Fréttablaðið - 27.08.2022, Qupperneq 68
Stefán Jón Hafstein sem hefur
dvalið langdvölum erlendis
ræðir um árin í fjölmiðlum
sem hann segir hafa verið líf
sitt og yndi, en fer ekki eins
fögrum orðum um borgar-
pólitíkina sem framkvæmda-
gleðin leiddi hann út í.
Við Stefán Jón hittumst á
kaffihúsi í miðborginni
á fallegum degi í liðinni
viku. Þessi geðþekki
maður sem var um
tíma einn þekktasti fjölmiðlamaður
landsins og í þokkabót tvívegis kjör-
inn kynþokkafyllsti maðurinn, var
nú sestur með rjúkandi kaffibolla til
að ræða málin. Hann var þó ekkert
sérstaklega spenntur að ræða gamla
tíma og gekk jafnvel svo langt að
segja manninn sem hann hafði eitt
sinn að geyma í raun ekki lengur til,
nema sem góða minningu.
Stefán Jón segir fjölmiðlastarfið
hafa verið hans líf og yndi. Hann sé
mjög þakklátur fyrir þau tækifæri
sem honum hafi hlotnast yfir ævina
– hann hafi verið mjög heppinn. „Að
sama skapi er ég ekkert mjög mikið
að dvelja við það sem er búið. Ég sit
ekki heima og hlusta á gamlar spólur
af sjálfum mér. Ég spila ekki gamla
Gettu betur þætti og ég er ekki með
úrklippusafn þannig að það sem var
mikilvægt, það fylgir manni og hitt
var bara mjög skemmtilegt,“ segir
Stefán Jón og hlær.
Fjölmörg verkefni
Það er óhætt að segja að Stefán Jón
hafi marga fjöruna sopið. Hann náði
hápunkti í fjölmiðlum snemma
og færði sig yfir í borgarpólitík í
kringum aldamótin 2000. Þaðan
sem leiðin lá alla leið til Afríku þar
sem hann vann við þróunarhjálp í
hátt í áratug. Stefán Jón segir dvöl-
ina í Afríku hafa verið gefandi og
skemmtilega en hann sinnti fjöl-
mörgum verkefnum þar í þremur
löndum, Namibíu, Malaví og
Úganda.
Aðspurður út í skiptin úr fjöl-
miðlum í pólitík segir Stefán Jón þá
vettvanga svolítið samtengda. Hann
hafi alltaf verið jafnaðarmaður að
upplagi og byrjað sem borgar-
fulltrúi fyrir Reykjavíkurlistann
og svo síðar fyrir Samfylkinguna.
„Reykjavíkurlistinn var módel sem
gekk mjög vel upp hér og sýndi svo-
lítið hvað er að hægt að gera ef fólk
sameinast. Maður vildi vera með
í að vinna í þessari sameiningar-
hugsjón og það var svolítið drif-
krafturinn hjá mér. Ég ætlaði ekk-
ert endilega í framboð og fór ekkert
í framboð fyrr en seint og um síðir,“
segir Stefán Jón þegar hann rifjar
upp gamla tíma.
Stefán Jón valdi borgarpólitík
fram yfir Alþingi og segir hann
ástæðuna hafa verið framkvæmda-
gleðina. „Í borgarstjórn fær maður
að gera eitthvað. Tala nú ekki um
ef maður er í meirihluta, þá er það
ægilega gaman.“ Það hafi í raun
verið mikið ógæfuspor þegar
Reykjavíkurlistinn var lagður
niður. „Ég meina, við gáfum bara
frá okkur borgina,“ segir Stefán Jón
og bætir við að það hafi verið stór-
kostleg mistök að nýta ekki sam-
einingarkraftinn meira, í lands- og
borgarmálunum. „Við erum nátt-
úrulega búin að vera með vinstri-
miðaðar tilraunir í borginni mikið
til síðan. Þetta fór náttúrulega allt
í hund og kött,“ segir Stefán Jón og
vísar til þess eftirminnilega tíma
þegar borgarstjórar komu og fóru
í löngum röðum á nokkurra ára
tímabili. Á þeim tíma fékk Stefán
Jón sig fullsaddan af vitleysunni
og tók sér frí frá pólitíkinni og fékk
starf við þróunarsamvinnu í Nami-
bíu í Afríku til tveggja ára. Hann
snéri þó aldrei aftur í pólitíkina líkt
og til stóð því hann var beðinn um
að halda áfram starfi sínu í Afríku
sem hann ákvað að gera og varð
umdæmisstjóri í Malaví. „Ég sá
að þetta var miklu meira gefandi,
spennandi og áríðandi.“
Breytir fólki
„Pólitík getur verið algjör viðbjóður.
Hún er viðbjóður og breytir fólki til
hins verra. Það var eitt af því sem ég
lofaði sjálfum mér að gera ekki en
ég gat ekki alveg staðið við,“ segir
Stefán Jón, en hann minnist orða
fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðs-
ins, Matthíasar Johannessen, um að
hann hefði á sínum fjörutíu árum í
fjölmiðlum engan stjórnmálamann
hitt sem hefði orðið betri maður af
því að vera í stjórnmálum. Einn
eða tveir hefðu sloppið skaðlausir.
„Þetta las ég þegar ég var að byrja í
pólitík. Ég ætlaði ekki að verða einn
af þessum sem urðu verri mann-
eskjur. Margir eiga eftir að mótmæla
þessu og það er allt í lagi en hvað
þetta varðar held ég að Matthías
hafi haft rétt fyrir sér og svo fór
maður að sjá þetta. Þetta var mjög
mikilvæg lífsreynsla og merkileg –
en þetta er hættulegt,“ segir Stefán
Jón og heldur áfram: „Þegar ég fann
það að maður var byrjaður að segja
eða íhuga eitthvað sem var ekki í
karakter þá á maður að hætta.“
Æskuvinurinn
Stefán Jón brennur enn fyrir
ýmsum samfélagsmálum og er
mikill umhverfisverndarsinni og
sést það vel í nýútgefinni bók hans
Heimurinn eins og hann er. Þau eru
ekki lítilfjörleg málin sem hann
veltir upp í bókinni. Stefán Jón segir
að upphaflega hafi aldrei staðið til
að koma frásögninni fyrir augu
almennings. Hann hafi eingöngu
skráð niður minnispunkta fyrir
sjálfan sig en punktana hóf hann
að skrifa hjá sér þegar æskuvinur
hans, Viktor Smári, greindist með
banvænt krabbamein árið 2018. Þá
var Stefán Jón nýfluttur til Rómar-
borgar á Ítalíu eftir hátt í áratug í
þróunarstarfi í Afríku. Stefán Jón
segir skrifin hafa verið leið til að
hjálpa sér að takast á við fréttirnar.
Í kjölfarið hafi hann orðið næmari
á umhverfið og áttað sig enn frekar
á þeirri ógnvænlegu stöðu sem
heimurinn stendur frammi fyrir,
loftslagsvánni, hruni vistkerfanna
og hinu ótrúlega rugli í matvæla-
kerfum mannkyns. „Það er ekki
eitt, það er allt sem tengist, sem er
leiðarstef bókarinnar.“ Undir lokin
hafi honum þótt mikilvægt að gefa
söguna út.
Veikindi Viktors Smára fylgja
lesanda í gegnum bókina en hann
var að berjast við krabbameinið yfir
þann tíma sem bókin var í vinnslu.
„Síðan átti bókin að enda þannig að
það væri von en svo lést hann í byrj-
un ársins,“ segir Stefán Jón klökkur,
en þeir höfðu verið vinir frá blautu
barnsbeini. Stefán Jón segir Vikt-
or Smára oft hafa minnst á það að
tíminn ynni ekki með honum og að
það væri í raun tenging við okkur öll
í tengslum við loftslagsvána.
Óskrifað blað
Stefán Jón starfar nú sem erindreki
í málefnum hafsins fyrir utanríkis-
ráðuneytið. Aðspurður hvort til
greina komi að setjast í helgan stein
á næstunni segir hann það ekki
koma til greina. „Það mun ég aldr-
ei gera, það kemur ekki til greina,“
segir Stefán Jón og bætir við það sé
ómögulegt. Þá sé best að segja sem
minnst um frekari útgáfu bóka í
framtíðinni. „Ég get engu lofað um
það að ég muni halda kjafti í fram-
tíðinni,“ segir Stefán Jón að síðustu
og hlær innilega. n
Það var eitt
af því sem
ég lofaði
sjálfum
mér að
gera ekki
en gat ekki
alveg
staðið við.
Ég get engu lofað um
það að ég muni halda
kjafti í framtíðinni.
Pólitík getur
verið algjör
viðbjóður
Stefán Jón er mikill dýravinur og hér er hann ásamt orkuboltanum Emblu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Stefán Jón á
nýrri fæðingar-
deild í Monkey
Bay sem hann
tók þátt í að
opna, ásamt
frumburði
deildarinnar, ný-
bakaðri móður
og heilbrigðis-
starfsfólki.
MYND/
AÐSEND
Helena Rós
Sturludóttir
helenaros
@frettabladid.is
28 Helgin 27. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ