þau hefðu fundið um 1,6 tonn af metamfetamíni sem falið var í marmaraf lísum sem fluttar voru frá Miðausturlöndum til Sydney. Lögregluyfirvöld segja að þetta sé einn stærsti fíkniefna- fundur í sögu Ástralíu. Þrír menn voru handteknir eftir að 748 kíló af eiturlyfinu fundust snemma í þessum mánuði falin í 24 gámum. Rúmlega tonn fannst svo í 19 gámum sem komu í síðustu viku. Eiturlyfin voru send frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. John Wat son lög reg lu f u ll- trúi sagði á blaðamannafundi að magnið væri í raun yfirþyrmandi. Engar frekari handtökur hafa verið gerðar síðan efnin fundust en rann- sókn lögreglunnar beinist nú að því að finna þá sem sendu efnin. n Hátt í tvö tonn af fíkniefnum fundust í flísum benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG Nær samhljóða athuga- semdir bárust frá 99 aðilum um breytingu á aðalskipulagi hafnar- svæðis Hafnarfjarðar að megninu til smábátaeigendum, auk þess sem Landssamband smábátaeig- enda tekur heils hugar undir þær athugasemdir. Í athugasemdunum kemur fram að smábátaeigendum er ofarlega í huga aðgengi að smábátahöfninni og að þeir telji að auglýst breyting- artillaga feli í sér að aðgengi þeirra verði rýrt. Þær sex athugasemdir sem voru algengastar voru að bílastæðin og gatan Fornubúðir fara – nokkuð sem mætti alls ekki gerast. Fjöldi bílastæða þurfi að vera nægur. Eig- endur þurfi að geta keyrt nálægt f lotbryggjum vegna reglubundins eftirlits með bátunum í öllum veðr- um allan ársins hring, annað sé hættulegt. Að hægt verði að sinna viðhaldi báta á Skeljungsbryggju við hliðina á rampi. Huga þurfi að bílastæðum fyrir eigendur sport- bátaeigenda og að rampur til sjó- setninga verði áfram á sínum stað. Skipulagsyfirvöld þakka smá- bátaeigendum fyrrgreindar ábend- ingar, sem hafðar verða í huga við gerð deiliskipulags reitsins við Flensborgarhöfn en benda á að breytingin taki ekki til aðgengis og umferðarmála. Það verður gert á deiliskipulagsstigi. „Þegar vinna við gerð deiliskipulags reitanna sem snúa að smábátahöfninni við Flensborgarhöfn hefst, er góðs samráðs við smábátaeigendur vænst um fyrrgreindar ábend- ingar,“ segir skipulagsfulltrúi en Hafnarstjórn, sem tók málið fyrir í gær, vísaði málinu til staðfestingar í bæjarstjórn. n Smábátaeigendur samhljóma í mótmælum Svona á hin nýja Flensborgarhöfn að líta út. MYND/HAFNARFJARÐARHÖFN 6 Fréttir 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.