Fréttablaðið - 27.08.2022, Síða 12

Fréttablaðið - 27.08.2022, Síða 12
Mikil hætta er nú talin á því að kjarnorkuverið í Zapor­ ízjzja í Úkraínu skaddist og geislavirkni sleppi út í and­ rúmsloftið. Forstjóri Alþjóða­ kjarnorkumálastofnunarinn­ ar segist vilja leiða sendinefnd til Zaporízjzja. gar@frettabladid.is ÚKRAÍNA Síðasta af fjórum raflínum til kjarnorkuversins í Zaporízjzja í Úkraínu rofnaði um stutta stund á fimmtudaginn og fóru þá neyðar­ varnarkerfi og varaflastöðvar í gang í fyrsta skipti í sögu orkuversins. „Örugg, utanaðkomandi raforka er grundvallaratriði til að tryggja kjarnorkuöryggi,“ sagði Rafael Mariano Grossi, forstjóri Alþjóða­ kjarnorkumálastofnunarinnar, IAEA, í yfirlýsingu af þessu tilefni. Sagði Grossi að einhver atvik kæmu upp nærri kjarnorkuver­ inu næstum á hverjum degi. „Við megum engan tíma missa,“ sagði Grossi. „Ég er ákveðinn í að leiða í eigin persónu sendinefnd frá IAEA að verinu á næstu dögum til að aðstoða við að koma stöðugleika á öryggismálin þar. Gríðarlegur hiti skapast í öllum kjarnorkuverum við framleiðslu rafmagns. Kjarnaofnarnir sex í Zaporízjzja voru hannaðir á sínum tíma í Sovétríkjunum. Í þeim eru rafmagnsdælur sem dæla vatni í gegn um kjarnann í ofnunum. Afgerandi er því að rafmagn til að knýja kælingarbúnaðinn bregðist ekki. „Ef kælingin er rofin getur elds­ neyti brætt sig í gegn um stálið og í verstu tilfellum getur myndast leki og geislavirkni sleppur út í andrúmsloftið,“ bendir bandaríski vísindamaðurinn Edwin Lyman á í færslu á bloggsíðu sinni. Fari allt á versta veg gæti orðið afar alvarlegt kjarnorkuslys á borð við þau sem urðu i Tsjernobíl í Úkraínu árið 1986 eða í Fukushima í Japan árið 2011. n Karlakór Reykjavíkur leitar að liðsauka og framundan eru raddpróf fyrir áhugasama söngmenn þar sem raddsvið er kannað og tónheyrn er metin. Kunnátta í nótnalestri er kostur en ekki skilyrði Ef þú ert fimmtugur eða yngri og hefur áhuga á að syngja með okkur þá hvetjum við þig til að senda línu með helstu upplýsingum á kristinnssonfridrik@gmail.com fyrir 1. sept. og við höfum samband. Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 1926 og hefur starfað samfleytt síðan, en þó stopult undanfarin 2 ár vegna samkomutakmarkana. Hápunktar vetrarstarfs Karlakórs Reykjavíkur eru annarsvegar árlegir aðventu tónleikar í Hallgrímskirkju og hinsvegar vortónleikar í maí. Viðfangsefni eru krefjandi og skemmtileg og félagskapurinn góður. Kórinn fer reglulega í söngferðir til útlanda og stefnt er að því að sækja frændur vora Færeyinga heim nú í byrjun aðventu. Æft er í safnaðarheimili Háteigskirkju alla þriðjudaga og síðasta fimmtudag hvers mánaðar kl.19.00 frá september fram að vortónleikum, en þá gerum við upp vetrarstarfið ásamt mökum okkar og fögnum vori í gleði og söng. Vilt þú slást í hópinn? Samtök sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu (SSH) auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Sóleyju vegna nýsköpunar- og samstarfsverkefna annars vegar á sviði umhverfis- og samgöngumála og hins vegar á sviði velferðar- og samfélags Framangreind verkefni eru meðal áhersluverkefna í Sóknaráætlun höfuð- borgarsvæðisins 2020-2024 en markmiðið styrkveitinganna er að hvetja til þátttöku atvinnulífsins í slíkum verkefnum og styðja við verkefni sem tengja saman atvinnulíf og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og efla samstarf þeirra. Í ljósi þess verða aðeins veittir styrkir til lögaðila, en ekki einstaklinga. Fjármunir til úthlutunar úr sjóðnum vegna hvers málaflokks um sig eru 5,0 milljónir kr. Hámarksfjárhæð úthlutunar til einstakrar styrkumsóknar er 1,0 milljón kr. Starfsreglur sjóðsins og umsóknareyðublað eru aðgengileg á heimasíðu SSH: http://www.ssh.is/soley. Umsókn skal jafnframt fylgja 8-12 glæru kynning á pdf-formi (pitch deck) þar sem fram kemur: • Rökstuðningur þess að verkefnið sé nýsköpunarverkefni á sviði umhverfis- og samgöngumála eða velferðar- og samfélags og falli að ofangreindum markmiðum. • Greinargóð lýsing á verkefninu, auk verk- og tímaáætlunar. • Fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun), auk upplýsinga um aðra fjármögnun sé hún til staðar. • Rökstuðningur þess að umsækjandi hafi faglega og fjárhagslega getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd. Sé umsókn ekki til samræmis við framangreint verður hún ekki tekin til efnislegrar meðferðar. Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins: https://ssh.is/soknaraaetlun. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til og með 20. september 2022. Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 20. nóvember 2022. Úthlutunarnefnd áskilur sér rétt til að leggja til að öllum umsóknum verði hafnað. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Hamraborg 9, 200 Kópavogi Sími: 564 1788 Netfang: ssh@ssh.is Hætta á geislavirkni frá Zaporízjzja Kjarnorkuverið í Zaporízjzja þuri að styðjast við varaa frá dísilrafstöðvum eir að rússneskar sprengjur slógu út rafmagni og truuðu mikilvæga dælingu kælivatns um kjarnaofnana. Heimild: IAEA, ResearchGate, Reuters Mynd: Google Earth © GRAPHIC NEWS Rívne Kmelnetskí Tsjernobíl Suður- Úkraína Zaporízjzja Kænugarður Rússland Úkraína Svæði stýrt af Rússum Orkuver Kjarnaofn Aengdur kjarnaofn Kælitjörn Geymsla fyrir geislavirkan úrgang Kjarnorkuverið í Zaporízjzja Tveir af sex kjarnaofnum eru virkir VVER-1000/320 kjarnaofnar: Sex kjarnaofnar hannaðir á Sovétímanum. Vélbúnaður fyrir stýristangir Þrýstiklefahlíf Þrýstikle¡ Forkæling: Rafmagnsdælur þrýsta vatni gegn um kjarnann. Kælibilun: Eldsneyti hitnar og getur brætt sig í gegn um þrýstiklefann og losað geislavirkni út í andrúmsloið. Inntak fyrir kælivatn Úttak fyrir kælivatn Kjarnahlíf Kjarninn og eldsneytisstangir 1 2 3 4 5 6 Öryggi kjarnorkuversins í Zaporízjzja afar ótryggt Rafael Mariano Grossi, forstjóri IAEA Kjarnorkuverið í Zaporízjzja þar sem hætta er talin á að geislavirkni sleppi út í andrúmsloftið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY benediktboas@frettabladid.is BRETLAND Fjögurra daga verkfall breska póstsins hófst í gær en talið er að 115 þúsund manns hafi gengið út af vinnustað sínum. Pósturinn gaf út yfirlýsingu í gær þess efnis að bréf og bögglar yrðu ekki borin út um helgina. Þó verða gerðar undan­ tekningar á sendingum frá læknum og neyðarsendingum. „Við getum ekki búið í landi þar sem yfirmenn og eigendur raka inn milljörðum en starfsmenn þurfa að notast við matarbanka. Yfirmenn okkar fengu 758 milljónir punda í sinn hlut á síðasta ári og hluthafar rökuðu inn yfir 400 milljónum punda. Þetta getur ekki gengið og við sættum okkur ekki við þetta,“ segir Dave Ward formaður verka­ lýðssambandsins Communication Workers Union í samtali við Sky News. Samk væmt fréttum Sky var hagnaður póstsins 416 milljónir punda á síðasta ári eða 69 millj­ arðar króna. n Verkfall hafið hjá breska póstinum Hagnaður breska póstsins var 69 milljarðar í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 12 Fréttir 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.