Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 18
Sandra Sigurðardóttir
markvörður Vals og
íslenska landsliðsins er
leikjahæsti leikmaður
inn í sögu bikarkeppni
kvenna með 52 leiki.
Olga Færseth er marka
hæsti leikmaður bikar
keppni kvenna frá
upphafi með 47 mörk í
44 leikjum.
Tveir núverandi leik
menn Vals urðu bikar
meistarar með félaginu
síðast árið 2011, það
eru þær Mist Edvards
dóttir og Elín Metta
Jensen.
Natasha Anasi, fyrirliði
Breiðabliks í fjarveru
Ástu Eirar, hefur einu
sinni farið í bikarúrslit.
Þá með ÍBV þar sem
liðið laut í lægra haldi
gegn Breiðabliki.
Má búast við skemmtilegum leik á milli sterkra liða?
Elísa
Viðarsdóttir
fyrirliði Vals
„Leikurinn leggst
vel í mig. Við
erum nýlentar
út úr Meistara-
deildarævintýri.
Það er búinn að
vera mikill stígandi í liðinu og
við vonum að sá stígandi haldi
áfram á laugardag,“ segir Elísa,
en Valskonur komust í aðra
umferð undankeppni Meistara-
deildar Evrópu á dögunum.
Áhorfendur mega búast
við skemmtilegum leik á
Laugardalsvelli í dag. „Það eru
alltaf góðir leikir þegar Valur
og Breiðablik mætast. Ég held
það verði engin undantekning
þar á.“
Valur hefur ekki unnið
bikarkeppnina síðan 2011.
Þá vann liðið KR 0-2 í úrslita-
leiknum. Liðið hefur þó unnið
tvo Íslandsmeistaratitla síðan.
Elísa segir liðið ekki finna fyrir
aukinni pressu í aðdraganda
leiksins í dag, þrátt fyrir að langt
sé síðan liðið vann keppnina.
„Það er engin pressa. Við
erum búnar að vera að gera vel
í deild undanfarin ár. Því miður
hefur bikarinn ekki gengið. Við
erum hungraðar í að koma með
bikarinn heim á Hlíðarenda.“
Natasha Anasi
varafyrirliði
Breiðabliks
„Ég er rosalega
spennt,“ segir
Natasha, létt í
bragði fyrir leik.
„Þegar það er
bikar að vinna
eru tilfinningarnar alltaf
miklar.“
Natasha er ekki að leika
sinn fyrsta bikarúrslitaleik.
Árið 2016 var hún á mála hjá
ÍBV, sem laut í lægra haldi fyrir
Breiðabliki, félagi hennar í dag.
„Nú er ég hjá Breiðabliki að
spila á móti Val, það er svolítið
fyndið.“
Hún hrósar liði Vals í hástert
og segir það afar sterkt. Nat-
asha og stöllur eru þó einnig
með gott lið. „Þær eru rosalega
góðar, skipulagðar og með
mikla reynslu. Við erum ekki
með eins mikla reynslu en með
alveg nógu gott lið til að stríða
þeim á vellinum.“
Natasha var spurð að því
hvort hún og liðsfélagar
hennar hefðu gert eitthvað
öðruvísi í aðdraganda leiksins
til að þétta raðirnar. „Þú gerir
alltaf eitthvað skemmtilegt en
þú vilt ekki breyta of mikið.“
18 Íþróttir 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 27. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Það verður mikið um dýrðir
á Laugardalsvelli í dag þegar
tvö sigursælustu lið íslenskrar
kvennaknattspyrnu, Valur og
Breiðablik, mætast í úrslita-
leik Mjólkurbikarsins. Það er
meira í húfi en bara bikar í
dag því liðið sem stendur uppi
sem bikarmeistari verður um
leið eitt á toppnum yfir fjölda
bikarmeistaratitla frá upphafi.
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI Valur og Breiðablik hafa
um áratugi trónað á toppi íslenskr-
ar kvennaknattspyrnu með þrettán
bikarmeistaratitla hvort og eru um
leið sigursælustu lið efstu deildar
frá upphafi. Breiðablik með 18
Íslandsmeistaratitla og Valur 12.
Valskonur eru ríkjandi Íslands-
meistarar undir stjórn íslensku
knattspyrnugoðsagnarinnar Pét-
urs Péturssonar, en þær glíma nú
við grýlu sem hefur elt liðið undan-
farinn áratug. Valur hefur nefnilega
ekki orðið bikarmeistari í kvenna-
flokki síðan árið 2011 þegar félagið
vann sinn þrettánda titil með 2-0
sigri á erkifjendum sínum í KR.
Gullaldartímabil Valskvenna
í bikarkeppninni var án efa árin
1984-1988 þegar liðið einokaði
bikarmeistaratitilinn. Eftir það fór
að líða lengra á milli bikarmeist-
aratitlanna.
Liðið hefur þó haft betur gegn
Breiðabliki á tímabilinu til þessa.
Liðin hafa mæst einu sinni í sumar,
á Kópavogsvelli í leik sem Valur
vann með einu marki gegn engu.
Þá sitja þær í 1. sæti Bestu deildar-
innar með fjögurra stiga forskot á
Breiðablik.
Blikakonur hafa titil að verja
í leik dagsins eftir að hafa borið
sigur úr býtum gegn Þrótturum í
úrslitaleiknum í fyrra. Innan leik-
mannahóps liðsins eru leikmenn
sem hafa unnið þennan titil áður
þó ekki megi draga úr áföllunum
sem hafa dunið á liðinu í aðdrag-
Fjöldi bikarmeistaratitla
Valur
13
1984, 1985, 1986, 1987, 1988,
1990, 1995, 2001, 2003, 2006,
2009, 2010, 2011
Breiðablik
13
1981, 1982, 1983, 1994, 1996,
1997, 1998, 2000, 2005, 2013,
2016, 2018, 2021
Fyrri bikarúrslitaleikir liðanna
1981 Breiðablik 4-0 Valur
1982 Breiðablik 1-1 Valur (7-6 eftir vítaspyrnukeppni)
1986 Valur 2-0 Breiðablik
1996 Breiðablik 3-0 Valur
1997 Breiðablik 2-1 Valur
2001 Valur 2-0 Breiðablik
2006 Breiðablik 3-3 Valur (1-4 eftir vítaspyrnukeppni)
2009 Valur 1-1 Breiðablik (5-1 eftir framlengingu)
Sigursælustu lið bikarkeppninnar mætast
Það verður
mikil gleði í
Laugardalnum
í dag þegar
barist verður
um bikarinn
stóra. Valur er
sigurstranglegri
aðilinn en á degi
sem þessum
getur allt gerst.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
anda leiksins. Tveir af bestu leik-
mönnum liðsins, fyrirliðinn Ásta
Eir Árnadóttir og landsliðskonan
Agla María Albertsdóttir, eru báðar
fjarverandi vegna meiðsla.
Hefð getur hins vegar skipt máli
í svona aðstæðum og í því tilfelli
er sagan með Breiðabliki undan-
farin ár. Frá því að Valskonur unnu
síðasta bikarmeistaratitil sinn árið
2011 hefur Breiðablik orðið bikar-
meistari fjórum sinnum.
Þessi tvö sigursælu lið eiga sér
sögu í úrslitaleik bikarkeppninnar,
sögu sem teygir sig aftur til ársins
1981 þegar liðin mættust fyrst í
úrslitaleik keppninnar. Alls hafa
liðin spilað átta úrslitaleiki sín á
milli í keppninni og eftir þá stendur
staðan jöfn. Fjórir sigrar á lið. n