Fréttablaðið - 27.08.2022, Side 30
Háskólinn í Reykjavík | Menntavegur 1 | 101 Reykjavík | S: 599 6200 | hr.is
Staða forstöðumanns
grunnnáms við
viðskiptadeild HR
Nánari upplýsingar veita Jón Þór Sturluson, deildarforseti viðskiptadeildar (jonthor@ru.is) og Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri HR
(esterg@ru.is). Umsóknum skal skilað á ráðningarvef Háskólans í Reykjavík, jobs.50skills.com/ru/is, eigi síðar en 11. september 2022.
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst. Fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík leitar að öflugum einstaklingi í stöðu forstöðu-
manns grunnnáms við viðskiptadeild sem auk þess sinnir kennslu og/eða rannsóknum.
Ráðið verður í stöðu háskólakennara, lektors, dósents eða prófessors út frá hæfismati.
Viðkomandi mun sinna stjórnun og rekstri grunnnáms við viðskiptadeild í viðskiptafræði og hagfræði, í samstarfi við deildarforseta ásamt
öðrum verkefnum við kennslu og rannsóknir eftir atvikum. Starfið veitir tækifæri til að hafa veruleg áhrif á þróun náms við framsækna
viðskiptadeild þar sem áhersla er lögð á nýsköpun- og frumkvöðlastarf, sjálfbærni og alþjóðlega hæfni.
2022 - 2025
HÆFNISKRÖFUR
– Meistapróf eða doktorspróf í viðskipta- eða hagfræði.
– Reynsla af kennslu á háskólastigi
– Reynsla á sviði stjórnunar
– Hæfni í mannlegum samskiptum
– Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
– Reynsla á sviði rannsókna og þekkingarmiðlunar er kostur
– Reynsla af alþjóðlegu samstarfi er kostur
EFTIRFARANDI GÖGN ÞURFA
AÐ FYLGJA UMSÓKNUM:
– Kynningarbréf
– Starfsferilskrá ásamt ritaskrá
– Afrit af viðeigandi prófskírteinum
– Yfirlit um áhugasvið og áherslur í kennslu (e. teaching statement)
– Yfirlit um fyrirhugaðar rannsóknir, ef við á (e. research statement)
– Afrit af þremur til fimm birtum ritverkum (ef við á)
– Gögn til vitnis um árangur í kennslu
– Upplýsingar um a.m.k. tvo umsagnaraðila
Háskólinn í Reykjavík hefur haslað sér völl sem öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðavísu. Háskólinn stenst samanburð
við erlenda háskóla í fremstu röð og fræðafólk skólans hefur náð framúrskarandi árangri. Kennsla og rannsóknir við
Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf,
alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.
HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg
samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr
jafnrétti og virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 4.000 í sjö deildum
og starfsfólk er um 300 talsins, auk 350 stundakennara.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
2 ATVINNUBLAÐIÐ 27. ágúst 2022 LAUGARDAGUR