Fréttablaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 36
Æskulýðsfulltrúi
Njarðvíkursóknir
Njarðvíkursóknir óska eftir að ráða æskulýðsfulltrúa
með haldgóða menntun og / eða reynslu úr starfi
með börnum og unglingum.
Umsóknarfrestur er til 1. september 2022.
Sjá nánar á
50 % starf Ný staða
Skólameistari
Verkmenntaskóla
Austurlands
Hæfni og menntunarkröfur
Skólameistari veitir skólanum forstöðu, stjórnar daglegum rekstri og starfi
skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir,
aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Þá ber skólameistari
ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt auk þess að hafa
frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans sbr. 2.
mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008. Að auki gegnir skólameistari
mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár
framhaldsskóla og er mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað
þetta varðar.
Mennta og barnamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að
fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla,
nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996,
með síðari breytingum.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2022.
Nánari upplýsingar er að finna
á vef Starfatorgs: starfatorg.is.
• Starfsheitið kennari ásamt viðbótarmenntun í stjórnun eða
kennslureynslu á framhaldsskólastigi er skilyrði.
• Umfangsmikil stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni.
• Þekking á fjármálum, rekstri og áætlanagerð.
• Reynsla af mannauðsmálum.
• Góð samskiptahæfni og færni í að skapa liðsheild á vinnustað.
• Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótunarvinnu.
• Þekking og reynsla af stjórnsýslu.
• Skýr framtíðarsýn og hæfileiki til nýsköpunar.
Sérfræðingur í Barnahúsi
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í Barnahúsi. Barnahús sinnir málefnum barna sem
grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegu eða líkamlegu ofbeldi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Meðferðarviðtöl við börn sem eru þolendur kynferðis-/líkamlegs ofbeldis.
• Ráðgjöf við barnaverndarnefndir vegna meintra ofbeldisbrota.
• Rannsóknarviðtöl við börn sem þolendur.
• Skýrslu- og vottorðaskrif.
• Önnur verkefni sem forstöðumaður Barnahúss ákveður.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf eða sambærilegt nám skilyrði.
• Reynsla á sviði meðferðar barna, af vinnu með þolendum ofbeldis, vinnu með foreldrum og af
barnaverndarstarfi æskileg.
• Krafa um mjög góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti.
• Krafa um enskukunnáttu, kunnátta í einu norðurlandamáli æskileg.
• Góð samstarfshæfni, sveigjanleiki og jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnamiðað.
• Mikilvægt er að geta starfað vel undir álagi í lengri eða skemmri tíma.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðeigandi
stéttarfélög hafa gert. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu
umsókna um starfið gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda.
Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur
störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur alla til að sækja um, óháð kyni.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir þær hæfniskröfur sem gerðar eru. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda
í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.
Starfshlutfall er 100% • Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2022
Barnvæn SamstígaOpin Fagleg
Nánari upplýsingar veitir Margrét K. Magnúsdóttir • margret@barnahus.is • 530 2500
Hægt er að sækja um starfið á www.starfatorg.is
M
Y
N
D
: U
N
SP
LA
SH
/B
EN
W
IC
K
S
Official Residence
ManageR/HOusekeepeR
A Senior US Diplomat is recruiting a full-time
House Manager/Housekeeper.
Responsibilities involve full house cleaning duties, including
laundry and ironing, as well as preparing the table and serving
at official dinners and events. The House Manager ensures the
smooth operation of the Chief of Mission Residence, managing the
Chef, coordinating services and deliveries, assisting with event
planning and preparations, and maintaining expense records and
accounts.
Must be proficient in English and some Icelandic is helpful.
Must be willing to work flexible hours, which may include
evenings and weekends, as needed.
Closing date is September 05, 2022.
Please send your resume to: reykjavikvacancy@state.gov