Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 13
gar@frettabladid.is
VÍSINDI Mikið áhorf á sjónvarp
getur aukið líkur á því að fólk fái
elliglöp. Þetta segir spænska blaðið
El País vera niðurstöðu rannsóknar
sem gerð var á yfir nærri 150 þúsund
manns í Bandaríkjunum.
Fólk sem notar gagnvirka miðla
eins og tölvur þróar hins vegar síður
með sér elliglöp. Rannsóknin sýnir
að kyrrseta hafi í sjálfu sér ekki
áhrif á heila fólks heldur skipti máli
hvað sé verið að gera á meðan setið
er. Hreyfing út af fyrir sig leiðir hins
vegar til minni hættu á elliglöpum
auk þess að hafa jákvæð áhrif á
heilsu fólks almennt. n
Sjónvarp getur
leitt til elliglapa
Litili örvun er af sjónvarpsglápi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Lokafrestur til að skila ársreikningi
rennur út 31. ágúst 2022
Skila ber ársreikningi eigi síðar en mánuði eftir að reikningurinn
var samþykktur á aðalfundi félags, þó eigi síðar en átta mánuðum
eftir lok reikningsárs. Sérstök athygli er vakin á því að skili félag
ársreikningi síðar en mánuði eftir aðalfund verður félagið sektað.
Á vefnum skatturinn.is/fyrirtaekjaskra má sjá hvort að
ársreikningi hafi verið skilað.
Örfélög geta nýtt sér hnappinn og látið Skattinn útbúa ársreikning
félagsins að því tilskyldu að þau hafi skilað skattframtali.
Ekki er heimilt að staðfesta hefðbundin ársreikning á aðalfundi
félags en senda svo inn hnappsreikning í stað þess reiknings sem
staðfestur var á aðalfundi.
Senda skal inn til opinberrar birtingar þann ársreikning sem
staðfestur var á aðalfundi viðkomandi félags. Ekki er heimilt að
breyta eða fella niður neinar upplýsingar í þeim ársreikningi sem
sendur er inn til opinberrar birtingar.
Sekt vegna vanskila nemur 600.000 kr.
442 1000
Upplýsingaver er opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00fyrirtaekjaskra@skatturinn.is
benediktboas@frettabladid.is
PAKISTAN Um níu hundruð manns
hafa látist vegna sögulegrar rign-
ingar í Pakistan en samkvæmt BBC
hefur rigningin áhrif á um 33 millj-
ónir manna.
Sherry Rehman, loftslagsráðherra
Pakistan, segir í samtali við BBC að
þjóðin þurfi alþjóðlega hjálp enda
sé þetta áttundi hringur monsún-
rigninga sem í venjulegu ári fari í
þrjá til fjóra hringi. Þjóðin þurfi
tjöld, mat og lyf.
Samkvæmt frétt BBC hafa um
400 þúsund heimili eyðilagst og 184
þúsund manns þurft að flýja heimili
sín. Innanríkisráðherra Pakistan,
Ahsan Iqbal, sagði fyrr í mánuð-
inum að flóðin hefðu haft áhrif á 15
prósent þjóðarinnar eða um og yfir
33 milljónir.
Ástandið er hvað verst í suður-
hluta landsins en héraðið Sindh
hefur fengið áttfaldan skammt af
rigningu miðað við í venjulegu ári.
Skólp flæðir upp og rusl f lýtur um
göturnar. n
Enn slegið rigningarmet og Pakistan þarf hjálp
Nær tvö hundruð þúsund manns hafa misst heimili sín. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
BANDARÍKIN Derek Chauvin, lög-
reglumaðurinn sem drap George
Floyd með því að krjúpa á hálsinum
á honum í rúmar níu mínútur, var
færður úr öryggisfangelsi í Minne-
sota yfir í fangelsi í Arizona þar sem
öryggiskröfurnar eru minni.
Chauvin var yfirleitt í einangrun
í Minnesota í klefa sem var nokkrir
fermetrar. Í fangelsinu sem hann
fer í núna eru 266 fangar og þar eru
bæði karlar og konur.
Randilee Giamusso, talsmaður
fangelsismála í Bandaríkjunum,
neitaði að tjá sig um málið við Los
Angeles Times en samkvæmt frétt
blaðsins er talið líklegra að Chau-
vin verði ekki fyrir árásum í venju-
legum fangelsum.
Blaðið segir að með því að færa
hann séu minni líkur á að hann rek-
ist á fólk sem hann hafi handtekið.
Chauvin var dæmdur í 22 ára
fangelsi fyrir morðið á Floyd en
morðið orsakaði reiðiöldu yfir öll
Bandaríkin. n
Derek Chauvin
í annað fangelsi
Derek Chauvin
gar@frettabladid.is
HVÍTA-RÚSSLAND Herflugvélum af
gerðinni SU-24 í Hvíta-Rússlandi
hefur verið breytt til fyrra horfs
þannig að þær geti borið kjarnorku-
sprengjur. Þetta sagði Alexander
Lúkasjenko, forseti landsins, í gær.
Er þetta gert þrátt fyrir að Hvít-
Rússar eigi engin kjarnorkuvopn.
Að sögn Lúkasjenko er þessi ráð-
stöfun í samráði við Vladímír Pútín,
forseta Rússlands. Hvít-Rússar hafa
til þessa veitt Rússum aðgang að
landi sínu í sambandi við innrás
þeirra síðarnefndu í Úkraínu. n
Breyta flugvélum
fyrir kjarnavopn
LAUGARDAGUR 27. ágúst 2022 Fréttir 13FRÉTTABLAÐIÐ